Vikan


Vikan - 02.07.1970, Qupperneq 36

Vikan - 02.07.1970, Qupperneq 36
grænr meti er góö~ meti.. Húsmæður Gefið fjölskyldunni holla og efnaríka fæðu. Tómatar, ágúrkur, gulrætur, steinselja og salat fæst í næstu matvörubúð. STJÖRNUSPÁ*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Sökum utanaðkomandi áhrifa verðurðu að leggja ýmis mál í annarra hendur. Þú verður fyrir nokkr- um óþægindum af völdum nágranna þinna. Þú gerir ábótasöm viðskipti, sem öðlast þó ekki gildi strax. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður var við óvæntan hlýhug og vinarþel frá ættingjum þínum. Það verður fremur dauflegt i kringum þig og lítið um skemmtanir, þó eru líkur á að þú eigir skemmtilegar stundir um helgina. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú færð mörg gullvæg tækifæri til að koma þér betur fyrir, sökum mjög óvenjulegra aðstæðna. Því miður geturðu ekki notað þér þau sem skyldi vegna anna þinna við eigin persónulegar framkvæmdir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú verður beðinn um að lána ákveðinn hlut en sökum sjálfsumhyggju snýrðu þig út úr því. Ungur maður leitar til þfn i vandræðum og þú ættir að gera þitt bezta til að aðstoða hann. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú hefur alveg einstakt tækifæri til að koma þér betur fyrir. Þú skalt svo sannarlega ekki missa af neinu og hamra járnið miskunnarlaust meðan það er nokkur deigla í því. líf* Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Maður nokkur reynir með öllu móti að prakka inn á þig hlut, sem þú hefur nokkum áhuga á, en rétti tíminn til slíkra viðskipta er alls ekki eins og er. Vettvangur þinn er innan veggja heimilisins. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Ef þú réttir höndina eftir því, þá geturðu komizt í ábótasamt en tímafrekt aukastarf. Þú verður að- eins að gera það upp við þig hvað er þyngst á met- unum. Þú lendir í skemmtilegu samkvæmi. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú verður að vera mjög þolinmóður þótt tafir verði á framkvæmdum þínum. Það verða mörg handtök sem fara til spillis vegna óhægra aðstæðna en vertu samt ánægður, það er full ástæða til þess. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Skiptu þér ekki af einkamálum annarra, jafnvel þótt leitað verði ráða hjá þér. Þér er alveg óhætt að treysta á gæfuna og Ieggja í dálitla áhættu hvað fjármálin varðar. Heillalitur er grænn. 'Sáfi Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú hefur verið mjög duglegur og afkastamikill og nú skaltu verðlauna sjálfan þig og gera þér veru- legan dagamun. Þú ættlr að hafa meira samband við vini þína en þú hefur hingað til haft. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vegna einhverra frétta sem borizt hafa er fremur hljótt um ákveðna persónu. Sjálfur skaltu láta sem þú vitir ekki neitt og láttu ekki hafa neitt eftir þér. Þú gerir góða verzlun. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Taktu ekki að þér störf sem þér finnst vera fyrir neðan virðingu þfna, það hjálpar þér ekkert áfram í metnaðarstiganum. Einhver hagnast vegna óþolin- mæði þinnar. Reyndu að vera stjórnasamur helma. 36 VIKAN 27-tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.