Vikan


Vikan - 02.07.1970, Blaðsíða 40

Vikan - 02.07.1970, Blaðsíða 40
fást í þrem stærSum. Einnig reiðhjól í ölium stærðum. Spítalastíg 8 — Sími 14661 — Pósthólf 671 fimmtíu ára tímabili, sem við höfum farið yfir, kom aðeins eitt morðmál í hreppnum, og raunar engin málaferli önnur. Þetta bendir með öðru til að mönnum þarna hafi verið heldur illa við öll yfirvöld, ekki þótst neitt upp á þau komnir og viljað greiða fram úr sínum málum sjálfir. Þetta var að vissu leyti lokað samfélag og sjálfrátt um leið. Þeir áttu langt að sækja í kaup- stað, til ísafjarðar, en voru minna upp á einokunarverzlunina komnir vegna viðskiptanna við þjóðirnar, eins og það var kallað. Þau viðskipti voru auðvitað gróf lögbrot, en engin leið fyrir yfir- völd að hafa eftirlit með þeim í þessum afskekktu sveitum. Þessi viðskipti hafa áreiðanlega hafizt snemma, við Englendinga á fimmtándu öld, síðan ef til vill við Hansakaupmenn, þvínæst við spænska hvalveiðimenn, á átj- ándu öld við Hollendinga og síð- ar við Frakka. Og á þessa við- skiptamenn sína komu þeir saka- mönnunum, sem þeir tóku við. Til þess hve sjálfsagður hlutur þessháttar þótti þar um slóðir bendir eftirfarandi frásögn: Bóndi nokkur hafði tekið við sakamanni og fengið til duggara að ferja hann út, en duggarinn vildi fá sauð í fargjald fyrir brotamanninn. Bóndi sjálfur átti engan slíkan grip handbæran, en gerði sér þá lítið fyrir og fékk hann lánaðan hjá einum ná- grannanum, sem hittist svo á að var hreppstjóri sveitarinnar! — Eitt af því sem eftirtektar- verðast er við Vestfirðinga eru nafngiftir þeirra. Þeir virðast hafa sótt nöfn sín með mesta móti í rímurnar. Hvernig mundi hafa staðið á því? — í rímurnar og Biblíuna, já. Það er engu líkara en þessi lesn- ing, sem var þá sú helzta sem menn áttu völ á, hafi orðið þeim enn hugleiknari en öðrum lands- mönnum. Ég man þannig eftir manni sem skráður er í kirkju- bók í Sléttuhreppi og er dáinn 1834; hann hét Mahalaeel. Þetta nafn er úr niðjatali Adams í fyrstu Mósebók. En nafnið er stafsett eins og í elztu biblíuþýð- ingunum, en í þeim nýrri hefur hún eilítið breytzt. -— Og að síðustu, Þórleifur. Eftir því sem bezt verður séð er galdratrú aldauða hér á landi, eða því sem næst, þótt sumsstaðar erlendis virðist hún lifa í góðu og gengi og meira að segja eiga uppgangi að fagna. Heldur þú að von gæti verið á endurreisn forn- eskjunnar hérlendis? — Hver veit? Allt er breyting- um undirorpið. Sagan á það til að endurtaka sig. Spurningin er: hvert fer tæknin með manninn, hvert rekur hún hann í leit að einhverju sér til hlífðar og varn- ar gegn þessari æsihröðu tækni- þróun, sem allt er að yfirþyrma? Er þá nokkuð eðlilegra en að menn virki hugaraflið gegn sókn tækniheimsins? dþ. Stolt Framhald af bls. 13. hugsaði: Nú kyssir hann mig. Eg skil ekki, hvernig mér datt svo heimskulegt í hug, en það var víst af því að hann var svo líkur sjálfum sér, eins og þegar við vorum saman. Auð- vitað kyssti hann mig ekki, en hann hélt mér frá sér og horfði rannsakandi á mig. Allt virtist vera svo óraunverulegt, og mig langaði mest til að hlaupa leiðar minnar. — Skórnir þínir eru of þunnir í þessu hryssingsveðri, sagði hann. — Þú getur ekki gengið um á þennan hátt. Hefur þú ekki neina aðra skó með þér? Hann talaði við mig eins og við hefðum sézt alveg nýlega og eins og það væru skórnir, sem væru eina vandamál okk- ar. Það munaði minnstu, að ég byrjaði að gráta. — Þú ert rennblaut í fæt- urna, hélt hann áfram. Ég stóð og hugsaði með mér, að hann væri mjög fölur, en fólk var það víst um þetta leyti árs. — Vertu ekki svona kjána- legur, muldraði ég og yppti öxlum. Hvað eftir annað hafði ég hugsað til þessa fundar, og ég hafði verið svo örugg um að geta staðið mig. Hann mvndi tala við mig um það, sem einu sinni hafði verið, um ást, um vonbrigði og um þrá, og ég myndi svara honum stuttlega og eðlilega. Að hann byrjaði að tala um skóna mína, olli þess vegna meiri ó- þægindum en ég mvndi nokkru sinni geta viðurkennt fyrir siálfri mér. — Ert.u svöng? Eða þyrst? Hvernig hefur þú það? spurði hann, og ég hefði getað svar- að: „Ég er ástfangin í bér!“ Ef til vill hefði hann tekið því svari álíka rólega og nú, þeg- ar ég svaraði, að ég hefði bað ekki sem bezt — og að það stafaði sennilega af flugferð- inni. — Það líður fljótt, hjá, hug- hreysti hann, eins oghann tal- aði við kveifarlegt barn. — Við förum inn á barinn barna og fáum okkur eitthvað að drekka. T reykiarsvælunni þar inni stóðu nokkur lítil borð með stólum umhverfis. Við feng- um borð við vegginn, og hit- inn ornaði okkur brátt. Ótti minn hvarf eins og hæg undir- alda — ég var næstum alveg róleg nú. — Ég hélt satt að segja að þú værir orðin eldri, sagði hann brosandi. — Það höldum við víst yf- irleitt um fólk, sem við höfum ekki séð í mörg ár, sagði ég, og bros hans hvarf. — Hvernig gengur það hjá fjölskyldu þinni? spurði ég til að beina athygli hans að öðru. — Agætlega! Ég á sex ára dóttur og fjögurra ára son, svaraði hann og starði ofan í g'Iasið sitt. Ég tók eftir að hann var byrjaður að grána í vöngum, og það komu tár í augu mín. Það var gott, að hann leit ekki á mig einmitt á því augnabliki. — Og konan þín? spurði ég, án þess að vita, hvað ég átti eiginlega við með spurn- ingunni. — Jú, þakka þér fyrir, henni líður líka vel, sagði hann. Skönunu síðar leit hann upp og horfði á mig. Hann virtist öðru vísi, og ég braut heilann um, hvað hefði komið fyrir hann. — Nú líður mér betur, sagði hann og brosti vandræðalega. — Betur? — Já, ég held, að mér hafi brugðið lítið eitt, þegar ég hitti þig. Þú leizt nákvæmlega eins út og áður, og þegav þú stóðst allt í einu þarna rétt fyrir framan mig, mátti minnstu muna, að ég gæfi þér ekki venjulegan kveðjukoss. Það var gott, að þú byrjaðir að tala um að þér liði ekki sem bezt, svo að ég fékk tíma til að komast niður á jörðina aftur. Ég ■ brosti, eins og hann hefði sagt eitthvað merkilegt, en hugsaði með sjálfri mér að það hefði verið hann, sem byrjaði að tala um skóna mína. — Og hvernig líður þér? sagði hann eftir stundarþögn. — Jú, þakka þér fyrir, við eigum góða íbúð og fjögurra ára dóttur, lítinn sumarbú- stað á Suðurlandi, góða vini og Ijósgráan bíl . . . — Það gleður mig að þú skulir hafa það svona gott, 40 VIKAN 27-tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.