Vikan - 04.11.1971, Qupperneq 4
BRISTOL
Mikið úrval af varamunn-
stykkjum í flestar pípur.
Mesta pípuúrval landsins.
Hundruð gerSa í öllum
verSflokkum.
LÍTIÐ INN TIL OKKAR
B RISTOL
BANKASTRÆTI 6
Wintber bríbiól
Þríhjólin vinsælu alltaf fyrirliggjandi.
Einnig reiðhjól í öllum stærðum.
PÓSTURINN
Hræsni?
Kæri Póstur!
Eins og öllum er sjálfsagt f
fersku minni, skoraði biskup
landsins á almenning ekki alls
fyrir löngu og hvatti fólk til að
fasta einn sunnudag (10. okt.)
og gefa andvirði máltíðarinnar
til flóttamanna (frá Bangla Desh)
í Indlandi. Ekki er neitt nema
gott eitt um þessa áskorun að
segja, en mér þótti undarleg sú
ráðstöfun eins Reykjavíkursafn-
aðanna, að þennan sama dag
voru haldnar miklar skemmtanir
á vegum hans og fylgdu þeim
skemmtunum miklar át- og
drykkjuveizlur. Finnst þér þetta
ekki dúndrandi gott dæmi um
hræsnina innan kirkjunnar, Póst-
ur góður? Hvað segir biskup við
þessu?
Þökk fyrir birtinguna.
Religious.
Ekki getum viS neitað því, að
við urSum varir vi8 þetta atriSi
sem þú talar um og viS heitum
hér meS aS veita hverjum þeim
kirkjunnar manni, sem óskar eft-
ir því aS úttala sig um þetta,
rúm í dálkum okkar.
Umferðarljós
við Bústaðaveg
Virðulegi Póstur!
Eins og þér er sjálfsagt kunnugt,
þá hefur nýlega verið komið upp
umferðarljósum fyrir gangandi á
Bústaðavegi í Reykjavík. Við þá
götu bý ég og hef fylgzt afv
miklum áhuga með árangri þess-
ara Ijósa. Mér til mikillar ánægju
hef ég dregið þá ályktun að veg-
farendur noti sér þessi Ijós á
fullkomlega réttan hátt en mér
til ennþá meiri óánægju hef ég
líka orðið þess var, að bílstjór-
ar, margir hverjir, láta sem þessi
Ijós séu ekki til. Oðru hverju
kemur það fyrir að rautt Ijós
stöðvar umferð þótt enginn sé á
leið yfir götuna og samkvæmt
öllum reglum ættu ökumenn þá
að stoppa og bíða þar til grænt
Ijós er komið, rétt eins og við
önnur umferðarljós, en því mið-
ur vill oft verða misbrestur á
þvi.
Einu sinni var ég í strætisvagni
á leið í vinnu, og er vagninn
stanzaði við Ijósin til að hleypa
fólki yfir götuna, kom bíll að-
vífandi úr austurátt (aftan að
strætisvagninum) og hélt sínu
striki, framhjá vagninum og
áfram á miklum hraða. Vegfar-
endur áttu fótum fjör að launa
í það skiptið og því miður er
þetta ekkert einsdæmi. Sjálfur
hef ég margoft séð slíkt og ekki
dregið að skrifa niður númer
slíkra bíla og tilkynna framkomu
þeirra.
Tilefni þessa bréfs er að vekja
athygli á þessari svívirðilegu
framkomu margra ökumanna
(meirihlutinn virðir þó Ijósin og
venjulegar siðferðisreglur) og
biðja þig Póstur góður, að
koma þeirri áskorun til viðkom-
andi aðila að flýta sér hægt. Það
hafa orðið nógu mörg slys á
Bústaðaveginum, sem nú er að
verða ein mesta umferðargata
borgarinnar, þótt ekki séu menn
að leika sér með mannslíf þar.
Þökk fyrir birtinguna.
Valdi.
Enn um Forhúö
Kæri Póstur!
Ég las bréfið í Póstinum um
hljómsveitina ForhúS og þar sem
þú varst að biðja um upplýs-
ingar um söngvarann og hljóm-
sveitina í heild, ætla ég að miðla
minni takmörkuðu vizku um
þetta efni. Söngvarinn, sá góði
maður, heitir Magnús Ragnar
Einarsson cg er frá Seyðisfirði,
en nú er hann í MR og hefur
verið þar í að minnsta kosti 2
vetur. Hann er ólofaður og var
á Hornafirði í sumar, þar sem
þessi hljómsveit varð til.
Að lokum vil ég þakka VIKUNNI
fyrir mjög gott lesefni. Ég kaupi
hana alltaf og langar til að verða
áskrifandi, en ég veit ekki hvert
ég á að skrifa til að gerast áskrif-
andi, svo ég ætla að biðja þig,
Póstur góður að segja mér það
og eins máttu gjarnan nefna
verðið.
Þakka þér kærlega fyrir upplýs-
ingarnar um söngvarann í þess-
ari merkilegu hljómsveit og svo
skaltu fletta upp á blaSsíðuna
4 VIKAN 44. TBL.