Vikan - 04.11.1971, Blaðsíða 33
Chinchilla
30 den
Ný legund af sokkabuxum sem
fara sigurför um heiminn —
Reynið gæðin
Ágúst Ármann
Heildverzlun
KLAPPARSTÍG 38 - SÍMI 22100
HANN VAR HIN
SANNA FYRIRMYND
Framhald af bls. 15.
sekúndu í viðbragðinu, en bezti
tími hans var 9,4 sekúndur.
En nú var komið að Olym-
píuleikunum í Berlín árið 1936.
Djessí var af öllum talinn ör-
uggur um sigur í þremur grein-
um, 100 og 200 m hlaupi og
langstökki. Hann hafði jafnað
heimsmetið í 100 m hlaupi
heima í Bandaríkjunum, hljóp
á 10,2 sekúndum, en vafi lék á
um það hvort meðvindur var
löglegur.
Fyrsta dag Olympíuleikanna
fóru fram undanrásir í 100 m
hlaupi og Owens var í 12. og
síðasta riðli undanrásanna. —
Ýmsir náðu góðum árangri, áð-
ur en kom að 12. riðli undan-
rásanna, t. d. hljóp Hollending-
urinn Osendarp á 10,5 sekúnd-
um, eftir harða baráttu við Eng-
lendinginn Pennington og Kan-
adamanninn Orr. Nú biðu allir
þess spenntir að sjá hvað Djessí
gerði, var hann eins góður og
sagt var?
í riðli hans voru tveir þekkt-
ir spretthlauparar, Japaninn
Sasaki og Brasilíumaðurinn Al-
meida. Hinir keppinautar Djessí
voru óþekktir. Skotið reið af,
Djessí þaut af stað og undrun
áhorfenda var mikil, en fæstir
þeirra höfðu séð þannan þekkta
mann hlaupa áður. Þetta var
þó hálfbroslegt, hann virtist
ekkert taka á, en þó sveif hann
áreynslulaust áfram eins og áð-
ur, og hinn þekkti japanski
hlaupari Sasaki var 7 metrum
á eftir honum, en tími Djessí,
10,3 sekúndur, var sá sami og
heimsmetið. Þegar þulur Ol-
ympíuleikanna tilkynnti tímann
fór fagnaðarbylgja um leik-
vanginn, hvað gerir þessi stór-
kotslegi negri, þegar hann tek-
ur á? Spretthlaupin eru ávallt
mest spennandi greinar Olym-
píuleika, og nú voru allir vissir
um hver sigra mundi, það kom
enginn annar til greina, en
Djessí Owens.
Fjórum klukkustundum síð-
ar beygir Djessí sig aftur nið-
ur að ráslínunni og nú keppir
hann við fimm heimsfræga
hlaupara í milliriðlum. Ræsir-
inn hefur skipað þeim að vera
viðbúnum, þeir lyfta hnjánum
frá jörðinni, halda sér uppi á
tánum og fingurgómunum og
bíða skotsins.
Skotið ríður af, og hlaupar-
arnir þjóta eins og elding af
stað. Fyrstur er Japaninn Yos-
hioka, hann er fljótasti maður
gula kynstofnsins, og fólkið á
áhorfendapöllunum heldur
niðri í sér andanum af æsingu.
Helzt lítur út fyrir, að guli
hlauparinn ætli að sigra þann
svarta, en þegar 40 metrar eru
búnir af hlaupinu, er eins og
Djessí vaxi ásmegin,----hann
þýtur sem ör fram fyrir Japan-
ann, hleypur hraðar og hraðar
og hraðar og kemur í mark á
undan öllum keppinautum sín-
um. — Tíminn er 10,2 sekúndur
— nýtt heimsmet.
Urslitahlaupið var nánast
formsatriði fyrir Djessí, eftir
mjög gott viðbragð hélt hann
forystu frá upphafi, hann náði
strax 3ja metra forskoti, en
barátta næstu manna var geysi-
hörð. Tími hans var 10,3 sek-
úndur, en það var öllum mikil
ráðgáta, að næstu menn, Mat-
calfe oð Osendarp, skyldu fá
tímana 10,4 og 10,5 sekúndur.
Daginn eftir eru undanrásir 200
m hlaupsins og það er ekki að
spyrja að því að Djessí hefur
mikla yfirburði, tími hans í
undanrásunum er 21,1 sekúnd-
ur, hann var 5 metra á undan
Kanadamanninum Orr, en í
þriðja og fjórða sæti voru hinn
frægi Þjóðverji Neckermann og
Englendingurinn Sweeney. í
milliriðli hljóp hann aftur á
21.1 sekúndu, 7 metra á undan
Kanadamanninum McPhee, loks
hljóp hann leikandi létt á 21.3
sekúndum í undanúrslitum og
var þá tveim metrum á undan
hinum kröftuga Hollendingi,
Osendarp. Hinn 5. ágúst er
hlaupið til úrslita í 200 metra
hlaupinu, en helzti keppinaut-
ur Djessí, er landi hans Robin-
son. Athygli mannfjöldans
beindist óskert að Djessí. Hann
er maðurinn, sem áhorfendur
lofsyngja og dá, hann er töfra-
maður á sviði spretthlaupa.
Æsing áhorfenda vex þar til
skotið ríður af. í upphafi virð-
ist Robinson ætla að sigra,
Áhorfendur eru að því komnir
að ganga af göflunum af eftir-
væntingu, en það stendur ekki
lengi. Djessí hinn ósigrandi nær
sér á strik eftir 5 metra og er
þá kominn upp að hliðinni á
Robinson og brunar fram úr
honum. Bilið lengist jafnt og
þétt allt til loka hlaupsins.
Djessí virðist hlaupa enn hrað-
ar eftir því sem nær dregur
marklínunni og bilið lengist
stöðugt milli hans og hinna
hlauparanna. Tíminn er 20.7
sekúndur. Nýtt Olympíumet og
önnur gullverðlaun Djessí Ow-
ens.
Menn biðu nú spenntir lang-
stökksins. Djessí hafði sett nýtt
heimsmet í þeirri grein árið
áður, þrátt fyrir það að stíll
hans var ekki talinn sem bezt-
ur, hann stökk 8,13 metra á
meistaramóti Bandaríkjanna. í
Evrópu höfðu aldrei sézt
stokknir 8 metrar í langstökki.
í undankeppninni þurfti að
stökkva 7.15 metra til að kom-
ast í aðalkeppnina og Djessí
átti ekki í erfiðleikum með það.
í úrslitakeppninni fékk Djes-
sí harðan keppinaut, en jafn-
framt drenglundaðan, Þjóðverj-
ann Lutz Long. Djessí gerði
fyrsta stökk sitt ógilt og þá
kom Lutz Long til hans og
benti honum á að lagfæra at-
rennuna, hann hitti vel á stökk-
plankann og afrekið, 7,94 m,
var nýtt Olympíumet. Þeim ár-
angri náði Lutz Long ekki,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
En Djessí á eitt stökk eftir —
og til þess verður hann að
vanda. Hann gengur út á at-
rennubrautina, hnitmiðar hvert
skref, sem hanri þarf að taka,
hniprar sig saman eins og tígr-
isdýr, er stekkur á bráð. Þeg-
ar hann hefur sig upp, flýgur
hann með geypihraða, eins og
kólfi væri skotið og kemur
framar í stökkgryfjuna, en
nokkur annar hafði komizt.
Dómararnir taka sér góðan
tíma til að mæla stökkið, bera
sig saman og mæla aftur og
eftir eina langa mínútu tilkynn-
ir þulurinn, að Djessí hafi
stokkið 8,06 metra — nýtt ol-
ympíumet. Þriðju verðlaunin
eru orðin að veruleika. En
þrenn olympísk gullverðlaun
voru ekki nóg fyrir hann.
Djessí Owens var valinn til að
hlaupa í 4x100 m boðhlaups-
sveit Bandaríkjanna sem fyrsti
maður. Svertinginn Metclafe
átti að hlaupa annan sprett.
Þetta þótti mikill heiður fyrir
bandaríska svertingja í þá
daga, aldrei fyrr hafði svert-
ingi verið valinn til að hlaupa
í boðhlaupssveit Bandaríkj-
anna, þó að árangur gæfi til-
44.TBL. VIKAN 33