Vikan - 21.03.1974, Page 23
FJÖLBÝUSHÚSSEM ER
y
öórmísi
Herbergi
sætunnar
heima
begar ekið er um úthverfi
borga. hvort heldur þaö er út-
hverfi Reykjavikur eða erlendra
stórborga, gnæfa hvarvetna
hornréttir kassar mismunandi
háir og stórir um sig. l>etta eru
fjölbvlishúsin, efta blokkirnar,
eins og húsin eru nefnd i daglegu
tali — einlaldasta og ódýrasta
lausnin á busnæöismálum
borgarbúa
Einstaka sinnum má sjá blokk,
sem i útliti og innréttingu sker sig
úr. Ein slik er i Ivrv, einu af
uthverfum Parisar. Par hafa
arkitektarnir revnt aö gefa hverri
ibúö sinn svip, svo ibúarnir geti
haft á tilf inningunni, að þeir búi i
eigin .húsi' fremur en ,,klela"
.■ .•'iigagangi
I fjölbylishúsinu i Ivry er vart
hægt að tala um, að ibúarnir búi
..iiinan Ijiigurra veggja", þvi
veggirnir i hverju herbergi eru
ylirleitt mun fleiri. Ilerbergin eru
ekki ferhyrnd með réttum
hornum, eins og algengast er i
ibúðum, heldur eru hornin ýmist
þrong eða gleið og myndast
þannig krokar og veggfletir, sem
sjaldgæft er að sjá i ibúðahúsum.
Ilverri ibúð fylgir svalagarður,
þar sem ibúarnir geta notið
veðurbliðu og útsýnis og ræktað
blóm og trjágróður.
I ibúðinni. sem 'við sjáum
teikningu af hér, búa hjón með
eina dottur og finnst þeim ibúðin
sem sniðin lyrir þau. Aður voru
þau buin að flytja blokk úr blokk
og alls staðar fannst þeim jafn
dapurlegt og ópersónulegt. En á
þvi eina ári, sem þau hafa búið i
þessu „hyrnda” fjöíbýlishúsi
segja þau algera breytingu hafa
orðið á lifi þeirra. Þeim finnst þau
ekki lengur innilokuð nú eru
þau frjáls, hafa nægilegt
svigrúm, en einnig nóg af litlum
krokum, þar sem hægt er að vera
út af fyrir sig.
Petta „hyrnda” fjölbýlishús
hefur verið heldur dýrara i
byggingu en hin venjulegu
fjölbýlishús umhverfis, en
ibúarnir hafa verið svo ánægðir,
að yfirvöld hafa ákveðið að
byggja fleiri af þessari gerð.
1
ivalir •;•••'•
forstofa
HUS OG
HÚSBÚNAÐUR
22 VIKAN 12. TBL.
12, TBL. VIKAN 23