Vikan - 21.03.1974, Blaðsíða 36
Frú Inez Fernandez segir, að
hún væri oröin rík, ef hún ætti eins
margar centimur og svefn-
pillurnar eru, sem hún hefur tekiö
undanfarin þrjátlu ár. Þrátt fyrir
allar svefnpillurnar og önnur lyf,
sem hún hefur tekiö, hefur hún
ekki sofnaö dúr slöan I júli 1943
Inez Fernandez er 57 ára gömul
spænsk ekkja og býr I þorpinu
Sierra de Fuentes i grennd viö
Caceras á suð- vestur Spáni. Sér-
fræðingar, sem hafa rannsakað
hana á uhdanförnum árum, eru
sem steini lostnir og vita ekki
hvaðan á þá stendur veöriö. A
siöasta ári einu saman vitjuöu
hennar læknar frá Þýzkalandi,
Frakklandi og Bandarikjunum og
heimilislæknir hennar, dr. Padlos
F. Abril hefur haft samráö viö
lækna, næstum alls staðar i
heiminum.
Dr. Abril heldur, að frú
Fernandez þjáist af ólæknandi og
algeru svefnleysi og uppskurður á
„svefnstöðvum" heilans geti
læknað hana. En læknarnir, sem
rannsakað hafa frú Fernandez og
rætt viö hana, eru ekki á einu
máli um þetta og sumir þeirra
telja svefnleysið ekki siöur eiga
sálrænar en likamlegar orsakir.
Svefnleysiö gerði fyrst vart við
sig siðdegis dag einn I júlimánuði
1943. Inez man daginn vel. Það
var 8. júli og hún segir það hafa
verið heitan og ioftþungan dag.
Hún stóð i dyrunum á húsi sinu og
horfði á trúarskrúðgöngu, sem
fór framhjá heimili hennar. Hún
leggur áherzlu á, að þetta hafi
veriö svolitið dapurleg ganga, en
án þess að vita hvers vegna greip
hún allt i einu andann á lofti og
hræðilegur sársauki skarst
gegnum höfuð hennar og olli
henni svima svo að hún reikaði á
fótunum. Henni tókst að skjögra
inn i húsið og leggjast fyrir.
Um ,'kvöldið gegndi hún sinum
venjulegum störfum, lagaði kaffi
handa sér og manni sinum, og um
tiuleytið lögðust þau til svefns.
Höfuðverkurinn var horfinn, hún
kenndi sér einskis meins, en fann
þó til óeölilegrar þreytu. En henni
tókst ekki að festa blund. Hún lá
vakandi alla nóttina og gat ekki
sofnað, hvernig sem hún reyndi.
Hún leitaöi ekki iæknis, þvi aö
hún hélt ekki, að neitt væri aö sér.
Hún helt einfaldlega, aö hún hefði
ofþreytt sig um daginn og heföi
ekki getaö sofnað þess vegna. En
þegar henni tókst ekki að festa
blund hvorki næstu nótt né nóttina
þar á eftir, fór hún til dr. Abril,
sem þá var ungur læknir og hafði
nýlega hafið störf þar i þorpinu.
Hann lét þessa 27 ára gömlu konu
gangast undir nákvæma læknis-
rannsókn, en fann ekkert að
henni. Hann ráðlagði henni að
taka veikt svefnlyf og- fullvissaði
hana um, að það myndi hjálpa
henni að sofna. En það veitti
henni ekki fró svefnsins.
Þegar dr. Abril uppgötvaði, að
hvorki svefnpillur né önnur lyf
voru nein hjálp fyrir sjúklinginn,
bað hann starfsbróður sinn úr
öðru þorpi að koma og rannsaka
hana. En hvorki sá læknir né
nokkur annar, sem hefur rann-
sakað hana undanfarin þrjátiu ár,
'hefur getað sagt til um, hvað er
að Inez Fernandez og hvers
vegna hún getur ekki sofnaö.
Flestir þeirra hafa þó getið þess
til, að hún sé haldin ólæknandi
insomniu (svefnleysi), sem er
afar sjaldgæfur og i rauninni
næstum þvi óþekktur heilasjúk-
dómur.
Svefnlausar nætur.
Þegar þetta einstaka „met”
uppgötvaðist fyrir nokkru siðan,
sagði Inez Fernandez við blaða-
menn:
Næturnar voru langar * og
svefnlausar. Ég sat i hæginda-
Þrjátíu svefnlaus ár
Inez Feraandez var að horfa á trúar-
skrúðgöngu fyrir þrjátíu árum. Heitt var
i veðri og skrúðgangan var likig. Allt I
einu greip Inez andann á lofti og var
altekin hræðilegum höfuðverk. Siðan
hefur Inez ekki sofnað blund, þrátt fyrir
að læknar hafi gripið til allra tiltækra
ráða til að létta af henni þessu hræðilega
oki. En nú eygir Inez örlitla von....
i