Vikan


Vikan - 18.07.1974, Side 37

Vikan - 18.07.1974, Side 37
þvo upp'. Hann gekk til hennar. j — Þér reynduð að taka barniö, var ekki svo? Gamla ljósmóðirin þerraði hendurnar & svuntunni og sagði: — Ég náði einu sinni til hans, en hann bifaðist ekki. Ég gat ekki náð almennilegu taki. — Og með enga hanzka? Ber- hént? Konan leit beint i augun i hon- um. — Ég haföi enga hanzka. Þér voruð ekki hérna. Einhver varð eitthvað að gera. Hann hopaði á hæl. — Auðvitað. Þér hafið auðvitað gert yðar bezta. Sorren kom út úr svefnherberg- inu og lokaði á eftir sér. Hann starði hræddum augum, náfölur. Allir unglegu drættirnir i andliti hans voru horfnir, og hann leit út eins og gamalmenni. — Mildred er veik. Afskaplega veik. — Henni batnar. Hann reyndi að vera hressilegur, en sá, að það hafði engin huggandi áhrif á svip- inn á Sorren, — Hún er brennheit viðkomu.... — Það er bara imyndun hjá •þér. Þú þarft bara að sofa. Hann gekk fram hjá verkamanninum og inn i herbergið. Moline læknir sá þaö, sem hann hafði búizt við. Konan lá eldrjóð og hreyfingarlaus. Hann gekk að rúminu og tók um úlnliðinn á henni, en sleppti honum fljótlega aftur. Hve tið sem æðaslögin kynnu -að vera, var þetta að minnsta kosti slæmt. Og með hressilegheitum, sem hann vissi, að litu bjánalega út, sagði hann: — Svo þú ert að plata mig, Mildred. Hún opnaði augun ofurlitið og setti upp veiklulegt bros. — Hvernig liður þér? Ekki sér- lega vel? — Mér er illt...Ég er alveg að brenna upp. — Þú hefur nú átt börn áður. Það er aldrei neinn hægðarleikur. — En i fyrri skiptin batnaði mér alltaf. Sorren gekk að lækninum og lagði höndina á handlegginn á honum. — Henni batnar, er það ekki? Nú þegar þú ert kominn, verður allt i lagi. — Já, áreiðanlega...Hann beit á vörina áður en hann hélt áfram. Það var alltaf leiðinlegt og erfitt að ljúga. — Ég fékk skyndikall út i sveit. Það var einn af þessum þýzku bændum. Þessvegna komst ég ekki hingað fyrr. Hann stakk hitamælinum undir tunguna i Mildred. Hann fékk fyr- ir hjartað þegar hann horfði á mælinn. Kvikasilfrið var komið upp 1 40 stig. Hann flýtti sér að hrista hann niður. — Þetta er ekki sem verst. Ekki eins slæmt og ég hélt. Fullorðið fólk var að dauða komið með svona hita. — Ég hef einhverjar pillur — súlfapillur. Eftir svo sem tvo klukkutima för- um við að sjá breytingu. Og þá getur góður svefn komið að miklu gagni. Hann klappaði á öxlina á Sorren. — Vertu ekki svona niður- dreginn, kall minn. Fólki getur liðið fjandalega stundum, en likaminn getur gert kraftaverk með að láta sér batna. Samkvæmt beiðni læknisins, kom Sorren með vatn. Læknirinn hristi fram súlfatöflu og hélt svo upp höfðinu á frú Sorren meðan hún drakk. — Eina á þriggja stunda fresti seinnipartinn og i nótt. Ég lit inn einhverntima i kvöld. Hann fékk Sorren glasið. — Þú varst i gær eitthvað að tala um blóð... — Það er rétt, en ég hef bara ekki getað náð i það enn. Ég ætl- Með Heimilistryggingll er innbú yðar m.a. tryggt gegn eldsvoða. eldingum. sprengingu, sótfalli, snjðskriðum, aurskriöum, foki, vatnsskemmdum, innbrotsþjófnaði o.fl. I Heimilistryggingu er innifalin ábyrgðartrygging fyrir tryggingataka maka hans og ógift börn undir 20 ára aldri. enda hafi þessir aöilar sameiginlegt lögheimili. Tryggingarfjárhæöin er allt að kr. 1.250.000,- fyrir hvert tjón. I Heimilistryggingu er örorku- og dónartrygging húsmóður og barna yngri en 20 ára, af völdum slyss eða mænuveikilömunar. Örorkubætur fyrir húsmóður og börn, nema kr. 300.000,- fyrir hvert þeirra við 100% varanlega örorku. Heimilistrygging Samvinnutrygginga er nauósynleg trygging fyrir öll heimili og fjölskyldur. SAJMVIIXNUTRYGGIINGAR ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500 Segjúm mömmu, hver______ liggur á bak við heystakkinfn og reykir. Hann gæti kveikt i honum! 29. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.