Vikan - 18.07.1974, Side 47
Að leika við börn
Þegar Sonja var fjögra ára,
lenti hún i alvarlegu urhferðar-
slysi. Foreldrar hennar særðust
illa, en hún sjálf slapp ómeidd á
einhvern undarlegan hátt og var
falin í umsjá ömmu sinnar. Vita-
skuld lögðu allir sig fram um að
fá Sonju til þess að' gleyma slys-
inu eins fljótt og kostur var. Og
það var greinilegt, að henni veitt-
ist það auðvelt. Hún hló og var kát
eins og ekkert hefði gerzt.
Þremur árum seinna var Sonj^
farin að ganga i skóla og allt i
einu fór að bera á miklum ein-
beitingarskorti hjá henni. Brátt
kvað svo rammt að þessu, að for-
.eldrar hennar leituðu aðstoðar
barnasálfræðings. Sálfræðingur-
inn lét Sonju ekkert gera nema
leika sér i fyrsta viðtalstimanum.
Hann fékk barninu alls konar
leikföng: brúður, húsgögn, hús og
bfla. Likt og svefngengill tók
Sonja brúðurnar og bilana og lék
— slys. TIu fyrstu viðtalstimana
lék hún sér alltaf á þennan sama
hátt. Eftir það fór hún að leika sér
aðfleirileikföngum,hættiað likja
eftir slysum — og um leið fór
henni að ganga betur i skólanum.
Sonja var alheil. Hún hafði unnið
bug á hræðslunni og gat gleymt
henni.
Leikurinn er bezta lyf sálarinn-
ar, sagði Anna Freud, dóttir Sig-
munds Freud. Á lækningsstofu
sinni i London lét hún sálarlega
vánheil börn einfaldlega leika sér
að eigin geðþótta og eftir nokkurn
tíma fór hún að leiða leikinn.
Anna Freud taldi, að börn gætu
ekki talað sig frá alvarlegum á-
föllum á sama hátt og fullorðnir
geta oft gert, heldur væri þeim
eiginlegt að leika sig frá þeim. Og
að barn sé orðið sjúkt, þegar það
hefur glatað hæfileikanum til
þess að tjá sig i leik.
Enn þann dag i dag beita
barnasálfræðingar mörgum
sömu aðferðum og Anna Freud.
Og foreldrar geta lika margt lært
af aðferðum hennar.
Foreldrar eru vitaskuld engir
sérfræðingar i barnasálfræði, en
þeir hafa eitt fram yfir sálfræð-
ingana. Þeir þekkja barnið sitt og
eru öllum öðrum færari um að
hjálpa þvi, vegna umhyggju sinn-
ar fyrir velferð þess. Og það er
engin þörf á sálfræðingi til þess
að gera sér grein fyrir minni hátt-
ar vandamálum barna og hjálpa
þeim við að leysa þau. Sá sem
fylgist með barni í leik getur
margt af þvi lært. Fjögra ára
barn leikur kannski viðhafnar-
mikla jarðarför dögum saman og
losar sig með þvi við hræðsluna af
að sjá litinn fugl lenda i klónum á
ketti út um gluggann.
Dæmi um það, hvernig foreldr-
ar geta hjálpað barni sinu við að
leysa vandamál þess:
Karl litli, sem er sjö ára, er
mjög uppburðarlitill (eða frakk-
ur) eftir að litla systir hans fædd-
ist. Með hátterni sínu tjáir hann
ekki einvörðungu afbrýðisemi
sina, heldur einnig þörf fyrir
bliðu. Þegar hann var svona litill,
vann móðir hans úti og gaf sér lit-
inn tima til að sinna honum. For-
eldrar Karls þurfa að leyfa hon-
um aö leika smábarn við og við.
Það er hvorki kjánalegt né barna-
legt af móður hans að taka hann
stöku sinnum i faðminn og láta
vel aö honum eins og ungbarni,
þvi að með þeim hætti hjálpar
hún honum bezt. Karl leikur litið
barn og i leiknum verður hann að-
njótandi þeirrar bliðu, sem hann
skortir. Og smám saman hættir
hann að þurfa á þessum leik að
halda, þvi að hann er orðinn stóri
drengurinn á heimilinu.
Það er lika góð regla að leyfa
börnunum að leika brúðuleikhús
og aðalpersónurnar i brúðuleikj-
unum þurfa ekki alltaf að vera
ræninginn og konungurinn. Til
dæmis er hægt að leika skólann og
sunnudagsheimsókn hjá Gunnu
frænku I brúðuleikhúsi. Þegar
hlutverkum hefur verið skipt,
segir barnið margt, sem það þorir
annars ekki að segja — það talar
um ýmsa erfiðléika og bendir á
misskilning, sem það hefur orðið
fyrir.
Oft getur þaö verið harla erfitt
fyrir foreldra að heyra dóminn,
sem þeir fá, þegar barnið leikur
pabba eða mömmu, en þeir verða
að heyra hann, ef þeir vilja hjálpa
barninu sinu.
Cteara8il J
fHjukshampoo j
%. i&agstsJJ. I
Auðvitað viltu gera eitthvað ef fílapenslar
eða bólur myndast á húð þinrti, og það get-
ur þú. Þú mátt þó ekki halda að þú getir
losnað viðóþægindin á einni nóttu, það er
óhugsandi. En með CLEARASIL
og smá þolinmæði nærðu.góðum árangri.
sköljmede1
Clearasil hjálpar þúsundum
unglingum um allan heim /
nskTVéi ■ .1 W 9 CIoucogíL
wm 9