Vikan - 25.09.1975, Blaðsíða 21
„Þakkaðu guði fyrir það. Það
drepur alla sykla.”
Hann var lipur, snar og hæfur.
Eftir tuttugu minútur var allt yfir
staðið. Hann hjálpaði henni niður
af borðinu og i fötin. Hann gaf
henni nokkrar töflur i umslagi,
sem var alls ómerkt.
„Þær stóru eru penicillin,”
sagði hann. „Taktu eina af þeim á
fjögurra tima fresti næstu tvo
daga. Þær litlu eru verkjatöflur.
Taktu eina svoleiðis á tveggja
tima fresti eftir að þú kemur
heim. Farðu strax i rúmið og
liggðu þar i tvo daga að minnsta
kosti. Hafðu engar áhyggjur þó
þér blæði talsvert, það er ósköp
eðlilegt. Ef þér finnst þú missa of
mikið blóð fyrsta daginn, vertu þá
ekki með neina vitleysu heldur
hringdu i lækninn þinn. Ef móðir
þin fer að spyrja þig einhvers, þá
segðu henni að þú sért með
miklar tiðablæðingar. Manstu nú
allt þetta?”
Hún kinkaði kolli.
,,AUt i lagi,” sagði hann
bliðlega. „Þá máttu fara. Farðu
beint heim og upp i rúm. Eftir
klukkutima munu finna svo sárt
til, að þú munt óska þess að hafa
aldrei fæðst.”
Hann gekk aftur að borðinu
sinu og settist er hún gekk fram
að dyrunum. Hún sneri sér við og
horfði á hann. „Þakka þér,
læknir,” sagði hún.
Hann leit upp á hana. „Ekkert
að þakka,” sagði hann. „En
reyndu nú að læra af þessu. Ég vil
ekki þurfa að sjá þig aftur hér.”
Hún ók fjörutiu milurnar heim
til sin á skemmri tima en hálfri
klukkustund. Hún var farin að
finna til svima og máttleysis er
hún stöðvaði bilinn fyrir framan
húsið. Hún gekk rakleiðis upp i
herbergið sitt, þakklát fyrir
mannlaust hús. Hún tók eina töflu
af hvorri tegund i flýti og skreið
upp i rúm, þegar farin að skjálfa
af sársauka.
Um það bil viku seinna var hún
að aka út af bilastæði við kjör-
búðina þegar Johnny kom þar að
og lagði hendurnar á hurðina.
„Ég hef verið að hugsa, Luke”
sagði hann af karlmannlegu
sjálfsöryggi, sem henni fannst
afar ertandi. „Við skulum gifta
okkur”.
„F'arðu til fjandans, hænsna-
skiturinn þinn!” sagði hún kulda-
lega og rauk af stað með látum
svo handleggur Johnnys varð
næstum eftir.
Eftir það komst ekkert annað
að hjá henni en billinn. Um það bil
sem hún fór i menntaskóla var
hún orðin býsna þekkt á staðnum.
Hún tók þátt i kappakstrinum á
Beljubraut i hverri viku. Hún fór
að vinna svo reglulega að bæjar-
fólkið var farið að gera hana að
hetju sinni. Það fór að tala um
fitlu stúlkuna, sem skaut jafnvel
atvinnumönnunum ref fyrir rass
á kappakstursbrautinni.
Það var i fyrsta sumarleyfinu
hennar sem hún giftist. Hann var
vitanlega kappakstursmaður.
Hann var einn og niutiu, með
svart hrokkið hár, glampandi,
brún augu og besti ökumaðurinn
á brautinni. Hann kom frá vestur-
hluta Texas og dró seiminn.
„Ég held að þú og ég ættum að
ganga i hnapphelduna, litla min,”
sagði hann og leit niður til
hennar. „Svona okkar á milli
sagt, þá erum við þau bestu á
brautinni.”
Framhald i næsta blaði
TIL VMISKONAR VIOGERBA OG
lagfæringa á hverju heimili
PlPÍ CtíA*íl
mastic se»i.
HREINSIEFNI fyrir salernisskálar
Þægilegt og auSvelt f notkun, fjarlægir fitu og
óhreinindi án þess aS skaSa postulíniS.
HREINSIEFNI íyrir skolpleiðslur
Fljðtvirkt og öflugt, leysir upp efni er setj-
ast innan í leiSslur, notaS meS köldu vatni.
SkaSlegt fyrir hendurnar, notist því meS
varús.
PLASTIC SEAL
Efni sérstaklega til viSgerSa á leiSslum,
postulíni o.fl. Einnig til fyllingar t.d. undir
lakk, verSur hart semjárn, þegar þaS þornar.
ROOF & FLASHING CEMENT
Þéttiefni á þök o.fl. Bindur sig jafnt viS
heita, kalda, blauta eSa þurra fleti. Hægt aS
setja á í rigningu eSa undir vatni.
VINYL WAX sjálfgljái
Sérstaklega góBur fyrirvinylogöhnurgólfefni.
GólfiS verSur gljáandi án þess aS þaS verSi
hált.
Eiimig eigum viS hreinsilög frá sömu verk-
smiSju, ætlaSur til aS ná upp gömlu bóni og
öSrum óhreinindum.
GALVAFROID ryðvarnarefni
Galvafroid er köld galvanhúSun, og er ein
bezta fáanlega rySvörnin. Laust ryð þarf aS
hreinsaaf áSuren boriS er á, bezt er aS bera
á meS pensli.
SEELASTIK kítti
Seelastik er einkar hentugt f hvers konar smá-
viSgerSir og þéttingar t.d. í sprungur á stein,
þéttingum meS rúSum og margt fleira.
STA-PUT þéttiefni
Plastik kftti er harSnar ekki, og sprlngur því
ekki né brotnar. Hentugt til tengingar á sal-
ernisskálum og þess háttar.
HREINSIEFNI fyrir postulín
PrýSis hreinsiefni fyrir postulín, baSker,
handlaugar, veggflísar, diska og bolla
þ.e.a. s. allt postulih, en varast ber aS nota
ræstiduft, þaS skemmir glerunginn.
EPIFAST baðemalering
Efni ætlaS til viSgeröa á gömlum baSkerum
og öSru postulfhi. ÞaS er boriS ámeS pensli.
tvær yfirferSir, endist allvel.
SÓTEYÐIR
Til eySingar á sóti í olíukyndingum, þægilegur
í meSförum og árangursríkur. Getur í rtiörg-
um tilfellum lækkaS hitakostnaS.
I
ÞORinKsson & noRomnnn
Simi 11280
BnnKnSTRKT111 skúlhcötu 30
39. TBL. VIKAN 21