Vikan - 25.09.1975, Side 45
Næringarrík súpa
Að búa til reglulega ljúffenga
súpu er töluverður vandi, segja
sumir Hér er fljótleg aðferð til
þess að búa til súpu, sem flestir
hljóta að veröa ánægðir með,
allavega þeir, sem kunna að meta
súpur á annað borð. Súpan, sem
hér er talað um er spænsk að upp-
runa og hefur afar virðulegt nafn,
nefnilega Don Perros maíssúpa.
Og þá er það hráefnið: 1 dós kjöt-
súpa (ca 550 g), 1/4 dós af flysjuð-
um tómötum, 1 dós af niður-
soðnum maísbaunum, vatn,
Tabasco piparsósa og paprika.
Blandið súpuna með tómötum
og mafsbaunum og látið i pott.
Bætið siðan vatni i eftir smekk.
Bragðbætið súpuna með nokkrum
dropum af tabasco piparsósu og
papriku. Súpan bragðast best
með brauði og osti.
Kartöfluréttur
viö öll tækifæri
Kartöflurétti er hægt að búa til
með litilli fyrirhöfn, og henta þeir
við nær öll tækifæri. Hér er upp-
skrift að einum, sem engan
svikur. t réttinn þarf: 8 kartöflur,
salt, sitrónupipar, meðalstóra
púrru, 2 matskeiðar af smjöri eða
smjörliki, 1 dl af þeyttum rjóma,
2 matskeiðar kaviar, 2 hg lifrar-
kæfu, 3 tómata, 3 1/2 matskeiðar
af rifnum osti og að lokum
papriku.
Sneiðið kartöflurnar og setjið i
eldfast fat Stráið salti og sitrónu-
pipar yfir. Skerið púrruna i
smátt, steikið i feiti, og stráið
yfir. Blandið kaviar saman viö
rjómann og látið hann yfir kar-
töflurnar. Skerið tómatana og
lifrarkæfuna i smábita og leggið
ofan á. Siðast á að strá rifna ost-
inum og paprikunni yfir og hita
réttinn i 250 gr. heitum ofni,
þangað til kartöflurnar eru
orðnar meyrar. Gott er aö
skreyta með harðsoðnum
eggjum.
<