Vikan - 29.04.1976, Síða 12
NAFNLAUST BRÉF FRA
ÁSKRIFANDA.
Ég hef skrifað þér einu sinni
áður, en ég fékk ekkert svar, en nú
krefst ég þess að fá svar sem fyrst.
Annars hattti ég að vera áskrifandi
að Vikunni, en ég vona samt, að ég
sleppi við að segja henni upp.
Mig langar til að leggja fyrir þig
nokkrar spurningar:
1. Hvaða skóla þarf að fara í til
þess að læra hjúkrun? Og hvað
er hjúkrun langt nám að gagn-
frseðanámi meðtöldu.
2. Hvaða einkunnir þarf til þess
að komast í hjúkrunarnám?
3. Hvaða mánaðardag eru Steve
Hodson og Gillian Blake
fædd?
Þú veist Dóra og Stefán úr
Kaplaskjóli?
4. Hvernig eiga bogamaður
(kvk.) og fískur (kk.) saman?
5. Hvernig er skriftin og stafsetn-
ingin og hvað lestu úr skrift-
inni? Hvað heldurðu, að ég sé
gömul?
Jæja, þetta er nóg, en mundu
eftir aðvöruninni? Áskrifandi.
Það er ekki von, að þú hafir
fengið svar við fyrri hréfum, því að
það er neer undantekningarlaus
regla Póstsins að svara ekki nafn-
lausum bréfum. Þð þorir hann vart
annað en geraþá undantekningu að
svara þessu bréfi þínu, því að
ógnanir þínar allt að því skelfa
hann. Reyndar dregur Pósturinn t
efa, að þú sért áskrifandi að
Vikunni, því að þú ert nokkuð ung,
að árum til að vera það, varst
sennilega fermd ífyrra. Hjúkrunar-
nám er alllangt, ef þú œtlar að telja
gagnfrœðanámið með. Hjúkrunar-
skóli íslands tekur nefnilega ekki
inn nemendur fyrr en að loknu að
minnsta kosti tveggja vetra námi í
framhaldsdeildum gagnfrœðaskól-
anna og æskilegast finnst forráða-
mönnum skó/ans, að nemar hafi
stúdentspróf. Sjálft hjúkrunarnám-
ið tekur ncer fjögur ár.
Svo skemmtileg vill til, að þau
Steve og Gillian eiga sama afmaslis-
dag. Þau eru bæði fcedd 31.
febrúar, en Steve er tveimur árum
eldri. Hann er fœddur 1946 eftirþví
sem við höfum komist nœst, en
frökenin 1948.
Skriftin er óttalega ólœsileg og
Ijót, en stafsetningin hreint ekki
afleit. Þú mættir vanda málfar þitt
meira en þú gerir í þessu bréft. Úr
skriftinni vil ég lesa sem minnst, því
að hún er ómótuð ennþá. Bogmað-
ur og fiskur eiga sæmilega saman.
...HRÓKUR ALLS FAGNAÐAR.
Háttvirti Póstur!
Eg þakka ágætt efni í Vikunni,
þó sérstaklega framhaldssögurnar
Dibs og Marianne.
Erindið, sem ég á við þig, er
svolítið flókið. Það er þannig, að ég
hef í mörg ár verið að reyna að
breyta sjálfri mér. Ég er feimin og
það er það, sem að er. Ég hef farið
að heiman til að kynnast nýjum
krökkum og hef alltaf ætlað mér að
vera skemmtileg, en það fer alltaf á
annan veg. Þegar ég fer á ball, sit ég
oftast nær úti í horni og bíð eftir
„dansboði”, þó ég hafi ætlað mér
að vera á gólfinu (dansgólfinu) allt
kvöldið. Og nú langar mig, kæri ■
Póstur, að biðja þig um hjálp.
Hvað á ég að gera? Hvort er
réttar. af mér að hugsa ,,það getur
hver sem er hafa sagt þetta” (ef mig
langartil að segja eitthvað) eða ,,ég
þori ekki að segja þetta”?
Með fyrirfram þökk.
Ein sem er í vandræðum
með sjálfa sig.
Vandamál þitt er sennilega þess
eðlis að það eldist af þér, en það
reynist þér sannarlega nógu erfitt á
meðan þú gengur í gegnum ungl-
tngsárin. Hafðu hugfast að þetta
hefst ekki á nokkrum dögum,
heldur kemur smám saman. Póst-
inum virðist þú einmitt breyta
hárrétt með því að gera þér grein
fyrir vandanum og reyna að upþ-