Vikan - 29.04.1976, Síða 14
FEDn FÚSKARI HELDUR ÁFRAM VIÐ AÐ
KOMA UPP HÖLLINNI SINNI. AÐ ÞESSU
SINNI ÆTLAR HANN AÐ DÚKLEGGJA
GÓLFIÐ MEÐ ÓBILANDI KJARKI OG
BJARTSÝNI - OG GÓLFDÚK. EINS OG
ENDRANÆR NÝTUR HANN AÐSTOÐAR
ÞORRA VINAR SÍNS ÞRAUTGÓÐA OG LES-
ENDUR GETA TREYST RÁÐLEGGINGUM
HANS, ÞVÍ HANN ER FAGMAÐUR Í ÖLLU.
MEÐ BRÉF UPPÁ ÞAÐ.
— Dúk? Nei fjandinn fjarri mér, sagði Feddi
einn morguninn við Konnu konu sína og saup
hveljur, þegar hann gleypti vænan skammt
af raksápunni, sem hann hafði klínt á kjálkann.
— Ég er búinn að panta teppi á alla helvítis
höllina eins og hún leggur sig — út í horn —
og kamarinn líka, og ryksugan kemur uppúr
mánaðamótunum. Og ef það nægir þér ekki,
Konna, þá geturðu bara...
— Hverskonar læti eru þetta, maður. Ég
held þú sért ekki með öllum mjalla á morgn-
ana, Feddi minn. Komdu nú hingað og fáðu
þér egg og beikon, góði minn. Og þegiðu
svo — hún sagði síðustu orðin það lágt, að
hún var viss um, að Feddi heyrði þau ekki,
því þá mundi hann springa. Alveg.
En þegar Feddi hafði lætt upp í sig fyrstu
eggjarauðunni, hélt hún áfram. — Ætlar þú að
taka að þér að ryksuga eggjarauðurnar af
eldhúsgólfinu, þegar þú ert búinn að mála það
á morgnana?
Fedda svelgdist á rauðunni, svo hún spýttist
út um allt gólf. — Sjáðu bara. — Þetta er allt
þér sjálfri að kenna, kelling, hrópaði hann
og dembdi stórri beikonsneið upp í sig. — Og
hver heldurðu eiginlega að fáist til að fara að
dúkleggja heilt eldhúsgólf? Heldurðu bara, að
ég sé einhver fjölmilli eða hvað, eða ætlastu
til að ég geri það sjálfur? Já, auðvitað.
Hvemig spyr ég, tautaði hann svo, það er
jafngott á mig að fara að skríða eftir öllu
eldhúsgólfinu...
— Æi, góði vertu ekki að þessu, Feddi
mirin. Þú veist það sjálfur, bla,bla,bla,bla,bla
o.s.frv. og annað í sama dúr — saqði Konna.
Og Feddi gafst strax upp. Hann þekkti
Konnu. Hann vissi, að ef hann þegði ekki eins
og steinn, mundi hún bia-blaha fram eftir
degi og allt enda á sama veg.
Jæja, semsagt. Nú vitið þið af hverju Feddi
var mættur í dúkadeildinni hjá ,,Dúkar og
Fóður" hf. seinna um daginn með stóra tösku
með peningum undir hendinni og stórt spurn-
ingarmerki í augunum. Honum voru sýndar
svona gólfdúkar og hinsegin gólfdúkar, og eftir
að hafa horft á tvær gerðir af hinsegin
dúkum dálitla stund sagði hann virðulega:
Þessir dúkar eru í raun og veru dáldið
hinsegin. Lommér að sjá svona dúka — og
benti út í horn. Svo ákvað hann að kaupa einn
svona dúk, með tígulsteinsmunstri í kross.
Honum datt í hug, að Konna yrði rangeygð,
þegar hún færi að þvo munstrið, og það geröi
útslagið.
— Já, herra minn. Sjálfsagt, — sagði
afgreiðslumaðurinn og náði í hnífinn. — Hvaða
lengd?
Feddi tók upp blað og blýant. — Þrír og
tuttugu hver lengd, tautaði hann. Þorri sagði
mér að taka minnst 5 sm í viðbót á hverja lengd
til að gera ráð fyrir hornskekkju (hornskekkju!
Höllin er sko eKki hornskökk, skal ég segja þér.
Jæja það er best að láta hann ráða.) Þrír
tuttugu og fimm þá. Mínus 1,36 fyrir skápnum
plús 2,67 vegna útskotsins við ganginn og ...
— hvað er hann annars breiður?
— Þessi er 2 metrar á breidd, en hinn
2,75,-
hreinsar allt gólfið. Ef einhverjir olíu- eða
fitublettir eru á gólfinu, verður þú að ná þeim
af, hvernig sem þú ferð að því. Síðan tekur þú
dúkrúlluna, leggur hana á gólfið og rúllar
dúknum út svo hann liggi flatur. Það er svo
best fyrir þig að láta hann liggja svoleiðis yfir
nóttina til þess að hann aðlagist hitanum í
herberginu. Venjulega þarf til þess eina 4—5
tíma minnst. Ef þú getur ekki lagt dúkinn allan
flatan, skaltu bara losa um rúlluna og láta hana
liggja þannig yfir nóttina.
— Já, tveir metrar, já. Tvær breiddir gera
fjórir metrar. En nú er gólfbreiddin ekki nema
370. Ég verð þá víst að kaupa tvær breiddir
á lengd. 6 metrar og 50 sm. Svo verð ég að
gera ráð fyrir einhverju aukalegu til að
munstrið geti fallið saman. Heyrðu vinur,
ég held það best, að þú kalkúlerir þetta fyrir
mig, — sagði Feddi við afgreiðslumanninn.
Þegar dúkurinn hafði verið vandlega skor-
inn niður, spurði Feddi um lím, eins og Þorri
hafði uppálagt honum að gera, því það getur
verið um ýmsar límgerðir að ræða, og af-
greiðslumennirnir eiga að segja þér hvaða lím-
tegund á við dúkinn, — og að svo búnu
opnaði Feddi töskuna og fór að telja.
— Jæja, ég er kominn með dúkinn, sagði
Feddi í símann við Þorra, þegar hann kom
heim. — Og heila helvítis glannatunnu af lími.
Á ég svo bara að hella úr tunnunni á gólfið og
demba dúknum á, eða hvað?
— Vertu nú aldeilis rólegur, Feddi minn.
Líttu nú á. Þú dúkleggur ekkert í kvöld,
vinurinn. Fyrst ferðu út í höll með góðan
gólfkúst og jafnvel sköfu til að hreinsa skítinn
vel af gólfinu. Svo sópar þú vel og vandlega og
— En get ég þá ekki skorið dúkinn til í
kvöld?
— Nei, bíddu með það til morguns, ef
dúkurinn skyldi eitthvað breytast í hitanum.
Þér liggur hvort sem er ekki svo á. Annað
kvöld getur þú svo farið í að skera dúkinn til.
Þá verður hann líka orðinn viðráðanlegri. Áður
en þú ferð að skera dúkinn, er ábyggilega best
fyrir þig að gera teikningu af gólfinu. Þá
verður þú að hafa tommustokk og mæla allt
nákvæmlega. Mæla og teikna öll út- og
innskot og skrifa við það málið. Vertu nú
nákvæmur og gerðu þetta vel, svo þú
eyðileggir ekki dúkinn. Þú verður jafnframt að
muna eftir að skera hann þannig til, að
munstrið passi saman.
— Svo Konna verði ekki rangeygð?
— Svo þú hellir ekki úr kokteilglasinu,
maður. Jæja, svo ferðu úr skónum og í inni-
skóna...
— Ég ætla ekki að sofa í eldhúsinu, enda sef
ég aldrei'í inniskónum..
— Nei, ég veit það. En ég held það sé betra,
að þú sért í inniskónum heldur en engu, því ég
veit, að þú ert svo skítugur á löppunum. Svo
14 VIKAN 18. TBL.