Vikan - 29.04.1976, Page 15
OÚK
átt þú að sópa gólfið og hreinsa VEL og
vandlega, helst með litlum kústi. Síðan leggur
þú dúkinn á — þegar þú ert þúinn að skera
hann til — og fullvissar þig um, að hann passi
vel. Síðan tekur þú hann af aftur og ferð með
hann út úr kokkhúsinu og leggur hann á
einhvern hreinan stað — ef hann er þá til. Svo
tekur þú límspaðann — þú keyptir hann, var
það ekki? Með réttri tannastærð. Var af-
__ greiðslumaðurinn með rétta tannastærð?
— Eldhúsdúk? Hvað ertu að rövla, maður?
Þú veist, að ég ætla að hafa teppi alls staðar
nema þar. Hún Konna heimtaði að...
— Baðstu um eldhúsdúk?
— Baðstu um. Baðstu um. Hvað áttu við,
eiginlega?
— Ég á við, að það eru til allskonar dúkar.
Svona dúkar og hinsegin dúkar. Sumir eru
ætlaðirtil að hafa á stigum, sumir á eldhúsum,
sumir á göngum o.s.frv.
— Já, þetta er allt í lagi vinur. Ég keypti
svona dúk. Pakkinn kemur í fyrramálið. Viltu
hafa það sömu tegund og síðast?
— Ég vil ekki nein helvítis „svona" tegund.
Ég vil hinsvegin, þú veist.
— Ókey, Þorri minn. Heyrðu, Þorri.
— Mér sýndist hann bara vera alveg
t tannlaus. Alla vega ef dæma má eftir því
j hvernig hann kjaftaði.
— Ég á við rétta tannastærð á spaðanum,
fáviti.
— Já, já, já, Þorri minn. Ég bað um rétta
tannastærð.
— Jæja, vertu ekki alltaf að tefja mig. Þú
berð límið á gólfið með spaðanum og dreifir vel
úr því. Þú berð bara undir eina lengd í einu.
Svo setur þú dúkinn á og þrýstir honum vel
niður í límið og passar vandlega, að engar
loftbólur leynist undir dúknum. Ef eitthvert
horn dúksins eða endar vilja rúllast upp, máttu
leggja ofan á hann eitthvað, en alls ekki neitt
þungt. Nú, svo ferðu bara eins að með það,
sem eftir er af dúknum. Búið spil. Þetta er
enginn vandi, maður. Bara gera það vel og
vandlega. Þú mátt svo senda mér þennan
venjulega pakka með m'orgunpóstinum, ef þú
vaknar, Feddi minn. Heyrðu, Feddi. Þú ert
búinn að kaupa dúkinn, segirðu. Keyptirðu
eldhúsdúk?
— Já, ég er hérna ennþá.
— Hún Konna var að tala um...
— Hana nú. Fékk Konna nú málið?
— ...að ég ætti kannski að betrekkja borð-
krókinn. Hvort á ég þá að bera límið á vegginn
eða „trekkið"?
— Ef þú ætlar að tala um betrekk, þá skaltu
tala við veggfóðrara, skal ég segja þér. Það
heitir nefnilega veggfóður. En þegar þú kaupir
veggfóður, skaltu bara spyrja afgreiðslumann-
inn — þennan tannlausa — hvort eigi að bera á
vegginn eða fóðrið.
— Hann er ekki tannlaus. Ég sá það, þegar
hann tók á móti peningunum.
— Og ef á að bera á veggfóðrið, þá klippir
þú auðvitað lengjurnar til fyrst og athugar, að
mynstrið passi, berð síðan á hverja lengju fyrir
sig, en leggur þær síðan til hliðar með
límhliðina saman, til helminga. Svoleiðis eiga
þær að liggja í 3—4 mínútur, áður en þú tekur
þær sundur og festir þær á vegginn. Sendu
hann helst fyrir 10.
— Senda hvern?
— Þennan hinsegin.
- Þ... hins...? KARLSSON.
NÝRGRUND-
VÖLLUR VÍSI -
TÖLU BYGGING-
ARKOSTNAÐAR
i desember 1975 samþykkti Alþingi frumvarp
til laga um nýjan grundvöll vísitölu byggingar-
kostnaðar. Samkvæmt þeim er hafinn
útreikningur með grunntölu 100 í október
1975, og í þeim sama mánuði var eldri vísitalan
reiknuð í síðasta sinn.
Vísitala byggingarkostnaðar hefur verið
reiknuð síðan 1914:
Með lögum nr 25/1957 var ný vísitala
byggingarkostnaðar sett á laggir. Grundvöllur
hennar var í gildi til hausts 1975, er hin nýja
vísitala tók við.
Byggingarkostnaður er mikilvægur þáttur í
hagkerfinu og þarf því að vera tiltæk sem best
vitneskja um hæð hans og samsetningu, og
um breytingar, sem á honum verða. Auk þess
hefur þessi vísitala verið notuð sem tæki til
hagnýtra verkefna, annars vegar samkvæmt
ákvæðum í lögum og reglugerðumog hins
vegar samkvæmt ákvæðum í samningum aðila
um, að tilteknar fjárgreiðslur skuli fylgja
breytingum visitölunnar.
Fyrst komu lagaákvæði, þar sem heimilað
var eða gert skylt, að vátryggingarverð húsa
breyttist samkvæmt vísitölu byggingarkostn-
aðar.
Samhliða þeim ákvæðum, var kveðið svo á í
lögum, að við sölu á íbúðum félaga í
byggingarfélögum verkamanna og í bygging-
arsamvinnufélögum skyldi söluverð ákveðið á
grundvelli breytinga, er orðið hefðu á vísitölu
byggingarkostnaðar. Hliðstæð ákvæði um
notkun vísitölunnar við sölu á íbúðum innan
byggingarsamvinnufélaga eru í lögum um
opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í
kaupstöðum og kauptúnum. Um efni þessara
ákvæða vísast til viðkomandi laga.
Þá hefur vísitala byggingarkostnaðar verið
notuð við almenna samningsgerð í vaxandi
mæli. Þannig er i mörgum húsaleigusamning-
um kveðið svo á, að leiga skuli fylgja vísitölu
byggingarkostnaðar. Ekki eru nein ákvæði um
þessa vísitölu í lögum eða reglugerð, og
byggist því notkun hennar í samningum
einvörðungu á samkomulagi aðila þar að
lútanai.
Á undanförnum árum hefur kveðið meira og
meira að því, að í samningi verktaka og
verkkaupa væri kveðið svo á, að greiðslur
samkvæmt honum skyldu fylgja vísitölu bygg-
ingarkostnaðar. Hefur þörf fyrir slíka verð-
tryggingu aukist með vaxandi hækkun bygg-
ingarkostnaðar á seinni árum. Enn fremur
hefur allmikið kveðiðað því, að byggingarfyrir-
tæki seldu ófullgerðar íbúðir og jafnvel íbúðir á
fyrsta stigi byggingar með því ákvæði, að
íbúðin skyldi afhendast fullgerð og með
söluverði, er fylgdi hækkun visitölu byggingar-
kostnaðar til afhendingartíma.
Vísitala byggingarkostnaðar er áfram reikn-
18. TBL. VIKAN 15
I