Vikan - 29.04.1976, Side 16
uð fyrir aðeins eina tegund byggingar, þ.e.
fyrir íbúðarhús af algengri gerð. Raddir voru
uppi um, að æskilegt væri að koma á fót
vísitölum fyrir fleiri tegundir bygginga, en ekki
var lagt út í það. Hér skiptir það meginmáli, að
sundurgreining nýju vísitölunnar á verkþætti
og byg.^ingarstig á að bæta verulega úr þeirri
vöntun, að ekki er reiknuð vísitala nema fyrir
eina tegund byggingar.
Þá er og vísitala byggingarkostnaðar áfram
miðuð við einn stað á landinu, þ.e. Reykjavík.
Mikil vandkvæði tæknilegs eðlis fylgja því að
hafa vísitölur fyrir stað eða staði utan
Reykjavíkur, auk stórmikils kostnaðar.
Hérferá eftir stutt greinargerð um hinn nýja
grundvöll vísitölu byggingarkostnaðar.
„Vísitöluhúsið" er fjölbýlishús í Reykjavík,
nánar tiltekið eitt stigahús (endastigahús) af
Sjö fyrstu aðalflokkarnir (nr. 01 —07) skipt-
ast í tvo undirflokka, þar sem vinnuliðir eru í
öðrum og efnisliðir í hinum. Trésmíðaflokkur-
inn skiptist þó í 3 undirflokka, því að auk flokka
með hreinum vinnuliðum og hreinum efnislið-
um, er hér flokkur með efni og tilheyrandi
vinnu, sem ekki er unnin á byggingarstað. í lið
08 telst vinna stjórnanda vélar með vélavinnu,
á sama hátt og útgjaldaliðir aksturs fela í sér
laun bílstjóra og rekstur bifreiðar. Með þessari
skiptingu á vinnuliði og efnisliði er auðvelt að
reikna og birta vísitölu hvers þessara aðalþátta.
— I hreinum vinnuliðum eru aðeins laun, sem
greidd eru fyrir verk unnið á byggingarstað. —
Útgjöld til teikninga eru ósundurliðuð og
ákveðin sem hundraðshluti (4%) af heildarút-
gjöldum í flokkum 01 — 10, þar eð erfitt er að
fylgjast með breytingum á þessum útgjaldaliö
þrem í fjögra hæöa íbúðarblokk. Neðsta hæðin
erámörkumþessaðteljastjarðhæðeðakjallari. i
stigahúsi þessu eru 10 íbúðir, þrjár 2ja
herbergja, þrjár 3ja herbergja og fjórar 4ra
herbergja íbúðir. Á jarðhæð (kjallara) er ein
íbúð, geymslur, þvottahús o.fl. Bílskúrar fylgja
ekki húsinu. Flatarmál (utanmál) hússinser240
m2 og rúmmálið 2844 m3. Það er byggt í
samræmi við byggingarsamþykkt Reykjavíkur
og önnur opinber ákvæði um byggingu
íbúðarhúsa í þéttbýli. Allur byggingakostnaður
er miðaður við verðlag í Reykjavík og nágrenni.
— í hinum nýja grundvelli er allur kostnaður
við byggingu hússins, þó ekki útgjöld til
skrifstofustarfa og til fjármögnunar byggingar-
kostnaðar. Slík útgjöld er erfitt að meta og
grundvöll vantar til framfærslu þeirra.
og að sundurgreina hann. Útgjöld til lóðarfrá-
gangs eru miðuð við algengan frágang á lóð
við sambýlishús. Hér er um að ræða kostnað
við gróðurmold, þökur, afmörkun eða girðingu
lóðar, malbikun á bílastæðum, hellulagningu
gangstíga o.fl. — I opinberum gjöldum er
gatnagerðargjald stærsti liðurinn (gjald á 4ra
hæða íbúðarblokk í Reykjavík), en auk þess eru
í þessum flokki byggingar-, leyfis- og skipu-
lagsgjöld, heimæðargjöld hitaveitu og raf-
magns og iðgjald af brunatryggingu hússins í
smíðum.
Til viðbótar þessari flokkaskiptingu, er
útgjöldum vísitölunnar í hverjum flokki 01 — 10
skipt í byggingaráfanga ( því skyni, að reiknuð
verði vísitala fyrir hvern þeirra. Um er að ræða
þrjú byggingarstig, og er þau þessi:
Skipting eftir starfsgreiningu og
b yggingaráfanga.
Útgjöldum vísitölunnar er skipt í 13 aðal-
flokka, sem eru þessir.
01 Trésmíði
02 Múrverk
03 Pípulögn
04 Raflögn
05 Blikk- og járnsmíði
06 Málun
07 Dúklögn og veggfóðrun
08 Vélavinna, akstur og uppfylling
09 Verkstjórn og ýmis verkamannavinna
10 Ýmislegt (hiti, rafmagn, vinnuskúr o.fl.)
11 Teikningar
12 Frágangur lóðar
13 Opinber gjöld
/. Frá upphafi byggingar og þar ti/ hús er
fokhelt.
Fokhelt telst húsið, þegar lokið hefur verið
byggingu burðargerðar hússins og frágangi
þaks að utan (Þó án málningar) ásamt með
rennum og niðurföllum. Fokheldur stigi fylgir
og bráðabi rgðalokun útidyra og glugga (með
plasti), enn fremur frágangur utanhúslagna og
sökkla að utan og fyllingar að þeim.
//. Frá fokheidu og þar til hús er tilbúið undir
tréverk.
Við fokhelt hefur hér bæst það, er nú skal
greina: Steinskilrúm, einangrun útveggja og
þaks, varanleg glerjun, útihurð, múrhúöun inni
og úti, framlenging vatns- og skólplagna að
tækjum, hitalögn, og tenging tækja, framleng-
ing raflagna í múr og einangrun með
tengidósum og töflum, frágangur þakrenna og
niðurfalla, frágangur svala og stigahandriða,
málning úti og inni á stigagangi og annarri
sameign og fullnaðarfrágangur á stigum,
tréverk í sameign (þar með innihurðir íbúða),
fullnaðarfrágangur á raflögn í sameign, dyra-
símakerfi og sorpútbúnaður. — Hér á með
öðrum orðum að vera kominn fullnaðarfrá-
gangur á allri sameign íbúða í húsinu.
///. Lokaáfangi byggingar.
Stærstu kostnaðarliðir hér eru innréttingar,
hurðir, teppa- og dúkalögn, hreinlætistæki,
málning o.fl. — allt sérkostnaðru einstakra
íbúða. Allar hurðir í (búðumeru.úr harðviði,
stofugólf eru teppalögð, og eldavél fylgir hverri
íbúð.
Útgjaldaflokkum 11 — 13, þ.e. útgjöldum
vegna teikninga, lóðar og opinberra gjalda, er
ekki skipt í byggingarstig, þar sem þau eru
sérstaks eðiis og tilgangslítið að skipta þeim á
áfanga. — gert er ráð fyrir, að þessi
sundurgreining vísitölunnar auki hagnýt not
hennar til mikilla muna í sambandi við gerð
verksamninga o.fl.
Samkvæmt eldri vísitölu byggingarkostn-
aðar var kostnaður á rúmmetra 18458 kr., en
17838 kr. samkvæmt hinum nýja grundvelli
hennar, hvort tveggja miðað við verðlag í
október 1975. Þótt af ýmsum ástæðum sé
hæpið að bera þetta saman, er hér furöu mikið
samræmi milli byggingarkostnaðar samkvæmt
gömlum og nýjum grunni. Minnt skal á það í
þessu sambandi, að nýja vísitöluhúsið er
íbúðarblokk með 10 ibúðum, en það gamla hús
með'4 íbúðum.
Vipnulaun eru hlutfallslega minni í nýju
vísitölunni en hinni eldri, og á það sérstaklega
við um launaútgjöld til ófaglærðra verka-
manna, þótt það komi ekki fram í yfirlitinu.
Efniskostnaður er hins vegar þyngri í þeirri
nýju. Það stafar meðal annars af því, að
innréttingar eru vandaðri í nýju vísitölunni.
Mismunur á kostnaði við vélar og akstur stafar
aðallega af því, að nú er öll steypa flutt á
byggingarstað án sérstaklega reiknaðs flutn-
ingskostnaðar, en er 1955-vísitalan var sett á
laggir fylgdi mikill kostnaður flutningi steypu-
efnis á byggingarstað. Kostnaður við teikning-
ar er að verulegu leyti áætlaður í báðum
vísitölunum. Opinber gjöld eru þyngri í eldri
vísitölunni, þar eð gatnagerðargjald á gamla
vísitöluhúsinu var hærra á rúmmetra en er á því
nýja. Munurinn stafar af því, að gatnageröar-
gjald á rúmmetra er samkvæmt gjaldskrá
Reykjavíkurborgar miklu lægri á íbúðarblokk-
um en á húsum af þeirri stærð, sem gamla
vísitalan var við miðuð. — Lóðarfrágangur var
ekki meðtalinn svo nokkru næmi í gömlu
vísitölunni, en í hinni nýju er hann tekinn með
að fullu.
Það mundi taka of mikið rúm að birta hinn
nýja grundvöll vísitölu byggingarkostnaðar
með fullri sundurgreiningu, en hér fer á eftir
samandregið yfirlit starfsgreinaflokkunar, þar
sem sýnd eru heildaútgjöld við byggingu
vísitöluhússins, ásamt með skiptingu þeirra á
aðalflokka og undirflokka og eftir byggingar-
áföngum. Miðað er við verðlag á grunntíma
Vísitölunnar, þ.e. október 1975.
icr cnvnvcn oMLUrl tl I I HVAt) I ÞEbSU,
ER HANN VINSAMLEGA BEÐINN UM AÐ
LÁTA MIG VITA.) KARLSSON.
16 VIKAN 18. TBL.