Vikan - 29.04.1976, Page 28
HoF
ÞINGHOLTSSTRÆTI 1
I HOF!
er mesta úrval landsins af prjóna og heklugarni.
í hannyrðadeildinni er ótrúlega margt um að
velja af handavinnu.
MARL
ÞAÐ SEM Á UNDAN ER KOMIÐ.
Marianne d' Asselnat dóttir
enskrar aðalskonu og fransks aðals-
manns, sem tekin voru af lífi t
frönsku byltingunni, elst upp hjá
móðursystur sinnit Englandi, geng-
ur t hjónaband 17 ára viku eftir
andlát frœnku sinnar, drepur eigin-
mann sinn i einvígi í brœði yfir pvi,
að hann hafði lagt brúðkaupsnótt-
þeirra undir í spilum, flýr til
Frakklands og lendir í margvísleg-
um raunum á franskri grund, áður
en Fouché lögreglustjóri i París
kemur til hjálpar og útvegar henni
starf sem lagskona madame de
Talleyrands, gegn því að Marianne,
sem nú skal heita Mallerousse,
njósni fyrir sig um hagi þeirra hjóna
og gesta þeirra. Marianne er afar
óáneegð með njósnahlutverk sitt, og
nú hefur hún fengið þær fréttir, að
einhver óþekktur maður elti hana
stöðugt á götum úti.
Hann setti dreyr-
rauðan við þessa játningu og þótt
Marianne væri órótt gat hún ekki
annað en brosað. „Ég fylgdist með
vagninum yðar og mátti svei mér
hafa mig allan við. Svo var umferð-
inni fyrir að þakka, að ég náði
yður hjájacques og þvi næst Nitot,
en síðan hér. Þannig komst ég á
snoðir um svarta vagninn, sem ók
í humátt á eftir yður. ’ ’
,,En sá maðurinn þig?”
Gracchus-Hannibal yppti öxlum.
„Hver tekur eftir sendisveini?
Það morar af okkur hér í París og
okkur svipar mjög til hvors annars.
En hvað varðar manninn i þcssum
sapin, þá getið þér gengið úr
skugga um það sjálfar, ef þér
trúið mér ekki.”
„Hvernig?”
„Þurfið þér að reka önnur erindi
eða eruð þér á heimleið ? ’ ’
, Ja, rétt aðeins að koma við hjá
„La Reine d’Espagne” og siðan á
pósthúsið. Eftir það fer ég heim.”
„Þá getið þér séð þetta með eigin
augum. Og með augu eins og yðar,
ætti yður ekki að verða skotaskuld
úr þvi.” Gracchus-Hannibal roðn-
aði nú enn meira en áður. „Ég
ætla sjálfur að elta yður, — en
vilduð þér ekki segja mér hvar þér
eigið heima? Ef það er í Auteuil
eða Vaugirard... ”
Svipurinn á andliti hans sagði
Marianne, að ef svo væri, gætu
fætur hans ekki borið hann alla þá
lcið.
„Ég bý hjá Talleyrand fursta að
Rue de Varennes... ”
„Nú, þá undrar mig ekki, að
yður skuli vera veitt eftirför. Það eru
tóm bellibrögð þegar halti djöfull-
inn er annars vegar. Kannski cr
þetta einn af mönnum Fouchés.
En...” hann varð kvíðafullur á
svipinn, „þér eruð ckki ein úr fjöl-
skyldunni?”
„Nei, hafðu engar áhyggjur. Ég
er aðeins lesari hjá furstafrúnni.”
„Það gleður mig á vissan hátt,
en á hinn bóginn skil ég ekki hvers
vegna lögreglustjórinn lætur veita
yður eftirför.”
Marianne skildi það heldur ekki
og þess vegna var það nauðsynlegt
fyrir hana að vita, hvort tilgátur
stráksins væru réttar. Á hverjum
morgni hafðu hún nauðug viljug
afhent þjóninum Floquet skýrsluna
frá kvöldinu áður.
„Ég fer að þínum ráðum,”
sagði hún, „og hef gætur á vagn-
inum. Hvað svo sem gerist, þá
þakka ég þér fyrir. Ætlarðu að
koma og heimsækja mig einhvern
daginn?”
„Á heimili furstans? Ekki þó að
ætti mig lifandi að drepa. Ég mætti
þakka fyrir ef ég fengi áheyrn hjá
eldabuskunni. En ég mun hafa upp
á yður verði þess þörf. Segið mér
bara hvað þér heitið, ef ske kynni
að ég hefði einhverjar fréttir að
færa. Ég kann að skrifa,” bætti
hann við hróðugur.
„Prýðilegt. Ég heiti mademoi-
selle Mallerousse.”
Vonbrigði piltsins leyndu sér
ekki.
„Er það allt og sumt? Otlit yðar
er þess háttar, að þér ættuð að heita
Conde eða Montmorency. En fólk
velur sér víst ekki nafn. Verið þér
sælar mam’selle."
Gracchus-Hannibal hagræddi
bláu húfunni vandlega, brá regn-
hlífinni undir handlegginn og rölti
blístrandi afstað með báðar hendur
í vösum. Marianne var dálítið ringl-
uð út af því, sem hann hafði sagt
henni. Hún gekk hægt I áttina að
vagninum sínum, en leit út undan
sér á þann, sem stóð fyrir framan
La Petite Jeanette. Maðurinn hafði
áreiðanlega ekki séð hana þar sem
hún hafði staðið I skugga anddyr-
isins. Líklega hélt hann að hún
hefði gleymt einhverju og farið
aftur inn I húsið. Hún steig upp I
vagninn eins og ekkert hefði I
skorist, en kallaði síðan til ekilsins:
28 VIKAN 18.TBL.