Vikan - 29.04.1976, Qupperneq 38
ARNI BJARNASON
FLEYGI FERÐ
INDIANAPOLIS
Indianapolis 500 er einhver
hættulegasta kappakstursbraut í
heimi. Þrjátíu og þrír bílar fá að
taka þátt í hverri keppni.
Jackie Stewart, fyrrverandi
heimsmeistari í Formula I, keppti
í síðasta skipti á Indianapolis 1966.
Hann sagði, að ef ökumaður léti
ekki lífið í keppni, væri mikil hætta
á, að hann yrði troðinn undir.
Bílar, sem keppa í Indy 500,
eru ekki ósvipaðir Formula I bílum,
en mikið kraftmeiri. Formula I bílar
eru yfirleitt rúm fjögur hundruð
hestöfl, en bílar, sem þátt taka í
Indy 500, eru um þúsund hestöfl,
svo munurinn er gífurlegur.
— Ég hef krassað í beygju á
Indianapolis og það var hryliilegt,
sagði fyrrverandi heimsmeistari í
Formula I, Jochen Rindt, nokkr-
um mánuðum áður en hann iét
lífiðá Ítalíu. — Indianapolisbrautin
er mjög þröng, en í einni beygju
hlekktist næsta bíl á undan á, ég
sló af, steig á kúplinguna og
reyndi að bremsa, en hraðinn var
alltof mikill og brautin of þröng til
að ég kæmist framhjá, ég rakst á
steinvegg svo bíllinn brotnaði í
tvennt og þeyttist út á brautina
38 VIKAN 18. TBL.
aftur. Það eina, sem komst að hjá
mér, sagði Rindt, var að komast
út úr flakinu. Hann reif af sér
öryggisbeltin og henti sér út á
brautina, þar sem hinir bílarnir
þutu framhjá með ógnarhraða, en
rétt er Rindt hafði komist úr
flaki bílsins var keyrt á það, svo
Þetta er Duesenbergbifreið og
ökumaðurinn er enginn annar en
Eddie Rickenbacker, sem fáum
árum seinna varð einn frægasti
orustuflugmaður Bandaríkjanna
í fyrri heimstyrjö/dinni. Ricken-
backer tókst að ná tíunda sæti
i keppni, sem fram fór 1913.
Miller 91 heitir þessi bíll og hafði
285 hestafla vét með 8000 snún-
ingum. 1926 tókst Frank Lockhart
að vinna Indy 500 á Miller 91, en
Lockhart lést nokkrum árum
seinna, þegar hann var að reyna
að setja hraðamet á bíl.