Vikan - 12.08.1976, Side 22
Alois hafði lokið frásögn sinni,
sagði Ludvik óþolinmóður, ,,Því í
ósköpunum sögðu þeir okkur ekki
frá staðnum strax og gáfu upp
nákvæma tímasetningu? Afgang-
inn hefðum við getað annast
sjálfir. Ameríkanarnir halda
sennilega að við eintóma við-
vaninga sé að eiga.“
„Þetta er sjálfsagt gert í
öryggisskyni," sagði Alois. ,,Eg
kann vel að meta varkárni
þeirra.“ Hann horfði á Irinu.
,,Hún verður óhult.”
,,Nú, ekki hefur hún svo sem
verið í neinni hættu hér hjá
okkur. Jæja, litla Irina, ertu þá í
þann mund að leggja af stað.
Hvenær ætla þeir að hringja á
morgun?“
„Þeir nefndu það ekki."
„L.eyndardómsfullir andskot-
ar.“
„Því ekki það? Þeir þekkja
okkur ekki.“
„Og við ekki þá. Það er þá jafnt
á komið með okkur.“ Hann fékk
sér sopa af bjórnum. „Skelfing
var ég orðinn þyrstur, enda kom
ég fótgangandi alla leið frá Georg.
Hann á von á dreifiritinu frá þér
á morgun. Hvað eru mörg
tilbúin?"
„.Þrjú, ef til vill fjögur, ef ég
vinn i alla nótt.“ Alois stóð upp og
gekk að símanum. „Eg ætla að
segja þeim í vinnunni að búast
ekki við mér í kvöld."
„Ertu viss um , að það séu
skriftirnar, sem halda þér heima
við?“ sagði Ludvik og breitt bros
lagði undir sig ferkantað andlitið.
„Við þurfum ekki báðir að bíða
hér við símann á morgun. Ég get
séð um það og komið Irinu á
fundarstaðinn.1
„En vinnan þín?“
„Þú veist að ég get komið og
farið, þegar mér sýnist. Eg er
engum fastmælum bundinn 1 sam-
bandi við þetta starf. Þar er hvort
eð er illa launað." Hann hló og
lyfti bjórglasinu í áttina að Irinu.
„Þeir sakna mín ekki, þó að ég sé
frá í einn dag.“
„Ég vil helst vera hérna þegar
þeir hringja og kannski verður
það snemma," sagði Alois. „Ég vil
vita vissu mína." Hann hringdi í
bílageymsluna. „Eigandinn var
tékki, sem hafði dvalist í Vín
síðan 1948. Hann hafði vit á þvi að
spyrja engra óþægilegra
spurninga. Auk þess voru starfs-
menn, sem bættu upp fjarvistir
sínar án þess að krefjast auka-
greiðslna fátíðir nú á dögum.
Ludvik reis á fætur, lauk úr
glasi sínu og fór með það yfir í
litla vaskian. „Snemma
heldurðu? Þá er best, að ég sæki
bílinn og komi honum fyrir í bíl-
skúrnum hjá Anton hérna rétt
handan við hornið. Því er þá
lokið, ef þú skyldir leggja af stað
klukkan sex í fyrramálið," sagði
hann við Irinu.
„Klukkan sex?“
„Já, við verðum öll að vera
komin í háttinn klukkan tíu 1
kvöld,“ sagði Ludvik. Hann var í
góðu skapi. „Og þér er eins gott að
ljúka við þessi dreifirit," sagði
hann við Alois um leið og hann
gekk fram að dyrum. „Georg
ætlar að senda eftir þeim í fyrra-
málið.“ Aður en Alois gæti
svarað, var hann farinn.
„Hver er Georg?“
„Vinur. Hann tekur með sér
dreifiritin um leið og hann
heimsækir Prag.“
Irina tók töskuna, en skildi
peningana eftir á borðinu. „Ég
þarf ekki á þeim að halda núna og
líta má á þetta, sem örlítið endur-
gjald vegna alls sem þú hefur
fyrir mig gert.“
Alois hristi höfuðið, brosti og
tók seðlana og smámyntina af
borðinu. „Þú skalt aldrei ferðast
án peninga, jafnvel ekki þó að þú
sért meðal vina.“ Hún er of
hrekklaus, hugsaði hann. Hvernig
gat kona, sem hafði þjáðst eins og
hún hlaut að hafa gert, átt eftir
nokkurt trúnaðartraust. Var þaö
þetta, sem hafði blindað hana
fyrir Jiri Hrádek? Var það
trúnaðartraust, trú á villigötum
eða kjánaskapur hins ástfangna?
Ef við sjáumst aftur síðar, kemst
ég kannski að hinu sanna. Þá
þraut gæti verið gaman að leysa.
„Ég ætla að láta niður í
töskuna," kallaði Irina úr svefn-
herbergisdyrunum. „Síðan fáum
við okkur kvöldmat."
„Ekkert liggur á,“ svaraði hann
og byrjaði aftur að vinna.
Næsta morgun var hringt
klukkan tuttugu mínútur yfir níu.
Af tilviljun var Alois næstur
símanum. Um leið og hann tók
upp tólið, hóaði hann í Irinu.
Hún kom hlaupandi innan úr }
svefnherbergi og stóð við hliö i
hans, áður en Ludvik kom út úr |
baðherberginu. Alois dró hana til i
sin, svo að hún gæti lika heyrt
hvað sagt var. Ludvik þurrkaði !;
sér um hendurnar, henti hand- j|
klæðinu á stól og reyndi að
þröngva sér upp að þeim, en gafst
upp. Hann beið óþolinmóður, jf
þangað til hann heyrði Alois i
segja. „Já, þetta er Janocek.“ Þá »
gekk hann yfir að glugganum og
opnaði hann upp á gátt, kveikti í j
sígarettu og horfði niður á ;•
götuna. Þar var ekkert óvenjulegt
að sjá. Hann leit í áttina að litlum
búðarglugga bakarans handan
við götuna og studdi sig fram á
olnbogana, til þess að njóta ferska
loftsins. „Er þá allt á hreinu?“
spuröi hann er Alois hafði lagt
tólið á.
„Við leggjum af stað eftir fimm
mínútur. Þeir gáfu mér upp öll
vium
FJ0R í
FKHim?
®l
SF
Viltu fjör í fríinu. Allt ungt fólk á þess kosl
að gerast meðlimir í Klúbb 32, sem er ferða- og
skemmtiklúbbur ungs fólks. Starfar í samvinnu
við hliðstæðar stofnanir erlendis. Meðlimir fá af-
slátt í verslunum heima og erlendis, geta tekið
þátt í dansleikjum og hljómleikum fyrir meðlimi
á veturna og fengið 10 þús. króna afslátt í sól-
arlandaferðum þar sem dvalið er á hótelum þar
sem eingöngu ungt fólk býr, eins og Hotel 33 á
Mallorca. Vinsælar íslenskar hljómsveitir eins og
Cabarett og Paradís skemmta
Brottfarardagar i 1, 2, 3 og 4 vikna feröir.
Mallorca og Costa Brava alla sunnudaga
Costa del sol alla laugardaga.
Margar ferðir til Kanarieyja i vetur.
Aðeins fyrir þá sem vilja fjör í fríinu. Þér getið
gerst meðlimur með því að koma, hringja eða
skrifa Klúbb 32, c|o Ferðaskrifstofunni Sunnu
Lækjargötu 2, Reykjavík.
FERÐAKLUBBUR UNGA FÓLKSINS
22 VIKAN 33. TBL.