Vikan - 03.09.1976, Síða 4
ætlaði hún að gerast trúboði.
Þessi voru lífsviðhorf hennar,
þegar hún tók þátt í fegurðar-
samkeppni heima í Túnis
sautján ára að aldri. Agóðinn
rann til góðgerðarstarfsemi,
sem móðir hennar hafði umsjón
með. Claudia vann keppnina og
í verðlaun fékk hún ferð á kvik-
myndahátíðina í Feneyjum.
í Feyneyjum hvarf hún vita-
skuld i skuggann af hinum
miirgu frægu leikkonum, sem
þar voru, en hún hafði ekkert á
móti því. Hún skildi ekki ungu
stúlkurnar, sem gerðu allt þær
gátu til að verða „uppgötv'-
aðar." Kn ljósmyndari, sem
vann hjá Franco Cristaldi, tók
nokkrar myndir af henni og
sýndi yfirmanni sínum þær.
Cristaldi varð hrifinn af
þessari fallegu stúlku og i>auð
henni reynslumyndatöku. Kn
Claudia hafði engan áhuga.
Hún tók fyrstu flugvél heim til
Túnis. Hún ætlaði að verða
kennari, ekki leikkona. Enginn
skyldi fá hana ofan af því. En
Franco Cristaldi lét sig ekki.
Hann skrifaði og hann hringdi.
Um þetta leyti varð Claudia
ástfangin í fyrsta sinn. Hann
var fallegasti pilturinn í bæn-
um eins og hún var fallegasta
stúlkan. Hann líktist ævintýra-
prinsi úr Þúsund og einni nótt.
Claudia varð ófrísk og ól son-
inn Patrick. Hún hefur aldrei
látið uppi, hver er faðir hans,
aðeins sagt: — Maður, sem ég
elskaði.
Franco Cristaldi reyndi enn
að telja hana á að gerast leik-
kona, og hún lét til leiðast. Hún
fór til Italíu og skrifaði undir
kvikmyndasamning. t samn-
ingnum var meðal annars
kveðið svo á, að hún yrði að
léttast — hún yrði að vera 58
kíló. því það hæfði best hæð
hennar, en hún er 1.69 m á hæð.
I>á var kveðið svo á í samningn-
um, að hún mætti ekki lita á sér
hárið, ekki trúlofast og alls
ekki gifta sig.
ÓKUNNUR FAÐIR
Síðan hefur Claudia verið
önnum kafin leikkona. Hún
kemur alltaf á réttum tíma til
kvikmyndatöku og vinnur hlut-
verk sín vel. Þar kom, að
Franco og Claudia giftust og
Franco ættleiddi Patrick. En
lengi vel vissi umheimurinn
ekki af tilveru Patricks. Þegar
leyndarmálið lak út, varð
óskaplegt hneyksli. ítalir áttu
erfitt með að kyngja því, að
litla, sæta Claudia átti stóran
son og neitaði að láta uppi, hver
var faðir hans.
Mörgum þótti líka skelfilegt,
að Franco og Claudia bjuggu
ekki saman, þótt þau væru gift.
En þeim fannst meira máli
skipta, að samband þeirra væri
náið, þegar þau hittust, en þau
byggju undir sama þaki en
væru óralangt hvort frá öðru
sálarlega. Þetta hjónaband
entist í fimmtán ár, eða þar til
Pasquale Squitieri kenndi
henni, hvað frelsi og sjálfstæði
er. Þá gerði hún sér allt í einu
Ijóst, hve bundin hún hafði
verið og hve litla möguleika
hún hafði haft til að stjórna
eigin lífi og þroska persónu-
leika sinn.
Fræðgin og stjörnuglampinn
gerði sitt til þess að hún lét sér
nægja hlutverk laglegrar lít-
illar brúðu. En smám saman óx
óþolinmæði hennar. Henni
fannst hún hafa eitthvað fleira
til að bera og það yrði að fá að
líta dagsins ljós. Pasquale
hjálpaði henni og nú er hún
hamingjusöm.
LEITAR AÐ
NÝJU HEIMILI
Húsið sem þau búa í, er sama
húsið og Claudia bjó í ein,
þegar hún var gift Cristaldi. Nú
vill hún ekki búa ein lengur.
Hún hefur ekki gefið neina
skýringu á því.
Húsið er allt of stórt fyrir
tvær manneskjur. Þess vegna
hafa þau innréttað sér litla íbúð
í húsinu. Þar er eldhús, svefn-
herbergi, bað og stofa. Þar eyða
þau kvöldunum saman.
Pasquale skrifar kvikmynda-
handrit og Claudia vinnur að
hlntverkum sínum.
Þrátt fyrir þessa stórkostlegu
villu, eru þau að leita að íbúð í
miðborg Rómar. Kannski finnst
þeim erfitt að búa i húsi, þar
sem næstum allt minnir á
hjúskaparár Claudiu og
Cristaldis.
— En, segir Claudia, — ég
mun sakna náttúrunnar, ef ég
flyt inn til Rómar. Við verðum
að fá íbúð með garði.
BORGARHUSGOGN
UrvaL af
áklæðum.
Lítið inn,
það
borgar sig.
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavik: Borgarhúsgögn og JL-húsið.
Isafjörður: Húsgagnaverslun ísafjarðar
Akureyri: örkin hans Nóa.
Húsavik: Hlynur sf.
Neskaupstaður: Húsgagnaverslun
Höskulds Stefánssonar.
Selfoss: Kjörhúsgögn.
Keflavík: Bústoð.
SSt
ríoííÖSa
BORGAR
HÚSGÖGN
mM
Savoy.
Grensásvegi, sími 86070