Vikan - 03.09.1976, Page 13
bréfi. Áhugamál þeirra eru poptón-
list, myndataka og stelpur.
Arnfríður Friðriksdóttir, Hálsi,
Svarfaðardal, Eyjafjarðarsýslu óskar
eftir bréfaskiptum við stráka og
stelpur á aldrinum 14—16 ára.
Þðrunn Ansnes, og Guðbjörg
Sigurgeirsdðttir, Flúðum, Hruna-
mannahr. óska eftir pennavinum á
aldrinum 14—15 ára. Áhugamál
þeirra eru hestar, poptónlist og
bréfaskriftir.
Ingibjörg J. Jónsdðttir, Klaustur-
seli, Jökuldal óskar eftir pennavin-
um á aldrinum 12—14 ára. Mynd
fylgi fyrsta bréfi.
Svanborg Tryggvadðttir, Hltðar-
vegi 9, Grundarfirði og Helga
Ingibjörg Reynisdóttir, Grundar-
götu 5, Grundarfirði óska eftir að
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 12—14 ára. Áhugamál
eru margvíslcg. Mynd fylgi fyrsta
bréfi, ef hxgt er.
Leda Maira F. Barbosa e Silva,
,,La Maison Blanche", Praca Peeira
de Araujo 14, 55515- Amaraji,
Pernambuco, Brasil óskar eftir ís-
lenskum pennavinum á öllum
aldri. Hún er kennari og áhugamál
hennar eru ferðalög, ljósmyndun,
söfnun, og gítarspil. Hún skrifar
ensku, þýsku, frönsku, spönsku og
portúgölsku.
Arný Ingólfsdðttir, Dal, Grenivík
óskar eftir bréfasambandi við stráka
og stelpur á aldrinum 16—22 ára.
Hún er sjálf 21 árs.
LEIÐRÉTTING?
Ritstjóri Vikunnar
Síðumúla 12
105 REYKJAVlK:
I 29. tölublaði Vikunnar birtist
undir fyrirsögninni ,,Orð 1 fjar-
skiptabelginn” smágrein, sem m.a.
fjallar um Intelsat, alþjóðastofnun
fjarskipta um gervihnetti.
Teljum við rétt, að leiðréttar séu
vissar staðhæfingar 1 greininni.
Hlutafjáreign Bandarlkjanna, sem
er I umsjá Comsat, er 30,5% og
engin ákvæði eru um lágmarks-
hlutaeign Bandarlkjanna eða nokk-
urs aðilarríkis nema að minnsta
hlutdeild er 0,05%. Hlutafjáreign
hvers aðila á reyndar að vera I
samræmi við notkun þess á Intelsat-
hnöttunum. »
Þar að auki má geta þess, að I
æðstu stjórn stofnunarinnar hafa öll
aðildarríkin jafnan atkvæðisrétt en 1
framkvæmdastjórn fer atkvæðarétt-
ur eftir hlutafjáreign, en má þó
aldrei fara yfir 40% .
Virðingarfyllst
f.h. póst- og símamálastjóra,
Sig. Þorkelsson.
Hérá Vikunni hefur alla tíð verið
reynt að hafa það sem sannara
reynist t hverju máli. Því taldi ég
rétt að birta ,,leiðréttingu" frá
Pðst- og símamálastjðrninni, sem
okkur barst á dögunum og er hér að
framan. I bréfinu stendur, að ég
hafi verið með staðhœfingar í
greininni ,,Orð í fjarskiptabelg-
inn", en ég tel mig hafa staðgððar
heimildir fyrir öllu, sem þar birtist.
Svo að ekki leiki neinn vafi þar á
skal ég þýða heimild mína orðrétt,
eins og hún birtist í bókinnt
,,Socio/ogtsk grundbog II" eftir
Joachim lsraelgefinni út af Gylden-
dalske Boghandel, Nordisk Forlag
A.S. t Kaupmannahöfn árið 1974 í
annarri útgáfu. Þar segir á blaðsíðu
108:
,, Nœsta skref var það, að sett var
á stofn alþjóðastofnunin INTEL-
SAT (The International Space
Communication system), milliríkja-
stofnun. þarsem COMSAT, sem er
í eigu auðhringa, kemur fram sem
fulltrúi Bandaríkjanna. Nítján af
ríkustu löndum skrifuðu undir
samkomulagið. Þá var um það bil
70 þróunarlöndum geftnn kostur á
þvíaðgerast aðilar að samkomulag-
inu með þeim skiímálum, sem
ríkustu kapítalísku löndin í heim-
inum höfðu komið sér saman um. I
samkomulaginu er grein þess efnis,
að hlutur Bandaríkjanna í sameig-
inlegum sjðði og hlutfallslegur
fjöldi atkvæða megi ekkt' vera minni
en 50,6% (þegar stofnunin var sett
á laggirnar réðu Bandaríkin 61 %
atkvœða meðan Svíþjóð varð að láta
sér ncegja 0,7%). ”
Þetta fullyrðir Joachim lsrael og
ekki eru skólamenn á norðurlönd-
um vantrúaðri á orð hans en svo, að
Bestu kaupin eru heimilistæki frá
i i
Urvals norsk heimilistæki frá KPS einum
stærsta heimilistækjaframleiðanda á Norður-
löndum.
3 litir: Hvitt, Avocado, Grænt og tízkuliturinn
Karry gulur.
Einstaklega lágt verð.
P. 351 3 hellna e/davélar!hvltu ........kr. 82.340.-
P. 351 3 hellrta eldavélar / lit...... kr. 87.900.-
P. 461 4 hellna eldavélar í hvítu .... kr. 97.680.-
P. 461 4hellnaeldavélarílit............kr. 102.430.-
tigum einnig á lager kæliskápa, gufugleypa og
uppþvottavélgr í sömu litum. Greiðsluskilmálar.
Skrifið eftir myndalista.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAOASTRÆTI „? A.
SÍMI 16995.
bók han> hefur verið notuð við
kennslu í félagsfrœðum víða um
norðurlönd, meðal annars t Kenn-
araháskóla íslands. Nú má vera að
klausan t samningnum, sem getið
er um, hafi verið felld niður stðan
bókin var skrifuð, og skal ég þá vera
fyrstur manna til að halda því á
lofti. Ég á þó bágt með að trúa því
að Bandaríkin hafi getað sætt sig við
að afsala sér völdunum, sem þessi
klausa veittiþeim, nema því aðeins
að þau fengju eitthvað mikið í
staðinn. Mér þætti því vænt um að
Póst- og símamálastjórnin sendi
okkur á Vikunni afrit af samningn-
um eða vtsaði til einhverra þeirra
heimilda, sem Vikunniog öðrum eru
auðfengnar, svo að ég og aðrir
getum fitllvissað okkur um hvemig
þessu samkomulagi er háttað.
Virðingarfyllst,
Tjör.
3o. TBL. VIKAN 13
+