Vikan - 03.09.1976, Page 18
Rosabella Burch var kjölfestan í
lífi Pauls Gettys í fimmtán ár.
Hún var húsfreyja hans, án þess
giftast honum. Hún hefur aldrei
látið neitt uppskátt opinberlega
um samband þeirra fyrr en í
þessu viðtali, sem hún átti
breskan blaðamann,
skömmu fyrir dauða
Gettys, en hann lést
á síðastliðnu vori.
Hann segir hún sé fegursta kon«,
sem hann hafi séð, og hann hefur
mynd af henni í svefnherberginu
sínu. Hún segir, að hann sé hluti af
sér, og bxtir við: , ,Ég elska hann og
ég vissi ekki hvað ég ætti af mér að
gcra, ef ég missti hann. Auðvitað
langar mig að giftast honum.”
Ilann er auðugasti milljónamær-
íngur hcimsins, olíukóingurinn Paul
Getty. Hún er Rosabella Bureh,
fögur kona og fönguleg, og hún er
húsfrcyja á heimili hans, Sutton
Plate í Guilford í Surrey.
Allur hcimurinn þekkir nafnið
Getty. En heimurinn vcit lítið um
Rosabellu Bureh, sem er 43ja ára og
40 árurn yngri en hann. Hún
stendur ánægð í skugganum við
hlið hans.
Hún fæddist í Niearagua. Var
áður ein þekktasta fyrirsæta í
Evrópu, og hún er græneyg. Þcgar
við hittumst var hún klædd á
einfaldan hátt. Hún sýndi mér
húsið, sem í eru 70 herbergi, og um
leið sagði hún mér, hvernig þau
Getty kynntust fyrst fyrir næstum
sextán árum.
,,Ég get sagt þér nákvæmlega til
um daginn, því að þetta var á
afmælisdaginn hans, 15. desember
1960. Ég var á ferðalagi um Evrópu,
og þegarég kom til Englands, bauð
vinur minn mér koma með sér til
Sutton Place. Ég gerði það og hitti
Paul hér. Ég kunni strax vel við
hann. Hann var svo kurteis. Ég held
honum hljóti að hafa fallið vcl við
mig, Því þegar ég var að fara, sagði
hann: Af hverju þarftu að fara
strax? Ég hélt mína leið, en ég
gleymdi honum ckki. Svo fór mér
að leiðast, að ég skyldi ekki hafa
dvalist lengur hjá honum. Ég
skrifaði honum, og hann skrifaði
ino huo RiK
mér. Hvenær kemurðu aftur?
Hvenær kemurðu aftur? Þessi orð
voru eins og stef í bréfum hans. Ég
ákvað þvl að heimsækja hann aftut
árið eftir.
Eftir það var ég á stöðugu flakki
milli Sutton Place og heimilis míns
í Kaliforníu, 1 mörg ár, uns mér
fannst ástandið orðið hlægilegt. Ég
stóð aldrei við í minna en hálft ár
hjá Paul, svo ég flutti til Englands
fyrir fullt og allt.
Fyrir um það bil átján mánuðum
keypti Paul handa mér lítið hús
skammt frá Sutton. Það var yndis-
lcgt. því að nú hef ég stað út af fyrit
mig, þar sem ég get vcrið með
börnunum mínum.”
Börn Rosabellu eru Paul Bernard.
sem er tíu ára, og'Carolina sjö ára
dóttir hennar af seinna hjónabandi,
en hún missti seinni eiginmann
sinn. Þau eru í skóla í Sviss, en
, koma heim í leyfi á tveggja mánaða
fresti.
Fjölskyldulífið í litla húsinu er
eitt, lífið í Sutton annað. Rosabella
segir, að Sutton sé hennar annað
hcimili. Hún hefur eigið herbergi
þar, og greinilegt er, að allir
viðurkenna hana húsmóður á staðn-
um. Hún tckur á móti gestum sem
húsfreyja Gettys og situr til borðs
sem slík.
Hún verður að deila húsfreyju-
titlinum með tveimur öðrum kon-
um, sem iðulega eru nefndar í
sambandi við Getty, Margaret her-
togaynja af Argyll og Lady d’Abo.
,,Mér veitist auðveldast að taka á
móti amerískum vinum Pauls,”
segir Rosabella. ,,Það er ekki eins
formlegt og þegar enskir vinir hans
koma hingað. Þá finnst mér hann
fremur kjósa hertogaynjuna eða
Lady d’Abo. Þær fá alltaf sömu
herbergin, þegar þær koma hingað,
en þegar þær eru ekki hér, er öðrum
gestum stundum vísað þar til
sængur.” Rosabella býr hins vegar
ein að herbergi sínu, og þar gistir
aldrei neinn annar.
Stóri móttökusalurinn niðri var
ekki hitaður upp daginn sem ég
kom til Sutton og var þó kalt í
veðri, en í þessum sal kom ríkasti
maður heims til okkar til mynda-
töku. Rosabella faðmaði hann og
stjanaði við hann, gætti þess að færi
vel um hann og vandaði uppstill-
ingu hans fyrir myndatökuna.
Getty virtist kunna þessu vel,
enda kom Rosabella fram sem stolt
og ástrík eiginkona. Hann hefur
verið kvæntur fimm sinnum. Hvers
vegna giftist hann ekki einu sinni
enn? Getur verið, að það sé vegna
þess, að þvl hefur verið spáð fyrir
honum, að hann muni deyja
skömmu eftir að hann kvænist í
sjötta sinn?
Rosabella hió að spurningunni,
og hann tók hjartanlega undir
hlátur hennar. ,,Nei, nei,” sagði
hann loks. ,,Ég held bara ég sé allt
of gamall til að ganga í hjóna-
band.” Rosabella brosti fallega við
honum.
18 VIKAN 36. TBL.