Vikan - 03.09.1976, Side 20
SNORA
FUGL-
ARANS
,,Annars vegar er það náungi,
sem er alltof áhugasamur. Hann
er hér úti í bakgarðinum núna og
honum er alveg sama hvort við
sjáum hann eða ekki. Kannski eru
þeir fleiri."
„Geturðu ráðið fram úr þessu?“
„Það er ekki eins auðvelt viður-
eignar. Það er stúlkan."
„Hevrir hún til þín?“
„Nei.“
„Er hún móðursjúk eða
útkeyrð?"
„Nei, en hún hefur miklar
áhyggjur og vill ekki segja okkur
af hverju."
„Fáðu hana þá til þess,“ sagði
Krieger snöggt.
„Hvernig? Hún virðist hafa
vanið sig á að leyna hugsunum
sínum. Hún er algjörlega lokuð.“
„Spurðu hana, og þetta getur
verið mikilvægt, spurðu hana um
Alois Pokorny. Hvort hún hafi
þekkt hann? Ef svo er, segðu
henni þá að hann hafi verð
myrtur í morgun aðeins nokkrum
mínútum eftir að hún yfirgaf
húsið, þar sem hún dvaldi.
Lögreglan gat staðfest að líkið
væri af honum og ,er nú að
rannsaka málið. Taktu vel eftir
viðbrögðum hennar. Það gæti
hjálpað okkur.“
„Hvar eigum við að hittast? Eg
hélt að við myndum vera á....“
„Krieger greip frammí fyrir
honum. „Hittu mig uppi á
hæðinni við kastalann, fyrir
neðan lurninn með stðru
klukkunni. Klukkan sex?“
„Segjum það.“
„Er Jo þarna hjá þér?“
„Eg skal ná í hana."
„Nei, segðu henni bara að fara
til Lienz eins fljótt og hún
mögulega getur. Hafðu engar
áh.vggjur, hún mun ráða fram úr
því. Eg mun svo hringja til
■hennar snomma í fyrramálið á
Die Eorelle. sem er lilil notaleg
krá. Gangi þér vel." Krieger lagði
lólið á.
Jo var fremur örg næstu tvær
mínúturnar, en svo hló hún vand-
ræðalega. „Allt í lagi. Eg missti af
þessu simtali við Krieger. En
heldur hann að ég sé með vængi?
/Etlast hann lil þess. að ég aki yfir
Grossgloekner ein míns liðs? Aðra
leið kemst ég ekki frá Salzburg til
Lienz? Nei, þella er einum of
gróft."
„Hann sagði að þú myndir ráða
fram úr því."
,,()g snemma i fyrramálið?" Jo
var svo hneyksluð, að ”Yiún
gleymdi árangri sínum í sam-
bandi við Irinu. En svo tók hún
eftir áðdáun Davids. Diikkblái
kjóllinn var einfaldur og fallegur
i sniðinu. Hann féll vel að mittinu
og hún var með blágræna slæðu
um hálsinn. Þetta fór henni
prýðilega. Og eins var um kápuna,
sem m.vndi henta vel i kvöldkuli
Austurríkis. Hann veitti því
athygli, að roði hafði færst í
kinnar og varir Irinu. Ekki of
mikið, en alveg hæfilega. En
stórkostlegust var breytingin á
hárinu. Hún var komin með
dökkbrúna hárkollu og lokkarnir
náðu frá hvirfli og niður fyrir
eyru. Þetta virtist allt önnur
manneskja, en samt var hún
eðlileg. Engin leið var að þekkja
hana, nema hafa grandskoðað
hana og lagt beinabyggingu
hennar á minnið,. Þeir voru ekki
margir, sem gætu það.
„Stórkostlegt," sagði David við
Jo. Irina brosti nú raunverulega,
þegar hún Ieit á sjálfa sig í langa
speglinum.
„Mér var einu sinni ekið yfír
Grossglockner af fransmanni á
k’erraribíl. Ég var næstum frosin
í hel þarna uppi í tólf þúsund feta
hæð. Auk þess voru ótal hárnálar-
beygjur hver á fætur annarri og
ég hélt að þetta yrði mitt síðasta.“
„Hvar eru gömlu fötin?“ spurði
David Iinu. „I töskunni??“ Hún
hungaði út. en smellurnar gáfu
sig ekki. Hún jánkaði því. „Við
gelum stansað einhvers staðar
fyrir utan Durnstein .og fleygt
þeim í skógarrjóður þar. Svolítið
sunnar fáum við okkur svo eitt-
hvað að borða. Ertu svöng?"
„Dálítið."
Það var góðs viti. Klukkutíma
áður hafði hún engan mat viljað,
ekki einu sinni samloku. „Eg er
banhungraður," játaði hann. „En
fyrst verðum við að koma okkur
héðan. Jo, flýttu þér. Við erum að
bíða eftir þér."
Þá rankaði hún við sér.
„Nú. þetta er það sem við
gerum núna," sagði David og
lagði fyrir þær áætlun sína um
undankomu þeirra frá hótelinu.
„Hafið þið skilið þetta báðar
tvær? Þetta krefst nákvæmni."
Hann leit á úrið sitt. „Tíu
minútur gengin í þrjú."
„Guð minn góður,“ sagði Jo og
opnaði dyrnar á herberginu. Hún
fór að tala við einhvern, sem stóð
fyrir utan. Lítill drengur, á að
giska níu ára, vel greiddur og
andlitið skínandi, kom inn. „Þetta
er Gerhard," tilkynnti Jo. „Hann
ætlar að bera töskuna út í
Chryslerinn fyrir tiu SchiIIing Ég
lofaði honum fimm, en ég held að
eyðslueyrir okkar leyfi það sem
jaíngildir fjörutíu sentum."
„Gerir hann greinarmun á bíl-
um?“ sagði David efins.
„Heyndu hann. Hann horfir á
þá koma og fara allan guðslangan
daginn."
„Sástu dökkbláa Chryslerinn i
bakgarðinum?" sagði David á
þýsku.
„Chrysler?" sagði Gerhard og
gretti sig. hann var þá alténd
heiðarlegur.
„Hann stendur næstur
Cadillacnum," sagði David hægt.
Gerhard brosti sínu breiðasta
brosi. „Ég sá Cadillacinn."
„Chryslerinn er við hliðina á
honum. Hann er aðeins dekkri en
kjóllinn, sem þessi kona er I.
Næstur Cadillacnum. Ertu búinn
að ná þvi?“
Gerhard kinkaði kolli og tók
upp ferðatöskuna.
„Augnablik," sagði David og
rétti honum tíu Schilling. „Þú
setur töskuna í aftursætið, það er
allt og sumt. Skilið?"
„Ég þakka þér fyrir,“ sagði Jo
þegar Gerhard skokkaði af stað.
„Hann verður einhvern tima
góður langhlaupari þessi.“
„Þú líka,“ sagði David við Jo.
„Svona, láttu þig nú hverfa.“
„En reikningurinn?" sagði
hún.
„Hann er greiddur. Hvernig
hefði ég annars átt að fá vega-
bréfin aftur?"
Hún hló og var síðan horfin.
Hann leit á Irinu og hikaði.
Hafði hún raunverulega skilið
ráðagerðina?
„Ég kem á eftir þér,“ sagði hún.
„Já, en vertu f augsýn.“ Síðan
fór hann líka út úr herberginu.
Irina tók Ónáðið ekki skilti og
lét það á hurðarhúninn, en um
leið heyrði hún lykli snúið. Því
næst elti hún David um rangala
þessa völundarhúss.
Jo var nú komin út á veröndina
og Mark Bohn var enn að lepja
bjórinn. „Mér datt í hug, að við
fengjum okkur hádegisverð
saman," sagði hann.
„Seinna, en komdu fyrst með
mér". Hún teymdi hann eftir
veröndinni, en nam skyndilega
staðar, er hún kom auga á Ludvik.
„Farðu þarna upp eftir og talaðu
við manninn.þennan ljóshæxða I
bláu skyrtunni, sem hallar sér
fram á grindverkið. Sérðu hann?“
„En...“ Mark virtist á báðum
áttum.
„Talaðu við hann. Segðu
eitthvað, bara eitthvað til þess að
draga athygli hans frá bak-
garðinum. Þú ert ekki í vand-
ræðum með að tala við ókunnuga.
„Hún ýtti við honum og hann fór í
áttina að steinþrepunum. Hann
hélt áfram og rölti meðfram
grindverkinu, þangað til hann var
kominn að Ludvik Meznik. Hún
sá Mark heilsa manninum og
hann tók undir kveðjuna.
Maðurinn virtist undrandi, en
hann svaraði samt. Þeir ræddust
greinilega við. Síðan benti Mark
á svifnökkva, nýja tegund af
ferjum, sem fóru upp og niður
Danubefljótið. Ekkert vélarhljóð
heyrðist og nökkvinn lfktist
flóðöldu.í þann veginn að skella á
hamravegginn Fólkið á
veröndinni stóð upp til að sjá
betur svifnökkvann, er hann
lagðist upp að. Smástund virtist
Ludvik jafnáhugasamur og aðrir.
Því næst leit hann aftur að bif-
reiðunum I bakgarðinum, en hé'lt
siðan áfram að tala við Mark.
Skyldi þetta hafa heppnast hjá
Dave, hugsaði Jo? Ein mínúta var
ekki lengi að líða. En heppnin,
jafnvel þótt hún sé mæld í
mínútum, gat verið kraftaverki
næst.
Auðvitað, hugsaði hún, er hún
gekk aftur að borði Mark Bohns,
ef ekki hefði verið þessi stóri
svifnökkvi til þess að draga að sér
athygli Ludviks, þá hefði Mark
haft einhver önnur ráð. Hann
hefði getað lagt fyrir hann
spurningar um klaustrið, sem
stóð á hæð sunnan við Danube-
fljót og líktist eins konar virki.
Eða eitthvað varðandi
20 VIKAN 36. TBL.