Vikan - 03.09.1976, Blaðsíða 37
eins og Rolling Stones haröni við
hverja raun, já, þeir eru sannar-
legar grjótharðir.
Charlie Watts er elstur þeirra.
Hann er orðinn þrjátíu og fimm ára
og hár hans er farið að þynnast,
en það kemur ekki að sök.
Gítarleikarinn Keith Richard á
orðið sex ára son, en hann sjálfur
er svo frakkur og rótlaus, að
honum veitti áreiðanlega ekki af
uppalanda.
Hvað þá um Mick Jagger,
söngvarann, sem lætur sig ekki
muna um það að koma klukku-
stund of seint á konsertinn, en
„sjarmera" samt allt áhorfenda-
liðið upp úr skónum, svo við
liggur, aö allt ætli um koll aö
keyra.
Rolling Stones — leiðandi rokk-
hljómsveit í þrettán ár — var
stofnuð í byrjun árs 1960 í litlum
jassklúbbi í London. Þá gengu
karlmenn enn stuttklipptir og
stúlkur í síðum pilsum, þ.e.a.s.
stuttpilsatískan varð ekki til fyrr en
löngu seinna. Meðlimirnir eru nú
síðhærðir skemmtikraftar, eigin-
menn og feður. Þeir setja enn allt
á annan endann, þegar þeir koma
fram á hljómleikum og flytja: I
Can't Get No Satisfaction og
Honky Tonk Women.
Ekki alls fyrir löngu svaraði Mio
Jagger nokkrum spurningum
blaðamanns. Viðtalið fór fram að
lokinni evrópuyfirreið rollinganna
og fer hér á eftir.
Sp.: Hve lengi endast Rolling
Stones enn?
Jagger: Við vitum það ekki
sjálfir. Árið 1963 bjuggumst viö
ekki við nema tveimur árum til
viðbótar. En við erum enn í fullu
fjöri og skortir síst áheyrendur.
Sp.: Er ekki áfkáralegt aö vera
liðlega þrítugur rokksöngvari?
Jagger: Alls ekki. Það fer allt
eftir því, hve góður söngvarinn er.
Og ég er enn góður. Við erum allir
góðir. Þrátt fyrir það langar migekki
að syngja rokk alla mína ævi.
Mick Jagger er einn mesti ,,sjó-
maður" aiira tima. Þessar myndir
gefa örlitla hugmynd um ti/þrif
hans á tónleikum.
Þeir rúlla, rúlla og rúlla enn eftir
þrettán ár. Ekkert virðist geta
stöðvað þá; hvorki milljónirnar né
lúxuslífiö, sem fylgdi í kjölfar
þeirra. Og síst af öllu stöðugt
harðari samkeppni. Nei, það er
36. TBL. VIKAN 37