Vikan - 03.09.1976, Page 43
SINNEPSSÍLD.
3 dl edik (2 hl. vatn, 3 hl.
borðedik)
5—6 msk. sykur
1 barnaskeið sinnep
1 Iftill laukur
1 hrá gulrót
2 lárviðarlauf
gróftmulið allrahanda.
Edik, sykur og sinnep soðið
saman og látið kólna. Þá er þv(
hellt yfir síldina, sem sett hefur
verið í lögum með kryddinu.
SlLDAR- OG EGGJASALAT.
5 síldarflök
3 harðsoðin egg
2 dl sýrður rjómi.
Síldin skorin í teninga. Eggin
söxuð gróft. Rjóminn hrærður
upp og kryddaður með sítrónu-
safa. Blandið síldinni og eggj-
unum saman við. Stráið graslauk
og dilli ríkulega yfir.
I
SÍLDARSALAT MEÐ SKINKU.
2 síldarflök
2 kartöflur
100 gr skinka
1 sýrð agúrka (lítil)
2—3 rauðrófusneiðar
1 lítið epli
1 lítið sellerí
1 púrra
1 harðsoðið egg.
Skerið síldina í aðeins stærri bita
en í venjulegu síldarsalati. Hitt er
allt skorið í smáa bita. Blandið
öllu saman með 2 göfflum.
Blandið sósu:
2 msk. olía
3 msk. edik
3 msk. rauðvín
sykur eftir smekk
1 tsk. sinnep
1 tsk. söxuð kaperskorn
nýmalaður pipar.
Hellið yfir salatið og skreytið
með steinselju eða dilli, eggi og
púrruhringjum.
FREISTING JÓHANNESAR.
10—12 stórar kartöflur
1 stór dós gaffalbitar + lögurinn
3 laukar
4—5 msk. smjörlíki
2—3 msk. brauðmylsna
1 dl rjómi
Flysjið kartöflurnar og skerið í
þunnar sneiðar og síðan í eld-
spýtnabreiða strimla. Skolið þær í
rennandi vatni, látið renna vel af
þeim og þerrið síðan í diska-
þurrku.
Laukurinn skorinn ( hringi og
steiktur mjúkur ( helmingi smjörs-
ins. Setjið kartöflurnar í smurt
eldfast form í lögum ásamt síldar-
bitunum og lauknum. Stráiö
brauðmylsnu yfir og setjið það
sem eftir var smjörinu í smábitum
yfir. Látið vera í 225° heitum ofni í
20 mínútur, eða þar til rétturinn
hefur fengið á sig lit. Þá er
rjómanum hellt meðfram köntun-
um þannig að hann rennur undir
og niður á botninn. Látið vera
áfram I ofninum í 20 mínútur og
lækkið aðeins á hitanum. Nægir
fyrir 4—6 manns.
36. TBL. VIKAN 43