Vikan - 15.12.1977, Blaðsíða 42
að finna líkið?” og þegar ég svaraði
„ekki enn”, þá leit hann út eins og
það væri ekki nema einn dagur
síðan Charles dó, í staðinn fyrir tíu
ár.
Það var í rauninni allt, sem sagt
var i það skiptið, en nokkrum
dögum síðar lék ég golf við hann og
þá spurði hann aftur, hvort líkið
væri fundið. Ég sagði, að svo væri
ekki. Mig minnir, að hann spyrði,
hvar hann hefði dottið fram af, og
ég sagði honum það. Hann virtist
þungt hugsi það sem eftir var
morguns.”
Chris ræskti sig og hélt áfram
frásögninni.
„Það var þá, sem Martin sagði
mér, hvemig Japhael hafði brugðist
við slysinu,” sagði hann. „Hann
hafði miklar áhyggjur af, að Nanda
fyndist hann vera að endurlifa
sonarmissinn, að hann biði eftir að
líkið fyndist, eins og það væri
Charles, sem um væri að ræða.”
Martin kinkaði kolli. „Ég fann
virkilega til með honum.”
„Ég líka,” tautaði Chris, „mér
fannst líka kominn tími til að
einhver gerði það.”
„Ég skil þessar snuprur, herra
Wentworth, jafnvel þó mér finnist
þær ekki sanngjarnar,” sagði
M’pandu. „Japhael Nanda fékk
fullt eins mikla samúð landsmanna,
eins og ég fékk, það fullvissa ég þig
um.”
„Þar er ég þér ekki sammála,”
sagði Chris hreinskilnislega. „I
mínu heimalandi mundi vera sagt
um Nanda, að hann væri sjálfum
sér verstur. Hann er hrokafullur og
skortir bæði tillitssemi og kímni-
gáfu.
Þegar Charles og Danny dóu —
þú hlýtur að muna, að ég var hérna
þá, herra, — álitu margir það guðs
mildi, hvað Nanda snerti. Það gerði
það að verkum, að hann var svo
gagntekinn af sorg, að hann gat
SKUGGINN
LANGI
ekkert hleypt upp lokasamningun-
um um sjálfstæðinmyndunina.
Hann bætti við, fullur smaúðar:
„Það má vera, að þú herra, hafir
líka verið svo gagntekinn af sorg,
auk þess sem mikil ábyrgð hvildi á
þínum herðum, að þú hafir ekki gert
þér þetta ljóst.”
M’pandu leit hugsandi á svip á
Chris, en svaraði engu.
Heyrou Það er opið
hjá BLÖM & AVÖXTUM.
io skulum kotna vio
og kaupa handa
heim blðra.
Opið alla laugardaga
og sunnudaga
til kl. 6
42 VIKAN 50. TBL.
IÍAFNARSTRÆTI 3. SÍMl 1271~
BANKASTRÆTl 11 . SÍMl 23 3 r