Vikan - 03.07.1980, Blaðsíða 8
Luxembourg
Fólkið í Luxembourg virðist hafa það gott eins og
þessi mynd ber með sér. Góöir bílar, gott veður
og blóm ...
Luxembourg er ótrulega lítið land, svo
lítið að vel frískt fólk gæti leikið sér að
því að ganga yfir það þvert á einum degi og
endilangt á einum og hálfum degi.
Það er aðeins 2587 kmJ að stærð, frá
austri til vesturs eru 57 km og frá suðri
til norðurs 82 km. Keyrið i 15 mínútur
til austurs og þið eruð i Þýskalandi. Ef
þið veljið að aka mót sólu til suðurs þá
eruð þið fyrr en varir i Frakklandi. Og í
norðri og vestri, Belgía og Holland.
En það eru ekki eingöngu stuttar
vegalengdir og nálægð grannríkja sem
gerir Luxemþourg að einstæðum
ferðamannastað. Landið sjálft, sem oft
er nefnt hjarta Evrópu, er afar fallegt,
skógi vaxið að einum þriðja, hæðir og
hundruð smáþorpa sem hvert á sér sína
sögu. Kýrnar í Luxembourg eru svartar
og hvítar eins og kýrnar á svissnesku
súkkulaðipökkunum og er sama hvert
litið er, þær eru alls staðar í stórum
hópum. Enda mun vera offramleiðsla á
mjólk og smjöri í Luxembourg og kemur
engum á óvart sem séð hefur allar
kýrnar þeirra.
Ein þjóð — þrjú
tungumál
Luxembourg á sér langa sögu sem hefst
þegar Sigfroi greifi byggir kastala sinn þar
sem nú er miðborg Luxembourgar
árið 963. Enn stendur hluti af þessum
kastala. Miklir múrar voru reistir
kringum kastalann og undirgöng
grafin. Þau eru 24 km að lengd og
liggja ekki aðeins undir kastalanum
heldur nær allri miðborginni. Göng þessi
eruenn opin almenningi nema einhverj-
um hefur verið lokað af öryggisástæð-
um. Með tið og tíma varð Luxembourg-
virkið eitthvert það rammgerðasta í allri
Evrópu enda oft nefnt Gíbraltar
Þjóðarréttur í
Luxembourg
Þjóðarréttur Lu.xembourgara byggist á reyklum svínskambi og kæfu.
Islendingum þætti kæfan líklega góð en reykti svínskamburinn minnir um of á
íslenskan mat. Þessi réttur fœst t.d. í Central Molitor á Avenue de la Libertie og
kostar 455franka (6825 ísl. kr.) með öllu:
Páté du Chef (indæl kæfa með grænmeti)
Collet de porc fumé. féves de marais, pommes vapeur (revktur svínskambur,
baunir og soðnar kartöflur).
Með þessu er drukkið Riesling Crand Premier Cru úr Moseldalnum og sagt er
að fóiki líði sérlega vel að máltíð lokinni. Þrátt fyrir gæði er réttur þessi of líkur
íslenskum mat lil að vekja sérstaka hrifningu hjá landanum.
8 Vikan 27. tbl.