Vikan


Vikan - 03.07.1980, Blaðsíða 19

Vikan - 03.07.1980, Blaðsíða 19
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttír Tólfti hluti klukkan fimm. Ted bað hana líka fyrir þau skilaboð til vinar hennar að þeir hittust fyrir utan húsið hjá Ted en ekki á bar. —Það var ekki ég sem átti þá hugmynd. sagði Jóhanna. —Svo var mér sagt. Og þau höfðu ekkert meira að segja hvort viðannað. Ted stóð fyrir framan húsið og beið eftir talsmanni Jóhönnu. Hann kom í leigubifreið, hávaxinn og spengilegur ungur maður með ljóst hár. Ted áleit að hann gæti ekki verið eldri en þrítugur. Hann var sólbrenndur. i jakkafötum með bindi og hélt á þunnri regnkápu á handleggnum. Annaðhvort sýndi það karlmennsku hans eða einbera heimsku þar sem þettævar kaldur rigningardagur í New York. —Herra Kramer? Ég er Ron Willis. Hvar getum við talað saman? —Hérna. —Ef þú endilega vilt. Svo að ég byrji nú á byrjuninni þá erum við Jóhanna góðir vinir. — Til hamingju! —Ég held að ég þekki hana vel. Að mörgu leyti betur en þú, ef þú getur sæst á það. Ég held að Jóhanna hafi breyst mikið siðan þið þekktust. Ted hataði hann. Hann hataði hann fyrir útlitið, hvernig hann horfði beint i augu þess sem hann talaði við eins og hann vildi sigra hann með óbugandi sjálfsáliti sinu. Og hann hataði hann fyrir aðsofa hjá fyrrverandi konu sinni. —Við náðum saman eftir Kaliforniu- timabilið hennar ef það má orða það svo. Hún vann hjá Hertz, notuð í allt sem til féll á skrifstofunni. Hún stundaði einhvers konar sjálh könnun og einhverjir karlmenn voru með í spilinu. En ekkert alvarlegt. Svo að Jóhönnu gekk 'neldur ekki vel að mynda ný sambönd. Það var Ted nokkur huggun. —En ég sá strax að hún var ekki bara eitthvert stelpufífl sem heldur sig finna paradis i Kaliforniu. Þó það sé nú nóg af þeim. — Kannski drífa þær sig þangað út af rúsínunum. Ted ætlaði ekki að gera honum þetta neitt auðvelt. Hann leit ekki á þennan mann sem neinn vin sinn. Willis, sem nú var kominn i regn- kápuna, skalf af kulda. Og þegar Ted varð Ijóst að hann var ekki að reyna að sýna af sér neina karlmennsku sá hann að það var kjánalegt að halda þessum samræðum áfram á götunni. Hann stakk upp á að þeir færu á næsta kaffihús. Þar gleypti Willis I sig bolla af heitu súkkulaði til að ná úr sér hrollinum. — Er yður sama þó ég sé hreinskilinn, herra Kramer? —Vissulega. Og viltu ekki kalla mig Ted úr því að þú ætlar að vera svona hrein- skilinn? —Ég held að hún hafði þjáðst mjög í hjónabandi ykkar. Að lokum varð bæði hjónabandið og barnið að óleysanlegu vandamáli. Viðbrögð hennar sýna þvi mikla fljótfærni, hún braut of margar brýr aðbaki sér. —Konan vildi vera frjáls. Þetta var hennar eigin ákvörðun. —Eyrsta kvöldið sem hún sagði mér frá drengnum grét hún í þrjá tíma. Það var eins og einhver stifla hefði brostið — opinberunin á þessu barni, sem hún hafði haldið leyndu bæði fyrir mér og sjálfri sér. —Það er erfitt að halda honum leyndum. —Jóhanna fékk tækifæri til að standa á eigin fótum. Og nú hefur hún uppgötvað dálitið. Að hún gerði skyssu. Hún var of fljótfær. Mundir þú vilja halda áfram að lifa með mistökum þínum ef hægt væri aðleiðrétta þau? —Kannski er ekki hægt að leiðrétta þessi mistök. Ron, þú veist greinilega alls ekki neitt um veðrið í New York og kannski veistu heldur ekki neitt um Jóhönnu. Líf hennar hefur verið auð velt. ----Kallarðu þaðsem hún hefurgengið í gegnum auðvelt? —Heyrðu mig nú. Hún þarf ekki annað en að stynja þvi upp að hún sjái eftir hlutunum og þá er hlaupið undir bagga Z7. tbl. Vlkan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.