Vikan - 17.12.1981, Síða 24
Texti: Þórey
.Pann þriðja júlí 1971 fannst söngvari
bandarísku hljómsveitarinnar The Doors
látinn í baðkeri.
Dánarorsök var hjartasiag. Tiu árum
síðar þyrpast aödáendur hans aö gröf
hans, aðallega krakkar sem voru enn i
leikskóla þegar Morrison ók sér og
skók á sviði íkiæddur leðurgalla og tryllti
áhorfendur með Light My Fire.
Eftir dauðann var Morrison, eins og
svo margar aðrar stjörnur, tekinn í tölu
dýrlinga. Minning hans var lengi í heiöri
höfð en mörgum árum síðar hófst
dýrkun hans með eins konar „Morrison-
Doors” vakningu meðal bandarískra
unglinga.
Gífurleg aukning hefur orðið í sölu
gömlu Doors-platnanna, plaköt, bolir og
merki með myndum af Morrison rjúka
út og klúbbar eru stofnaöir.
Morrison-æðið hefur vakið furðu
margra og er skýringa leitað víða. í
kvikmyndinni Apocalypso Now eftir
Francis Ford Coppola heyrist lagið The
End, eitt frægasta lag The Doors, og það
varð til þess að útvarpsstöðvar viðsvegar
um Bandaríkin tóku að leika fleiri lög
með hljómsveitinni. Því næst kom á
markaö plata með lestri Morrisons úr
eigin Ijóðum. Platan seldist ekki sérlega
vel en vakti engu að síður athygli á
Morrison og rödd hans aftur úr
fortiðinni. Ævisaga hans, sem er skráð
af Daniel Sugerman og Jerry Hopkins
og nefnist No One Here Gets Out Alive
(Enginn sleppur lifandi héðan), kom út
1980 og brá þá svo við að bókin rauk inn
á lista yfir metsölubækur. í kjölfar þessa
spiluðu útvarpsstöðvar æ oftar tónlist
Doors og Morrisons. Krakkarnir fóru
að taka við sér og þrjár gamlar Doors-
plötur komust á vinsældalista. Nú í ár
kom á markað Doors Greatest Hits og
hún rokseldist.
En hver var þessi Jim Morrison og
hvað er það við hann sem gerir hann
goðum líkan? Hann fæddist 1943 og var
því tuttugu og átta ára þegar hann lést.
Hann mun því ekki eldast eins og aðrar
poppstjörnur og verður eilíflega ungur,
fallegur og ögrandi á svipinn. Morrison
var óstýrilátur og uppreisnargjarn. Oft
enduðu tónleikar og ferðalög með
uppþotum, látum, slagsmálum við lög-
THE DOORS: John Densmore, Robbie Krieger,
Ray Manzarek og Jim Morrison.
Jim Morrison
Sexí,
seiðandi
dáinn
dýrkaður
24 Vikan 51. tbl.