Vikan - 17.12.1981, Blaðsíða 43
Heimsókn í Lækjarás, dagvistun Styrktarfélags vangefinna
MlfiÍHHi
Gunni er kominn upp aö töflu og
búinn að leysa verkefnið sitt hárrétt.
Það hafa þau hin reyndar líka gert.
Hann gefur ljósmyndaranum leyni-
merki þegar lítið ber á og kennarinn
tekur ekki eftir neinu. Það er samt ekki
þess vegna sem Gunni segir skömmu
seinna við kennarann: „Ertu sofandi?”
Það var reyndar öðru nær, Gunni er
bara að stríða.
Hann heldur áfram: „Ef þú vilt sofa
skaltu leggja þig þarna.” Hann bendir
á dýnuna. Það er brosað í hverju
horni. En fyrr en varir er tíminn búinn
og allir gleyma þessari smástríðni.
Ninna er að sýna Halla hvað hann
á að gera i þessu verkefni. Hann er að
kljást við litina. Hann er brosmildur og
svolítið stríðinn en kannski er það
bara af því ljósmyndarinn er að trufla.
Hann er nýbúin að detta og getur þess
vegna ekki beitt nema annarri
hendinni, hin er nefnilega brotin. Það
háir honum ekki mikið og yfirleitt
gleymir hann því alveg, en samt sem
áður er ekkert grín að fást við smáa
tappana einhentur eins og þennan dag.
Hún var var brosmild eins og allir
krakkarnir úr Bjarkarási og við
kvöddum þessa kátu krakka og
þökkuðum stutt kynni. Nú var haldið í
Lækjarás. Dálítið sleipt úti viðen Halli
gengur samt sjálfur upp brekkuna og
fer nógu varlega til að detta ekki.
Þegar inn er komið tekur Guðmundur,
einn af aðalmönnunum í Lækjarási, á
móti okkur og tekur af okkur yfir-
hafnirnar. Síðan fer hersingin inn í
föndur og handavinnutíma sem er rétt
að byrja.
Ninna snýr sér nú að hinum líka og
hérna er hún að leiðbeina Bjarna
Bergssyni (Badda) við að lita fisk.
Fiskurinn heppnast Ijómandi vel og
ánægjan er svo smitandi að allir
viðstaddir eru komnir með bros út að
eyrum áður en varir. Lilli er kominn
og þeir Bragi fara að kýta, allt i góðu
þó.
í$>
51. tbl. Vikan 43