Vikan - 10.03.1983, Side 6
Línurit________
stjarnanna 1983
Eftir aö líftakturinn (biorythm-
inn) sló í gegn minnkaði áhugi
manna á stjörnumerkjum, ef
marka má efni vikublaða um
allan heim. Línuritið sem líf-
takturinn er jafnan skráður á þyk-
ir aögengilegt, fólk sér nokk hvort
það er ofan eða neðan við meðal-
lag að andlegu, líkamlegu eða
gáfulegu atgervi þá stundina.
Sumum finnst þó ekki nóg að vita
bara hvernig þeir eru upplagðir
þá stundina, eins og líftakturinn
takmarkast við, og líta aftur til
stjarnanna. Og stjörnuspeking-
arnir eru fljótir aö færa sér línurit-
iö í nyt, nú kemur ekki upptalning-
in: Þú verður í góöu formi í janú-
ar, ný kynni í febrúar, haltu að þér
höndum í mars. Nei, maöur á bara
að líta á línuritið sitt. Og til að
tolla í tískunni birtum við nú línu-
rit stjörnuspámanna fyrir árið
1983. Þrjú línurit fylgja hverju
merki: Andlegt (A), þar sést
hvernig gengur í hverjum mánuði
í ástarmálum, vináttu og félags-
málum. Síðan kemur líkamlegt
(L) línurit, þar er heilsufariö,
hugarorka og lífskraftur eða lífs-
gleði skráð eftir mánuðum ársins.
Þriðja línuritið mætti nefna ver-
aldlegt (V) línurit, ef þar er sýnd-
ur gangur fjármála, atvinnumála
og ýmissa veraldlegra ytri að-
stæðna.
Auk þess fylgir hér meö venju-
leg greinargerð í örstuttu máli um
hvert merki og síðan er bara að
leita að tákninu fyrir sitt merki
og lesa línuritin þrjú, einkennis-
stafirnir eru í miðdálki og
mánuðirnir skammstafaðir fyrir
neðan og/eöa ofan merkin. Munið
bara að ofan miðlínu er gott gengi
og neðan miðlínu það sem miður
fer.
(V)
W Hruturinn
(21.mars —20. apríl)
A þessu ári mun mörgu fargi af
þér létt og þú munt finna svör við
ýmsum spurningum sem á þig
hafa sótt, einkum varðandi heilsu-
far og líkamlegt ástand þitt. Það
eina sem hrúturinn þarf að gæta
vel að á þessu ári er að láta hugar-
flugið ekki hlaupa með sig í gönur
og á það sérstaklega við í ástar-
málum þar sem til nýrra kynna
hefur verið stofnað. Ast við fyrstu
sýn gæti verið varhugaverð.
Hrúturinn ætti aö njóta þess sér-
staklega á þessu ári að hugmyndir
og heilbrigðar lífsskoöanir eru
honum sérlega tamar og bústaöa-
skipti geta verið heppilegri á
þessu ári en mörgum öðrum —
einnig öll fasteignaviðskipti. Smá-
vægilegar fórnir gætu borgað sig.
Þaö er ekki fyrr en í deseinber
sem hrútar þurfa að fara að vara
sig í fjármálum. Yfirleitt ætti árið
að líða hratt í líf og leik og mikilli
ánægju. Gangi ykkur vel!
Nautiö
(21. apríl — 20. maí)
Þið skuluö taka þessu nýja ári
með jákvæðu hugarfari því þaö
mun reynast ykkur heilladrýgra
en það seinasta. Þó er líklega
hyggilegt að fara varlega í sakirn-
ar, einkum ef um ástar- eða vin-
áttusambönd er að ræða, og búast
ekki við of miklu í fyrstu. Reynið
heldur að byggja ykkur upp, naut,
koma öðrum í skilning um hvað
þið getið verið sæt og skemmtileg!
Ný tækifæri eru á næsta leiti. Ykk-
ur mun vegna best ef þið haldiö
áfram því sem þið hafið verið að
gera í námi eöa starfi, þetta er
ekki rétti tíminn til að skipta um
vinnu. Starfsfélagarnir (einkum
þeir sem fæddir eru í tvíbura-
og meyjarmerkinu) munu verða
áberandi í lífi ykkar á þessu ári,
ekki aðeins í vinnutíma heldur
einnig í fríum og feröalögum.
Tvíburinn
(21.maí — 21. júní)
Þið sem fædd eruð í tvíbura-
merkinu þurfiö á öllum þeim sam-
skiptum, tilbreytingu og töfrum,
sem starf ykkar, nám eða staða
hefur upp á að bjóða, að halda ef
þiö eigið að endast út áriö í því
sama. Geriö maka ykkar, for-
eldrum, ástvinum eða félögum
ekki svona erfitt fyrir með óþolin-
mæði og endalausum drifkrafti og
reynið að skilja að sumir vilja láta
reka á reiðanum. Jafnvel þaö sem
virðist fábreytilegt hefur sína
töfra. Gefið ykkur tíma til að
hugsa málið. Þegar til lengri tíma
er litið er ef til vill best að taka
ekki mikið upp í sig og þaö á líka
við í vinnunni eða skólanum. Þið
munuð hafa meira að gera en góðu
hófi gegnir og ýmislegt verður
gert í tímaþröng, auk þess sem
óvenjuleg ferðalög og spenningur
gætu þrengt tímann enn meir.
Einhverrar aðgæslu er þörf viö
brottför og komu úr ferðum. Þar
þarf helst að gæta að smáatriöum.
Krabbinn
(22. júní —22. júlí)
A þessu ári kemur í ljós að
hvorki þarf né þýðir lengur að
halda krabbanum uppi á hrósi eða
orðagjálfri. Krabbarnir verða
óvenju öruggir með sig og dugleg-
ir, og sköpunargleðin verður með
besta móti á þessu ári. Og jafn-
framt munu þeir sjálfir ákveða
hvaö þeir vilja en ekki spyrja aðra
ráða eða biðja aðstoöar. Þetta á
ekki einungis við nánasta um-
hverfi, hús og heimili, heldur enn
frekar um atvinnu, nám og opin-
berar skyldur og þar gætu
breytingar orðiö. I einkalífinu ber
nokkuð á daðri og fjöllyndi. Ein-
hverjar sviptingar verða á milli
borgaralegs hugsunarháttar og
ævintýraþrár, jafnvel svo að
krabbinn kemst í óvænta klípu.
Ljóniö
(23. júlí —23. ágúst)
Heppnin verður sannarlega með
þér í ástarmálunum á þessu ári.
Þú munt taka skjóta ákvörðun og
hlýöa eldmóðinum sem einkennir
ljónið í þessu máli. I starfi og leik
verða samböndin með besta móti
og þá mun reyna á innsæi þitt og
samstarfshæfileika. Ljóniö virðist
vita hvert það stefnir á þessu ári
og komast vel á veg. Ekki fer hjá
því að ný kynni og ný áhrif móti líf
ljónsins á þessu ári og þrátt fyrir
stöku biötíma verður mikill kraft-
ur í ljóninu og það mun færa sér
þetta allt í nyt, þó ekki án þess að
flækjast allnokkuö meir en það
kærir sig um. Sérstaklega þarf
ljónið að gæta þess að veðja ekki
öllu sínu fé á sama hest. Til að
halda fullum lífsþrótti þarf ljónið
að stunda líkamsrækt af einhverju
tagi og skipuleggja æfingar vel,
ekki sjaldnar en einu sinni í viku.
Meyjan
(24. ágúst —
23. september)
Það kemur ekkert á óvart aö
meyjan er með ýmis áform varö-
andi þetta ár. Hún ætti þó að gæta
þess að ofskipuleggja ekki. Það
er nefnilega líklegt að einhverjar
breytingar verði á fyrirætlunum
meyjunnar og jafnvel svo að
undirbúningur virðist hjákátlegur
er að því kemur. Bestu mánuðir
ársins verða júlí og ágúst. Þá er
líklegt að þú getir sinnt einhverj-
um áhugamálum og ef búsetu-
skipti eða breytingar á heimili og
fjölskyldu eru fyrirhugaðar er
þetta rétti tíminn. Meyjan þarf
líklega að sýna ástvinum og félög-
um meiri þolinmæði en hún kærir
sig um á þessu ári, annars getur
sambandið viö þá raskast. Nýir
vinir reynast ekki sem skyldi og
draumar sumarsins gætu valdiö
vonbrigðum er skyggir. Hver er
sinnar gæfu smiður.
Vogin
(24. september-
23. október)
A þessu ári gæti margt það sem
vogin hefur unnið aö og sóst eftir
oröið aö veruleika. Aukinn þroski
á tilfinningasviöinu gerir vogina
öruggari í fasi og um leið fer
árangur aö sjást, einkum í mann-
legum samskiptum og listrænni
sköpun. Persónutöfrar og jákvætt
viöhorf til lífsins, sem vogin mun
njóta á árinu, mun ekki eingöngu
afla henni vinsælda meöal vina og
í ástarmálum, heldur mun þetta
hjálpa voginni til aö komast
lengra í þroska og metorðum. Það
væri þess vegna leiðinlegt ef vogin
léti þessi tækifæri fram hjá sér
fara af því hún reyndist of
værukær. Sá sem er vakandi eign-
ast líka nýja vini. Vogin á oft eftir
að svífa í sjöunda himni á þessu
ári og má vissulega vara sig á því
aö geta aldrei sagt nei. Vinirnir
geta haft meiri áhrif en góðu hófi
gegnir og vogin þarf einkum að
vara sig á því að láta ekki etja sér
út í eitthvað gegn vilja sínum.
Sporðdrekinn
(24. október-
22. nóvember)
Þaö skiptast á skin og skúrir á
þessu ári hjá sporðdrekanum og
það verður óvenju órólegt. Svo
óheppilega vill til að sporðdrekinn
hefur lagt allt sitt traust á eina
eða fáar manneskjur, samstarfs-
mann eða vin, og þaö í nokkurri
blindni. Það er óheppilegt en samt
sem áður þýðir það ekki aö sporð-
drekinn eigi að hlaupa á eftir
hvaða orðrómi sem er. Meö forsjá
má snúa málunum á rétta braut
6 Víkan 10. tbl.