Vikan - 10.03.1983, Blaðsíða 11
d ,1
Reai Men
Don't tat
Quicbe
AGuidebooW
toAllThat
lsTruly
Masculine
Bruce Feirstein
mí&tedbyl^«
annaö í þá áttina skipti þá ekki
sama máli og til dæmis góöur bjór
þá hafa þeir þó lært að meta þetta
á sinn hátt.
En allt það sem sönnum karl-
manni finnst tilgerðarlegt, asna-
legt eöa ómerkilegt verður best
sagt með einni setningu: Sannir
karlmenn boröa ekki quice. Hvað
borða þeir þá? Sannir karlmenn
borða kjöt og kartöflur. Þeir borða
grænar baunir og hamborgara,
franskar, pönnukökur og eplapæ.
Sannir karlmenn kunna ekki að
elda mat, þeir kunna bara aö taka
hann upp úr frystikistunni. Þeir
eru aldrei í sælkeraklúbbum.
Sannir karlmenn hlusta á
Pavarotti, Rolling Stones og
Bruce Springsteen en þola ekki
Barry Manilow, Bee Gees og Kiss.
Sannir karlmenn fara í bíó —
bæði vegna þess að þeir fara
þangað með stelpunum sem þeir
eru með og líka vegna þess aö þar
geta þeir tárfellt í myrkrinu. (Þeir
hafa til dæmis gaman af Love
Story.) En vandinn er bara sá að
finna myndir við hæfi sannra karl-
manna — fyrir utan Clint East-
wood myndir og Smokey and the
Bandit VII.
Sannir karlmenn myndu til
dæmis aldrei fara að sjá Jill Clay-
burgh finna sjálfa sig í An
Unmarried Woman. Sannir karl-
menn myndu ekki fara — þótt
þeim væri boðið — að sjá A1
Pacino finna sjálfan sig í nýjustu
mynd sinni, Cruising. Og þó þeim
væri vel borgað fyrir færu þeir
ekki aö sjá Endless Love, Blue
Lagoon (Bláa lónið) eða Þætti úr
hjónabandi eftir Bergman. Satt aö
segja færu þeir aldrei á myndir
eftir Antonioni, Zeffirelli, Berg-
man, Wertmuller eða Truffaut.
Þeir færu heldur aldrei á mánu-
dagsmyndir eða kvikmynda-
hátíðir. Þeir fara á bíó til þess að
skemmta sér en ekki til þess aö
vera með neinar pælingar. Meöal
uppáhaldsmynda má nefna
Patton, Taxi Driver, Ben Húr,
Godfather, High Noon og
Spartacus.
Varðandi klæðnað og útlit hafa
sannir karlmenn eitt mottó:
„Aldrei að klæða sig eins og þú
sért aö stæla einhverja flippaða
popphljómsveit.”
Sannir karlmenn lesa ekki
bækur eins og „Velgengni og
vandaður klæðnaður”. Þeir ganga
ekki í silkiskyrtum, leðurbuxum,
fötum úr Flónni eöa Kjallaranum,
trimmgalla, kynæsandi nærfötum
og bera aldrei skartgripi. Sannir
karlmenn ganga ekki í bolum
merktum einhverri rokkhljóm-
sveit. Hverju klæðast þeir þá?
Oftast venjulegum gallabuxum
eða flauelsbuxum hversdags,
Ein af hetjum sannra karl-
manna var Al Capone. í
Chicago 14. febrúar 1929
skipaði Al Capone að láta
gera út af við erkifjandmann
sinn, Bugs Moran. Þegar
Capone var bent á að þetta
kynni að hafa í för með sér
dráp á nokkrum tugum
manna til viðbótar sagði
Capone:
„Ég sendi blóm og
kransa."
jakkafötum, skyrtu og bindi spari.
Þeir eru ekkert hrifnir af þekktum
merkjum (nema þá helst Levi’s og
því um líkt) og ganga með merkin
innan klæða.
Sannir karlmenn stunda margs
konar íþróttir en málið er ekki
hvaða greinar heldur hvernig það
er gert. Þó má segja að þeir spili
ekki míní-golf eða krikket, fari
ekki í frisbí eöa videoleiki. Þeir
fara ekki á skíði til þess að sýna
gallann og græjurnar en sannur
karlmaður getur rennt sér
gegnum snjóflóð án þess að
blikna. Uppáhaldsíþróttir sannra
karlmanna eru skíðastökk, fjall-
göngur og siglingar og því um líkt,
helst þar sem um líf og dauða er
aðtefla.
Eftir að hafa valið sér eiginkonu
í gegnum aldirnar með því aö
lemja hana í hausinn og draga
heim á hárinu hafa jafnvel þeir
þrjóskustu af sönnu karlmönn-
unum komist á þá skoðun aö þetta
sé ekki besta leiðin til þess aö ná
sér í kvenmann. Sannir karlmenn
keppast ekki við að komast yfir
sem flestar dömur. Það finnst
þeim ómerkilegt og fyrir neðan
sína virðingu.
Sönnu karlmennirnir hafa
meira að segja lært að vera ekki
lengur skíthræddir við konur sem
hafa náð langt á framabrautinni
— svo fremi sem þær hafa ekki
meira kaup en þeir.
I stuttu máli má segja að sannur
nútímakarlmaður sé aölaðandi,
upplýstur, tilfinninganæmur,
vingjarnlegur og skilningsríkur —
í þaö minnsta þegar hann hefur
þekkt konu það lengi að hann er
farinn aö taka henni sem sjálf-
sögðum hlut — eftir svona þrjár
vikur.
Nokkur fleiri atriði í sambandi
við sanna karlmenn og ástina
mætti nefna. Sannir karlmenn
vilja helst ekki gera það strax
fyrstu nóttina því þá finnst þeim
þeir vera ómerkilegir. Sannir
karlmenn tala ennþá um kynlíf
sitt í smáatriðum við nána vini
sína en krefjast algjörrar þagnar-
skyldu af kvenfólki. (Ekki þar
fyrir aö þeir þurfi aö hafa nokkrar
áhyggjur en sannir karlmenn
ætlast til þess aö kærusturnar
viröi helgi svefnherbergisins. Þeir
þola ekki að verið sé að ræða
stærð, tækni eða úthald — nema
að sjálfsögðu ef þaö staðfestir
þeirra eigin frásagnir af yfir-
náttúrlegum fræknleika.)
Sannir karlmenn kæra sig ekki
um að giftast hreinum meyjum
því þær eru svo óskaplega
fáfróðar (og sjálfsagt enn sjald-
gæfari). Sannir karlmenn vilja aö
konur kunni dálítið fyrir sér í
rúminu — en þær mega auðvitað
ekki vera klárari en þeir.
Sannir karlmenn eru fremur fá-
málir. Þeir spyrja þó enn hvort
það hafi verið gott. Þeir bjóða
dömunum gjarnan út að borða —
morgunmat. Þeir eiga það til að
senda blóm daginn eftir enn þann
dag í dag......
Hvað þarf marga sanna
karlmenn til þess að skipta
um Ijósaperu? Engan því
sannir karlmenn eru ekki
hræddir við myrkrið.
io. tbl. Vikan II