Vikan - 10.10.1985, Page 8
TÍSKA TÍSKA TÍSKA TÍSKA TÍSKA TÍSKA TÍSKA TÍSKA TiSKA
portlegur fatnaður fyrir herra
Poco-Loco er herralínan frá norsku fyrirtæki sem
selur framleiðslu sína víða um heim og meðal annars á
íslandi. Þessi fatnaður er sportlegur og skemmtilegur.
Haust- og vetrarvörurnar eru í mjög sterkum litum.
Litir eins og skærblátt, rautt og Ijósfjólublátt eru notaðir
með mildari litum og svörtu. Efnin eru ull, leður og
bómull, Jakkarnir eru miklir um axlir og frekar stuttir.
Buxurnar eru köflóttar.
Fötin frá Poco-Loco henta vel yngri mönnum sem
vilja vera sportlegir og smart.
Poco-Loco fatnaðurinn fæst í versluninni Sonju við
Laugaveg.
Sparifötin úr dökkbláu bómullar-
efni. Fóðrið er röndótt og gefur
skemmtilegan svip. Fötin kosta
5.880 kr. Hvíta bómullarskyrtan
kostar 1.940 kr.
Leðurjakki á 19.500 kr.,
ullarpeysa á 3.200 kr.
og köflóttar ullarbuxur
í grænum, fjólubláum
og svörtum litum
á 2.150 kr.
Kóngablár ullarjakki, mikill
um herðar og stuttur, á 5.850
kr. Ljósblá skyrta á 2.470 kr.
og gallabuxur á 1.850 kr.
8 Vikan