Vikan - 10.10.1985, Blaðsíða 36
Popp
Roger Taylor
stekkur aldrei bros.
Umsjón: Halldór R. Lárusson
Simon le Bon og Atlantshafið í baksýn.
ARCADIA
Það er i nógu að snúast hjá Duran Duran drengjunum. Andy og John
Taylor hafa verið uppteknir með Power Station i allt sumar og hinir þrír,
Simon, Nick og Roger, hafa haft hægt um sig i Paris þar sem þeir hafa
unnið að stórri plötu og kalla sig Arcadia. Þegar þið lesið þetta hefur litil
plata með laginu Election Day litið dagsins Ijós og stóra platan, sem óður
var minnst ó, fylgir i kjölfarið ó næstu vikum.
frá því hreina rokki sem hún
stendur fyrir. Arcadia er meira
svona (atmospheric) hvað á
maður að kalla það á ylhýra
tungumálinu, að hún sé kannski
tónlist byggð á hughrifum eða
eitthvað í þá áttina? Hvað sem því
líður er full ástæða til að bíöa
spenntur eftir útkomunni úr sam-
vinnu þessara manna en sér til
aðstoðar hafa þeir haft Andy
Taylor, saxófónleikara úr Roxy
Music (blessuð sé minning
hennar), ásláttarleikarann David
van Tieghem og jassbassaleikar-
ann Mark Egan.
Nú í sumar voru uppi raddir um
að Duran væri að leggja upp
laupana, en þeir félagar segja að
það sé tóm vitleysa, þeir séu
aðeins að útfæra tónlist sem þeir
geti ekki notað í Duran, þeir geti
leikið sér svo miklu meira ef þeir
komi ekki fram í nafni Duran.
Samt hefur þetta ekki verið
Duranlaust ár fyrir aðdáendur
þeirra því þeir gáfu út lagiö A
View to a Kill og svo komu þeir
saman á Live Aid þar sem þeir
komu ágætlega út miðað við að
hafa ekki æft neitt að ráði í langan
tíma.
Simon le Bon segir að þeir muni
eyða því sem eftir er ársins í að
auglýsa plötuna en gefur ekkert
upp um hvort þeir muni halda ein-
hverja hljómleika í nafni Arcadia
þannig að það er næsta augljóst að
nýtt efni kemur tæplega frá DD í
náinni framtíð.
Sumarið ’85 mun líklega renna
Simon le Bon seint úr minni því að
það munaði litlu aö hann léti
lífið er snekkjan hans, Drum,
fórst. Bonnarinn var í káetu sinni
þegar dallurinn snerist við og
mátti litlu muna að þar hyrfi fyrir
fullt og allt draumaprins margrar
ungrar stúlkunnar. Þyrla breska
sjóhersins bjargaði drengnum og
áhöfn hans frá blautri gröf í þetta
sinn. Ha, í þetta sinn! 0, já,
Bonnarinn hefur nú þegar lýst því
yfir að hann muni óbanginn taka
þátt í hnattsiglingarkeppni á
næsta ári, nánustu ættingjum og
vinum til mikillar skapraunar.
Þetta sjóslys Bonnarans þótti slík
stórfrétt á Englandi að mesta
flugslys sögunnar, sem varð í Jap-
an á sama tíma, féll í skuggann af
því.
En áfram með Arcadia: Þeir
félagar segja að tónlistin sé
gjörólík Power Station og sé langt
Nick Rhodes klikkar ekki ó
sminkinu.
36 Vikan 41. tbl.