Vikan


Vikan - 16.11.1939, Blaðsíða 22

Vikan - 16.11.1939, Blaðsíða 22
22 VIKAN Nr. 46, 1939 Síðan dugnaðarmaðurinn Gísli Jónsson og bæjarstjórn Isafjarðar hófu rækjuiðn- að á Vestf jörðum, hefir myndazt nýtt orð í málinu þar vestra um hreinsun og niður- lagningu rækjunnar, og er það kallað að rækja. Rétt eftir að Jónas Þorbergsson út- varpsstjóri keypti rækjuverksmiðjuna á Isafirði, sátu nokkrir reykvískir borgarar og ræddu um þennan síðasta merkisatburð í atvinnu- og kaupsýslumálum þjóðarinn- ar. Verður þá einum að orði: — Hvernig getur staðið á því, að Jónas Þorbergsson skuli einmitt fara að kaupa þetta fyrirtæki? — Jú, skilurðu það ekki, svaraði annar samstundis. — Það er af því, að þarna eru alltaf níutíu stúlkur að rækja. # Jóhannes skáld úr Kötlum tók upp þann sið að titla ljóðabækur sínar þannig, að hann tók vísu eina og lét hverja ljóðlínu vísunnar vera heiti bókarinnar. Þannig hét fyrsta bók hans: „Bíbí Og blaka“, önnur: „Álftirnar kvaka“, o. s. frv. Fyrir nokkrum dögum kom út ljóðabók eftir Jóhannes, er hann nefndi „Hart er í heimi“. Eins og sjá má af þessu, er skáld- ið þannig að fytja upp á nýju erindi til fyrirsagna á ljóðabókum sínum, og hefir hann að þessu sinni valið sér vísuna úr Völuspá, er hljóðar svo: Hart ’s í heimi, hórdómr mikill, skeggöld, skálmöld, o. s. frv. Daginn eftir að hin nýja ljóðabók Jó- hannesar kom út, hittust þeir á götu, Sig- urður Einarsson, docent og Tómas Guð- mundsson, skáld. Sigurður spyr: — Ert þú búinn að fá nýju bókina hans Jóhannesar? — Já, svarar Tómas. — Hvernig geðjast þér að henni? — Mér finnst hann engu hafa aukið við sig í þessari bók, en hinu get ég ekki neitað, að ég hlakka gríðarlega til að fá þá næstu. MAÐURINN, SEM VARÐVEITIR FLEST LEYNDARMÁLIN. Frh. af bls. 5. — Nei. Ég er ákveðinn andstæðingur þess. En hinu þori ég ekki að neita, að svo geti farið, að til þeirra ráða verði að grípa, og eiginlega eru það ekki nema eðlileg leikslok og afleiðing stjórnarfarsins í land- inu síðustu árin. En það er sorglegt til þess að hugsa og vonandi, að það komi ekki til framkvæmda, að nú verði að binda næstu kynslóð íslendinga með lögum til ævistarfa á þeim stað, er hún fæddist — eins og gert var á miðöldum. Annars fæ ég ekki skilið orsakimar til þess, að fólk hefir flutzt svo unnvörpum til Reykja- víkur á annan veg en þann, að enn séu 26. krossgáta Vikunnar. Lárétt: 1. Falskur. ■— 4. Numið. — 7. Hreykni. — 10. Stuldur. — 11. Hreyft. — 12. Áburður. — 14. Úttekið. -—■ 15. Húsdýr. — 16. Bundin. — 17. Átt. — 18. Veiða. — 19. Vísa. — 20. Stækkuðu. — 21. Peningur. — 23. Sjávargróður. -— 24. Rengir. — 25. Kvenmannsnafn. — 26. Óhljóð. — 27. Kátína. — 28. Stefna. — 29. Kliður. —• 30. Svefnlæti. — 32. Dulnefni. — 33. Pottur. — 34. Stríða. — 35. Gróð- ursetja. — 36. Hraðar. — 37. Heym- artæki. — 38. Op. — 39. Áskurður. — 41. Hlýja. — 42. Snotur. — 43. Gróða- brall. — 44. Á (fljót). — 45. Hitt. — 46. Andi. -— 47. Gælunafn. — 48. Bæjarnafn, þolf. — 50. Fæði. — 51. Hræðsla. — 52. Vændiskona. -j- 53. Skammst. — 54. Eignuðust. — 55. Steypt. — 56. Pabbi, enskt. — 57. Hæsti. — 59. Klæða. — 60. Drolla. — 61. Farga. —- 62. Hraði. — 63. Votlendi. — 64. Hugsunarleysið. Lóðrétt: 1. Þjóðhöfðingi. — 2. Gæfa. — 3. Eiga ekki. — 4. Loka. — 5. Trylla. — 6. Framkvæmdarstjóri. — 7. Spjalla. — 8. Mánuður. — 9. Skammst. — 11. Tónsmíði. — 12. Sopi. — 13. Smádýr. — 15. Víf. — 16. Faðmur. — 17. Verður. — 18. Hljómur. — 19. Trjátegund. — 20. Fiskur, þolf. — 22. Skrika. — 23. Hljóp. — 24. ‘Kvæði. — 26. Lítill. — 27. Umla. — 29. Belti. — 30. Gera hundamir. — 31. landsmenn þó þeirrar skoðunar, að hér muni vera betra að vera en annars stað- ar á landinu. — Var nokkurt atvinnuleysi í Reykja- vík, þegar þér voruð að alast upp? — Já. Þá voru flestir atvinnulausir frá hausti t'l vertíðar. Og þá hafði enginn orð á því. Fólk bjargaðist á sumarvinnunni yfir myrkustu mánuði ársins eða þangað til vinna hófst á ný. Flestir fundu sér eitt- hvað til að dunda við, sér til gagns og af- þreyingar, þó að ekki væri mikið upp úr því að hafa. Nú er talað mikið um fátækt og örbirgð hér í Reykjavík, og ég veit, að það er satt, en þá var fólk ekki síður fá- tækt og fór margs á mis. Munurinn liggur fyrst og fremst í því, að þá þögðu menn um fátækt sína og báru erfiðleika sína í hljóði, en nú tala menn upphátt um allt, sem þá vantar. 1 biðstofu borgarstjórans situr margt fólk, roskíð fólk og fólk í blóma lífsins, prúðbú’ð fó'k og tötrum klætt, og ber hver í brjósti sitt hjartans leyndarmál, sem nú á að trúa Pétri Halldórssyni fyrir — manninum með fölskvalausu barnsaug- un og þróttnrkla, hljómsterka bassaróm- inn. S. B. Ný bók. Fvrir nokkrum dögum kom út á forlagi Isafoldarprentsmiðúi hin heimskunna og viðurkennda b^k Stefan Zweig um Maríu Antomettu. drottningu, í þýð'ngu eftir Magnús Magnússon, ritstjóra. I næsta blaði verður þessarar bókar nánar getið. Glaðvært. — 33. Vestmenn, fomt. — 34. Eyjuna. — 35. Rétt. — 36. Dugleg. ■— 37. Eignast. — 38. Láta af hendi. —1 40. llát. — 41. Var valdur að. — 42. Skrautgripur. — 44. Leituðu. — 45. Ómjúlkt. — 47. Mannsnafn. — 48. Bæjamafn. — 49. Frú Ciano. — 51. -legin. Hrædd. ■— 52. Af- klæða. — 53. Sögð. — 54. Kvenmannsnafn. — 55. Ólæti. — 56. Mannsnafn, stytt. — 58. Pest. — 59. Framkoma. — 60. Skepna. — 62. Tónn. — 63. Öskur. Prentmyndastofan lÆIS’THR Hafnarstræti 17. Framleiðir fyrsta flokks prentmyndir Hin stórmerkilega bók M aria A ntoinetta er komin í bókaverzlanir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.