Vikan - 11.01.1940, Page 18
18
VIKAN, nr. 2, 1940
31. krossgáta Vikunnar.
Einar heitir maður nokkur, sem búsett-
ur er í Landeyjum. Hafði hann fyrrum
eigi fast heimili, heldur lifði þá á kaupa-
vinnu á ýmsum bæjum þar í sveitinni.
Þykir hann óhófsmaður á vín og tóbak og
kvenhollur nokkuð.
Einhverju sinni fær Einar þessa vísu í
bréfi frá stúlku þar í sveitinni:
Einar lifir eins og svín
ekkert honum fróar.
Hann vill tóbak, hann vill vín
hann vill stúlkur nógar.
Einar þrífur pennan og skrifar um hæl:
Ég þakka fyrir þetta prent,
sem þessum stóð á seðli,
en flest af því, sem þar er nefnt
þykir mannlegt eðli.
Sveinn Sæmundsson, hinn þjóðkunni lög-
reglumaður, er ættaður úr Austur-Land-
eyjum, og eru sveitungar hans mjög
hreyknir af honum. Sumar nokkurt, þegar
Sveinn var erlendis til að kynna sér lög-
reglumál, kemur bóndinn í Vatnshól, sem
Oddur heitir Þórðarson, að Krosshjáleigu
í Landeyjum. Bóndinn þar heitir Þorvald-
ur og er ræðinn og skemmtilegur karl.
Talast þeir nú við um tíðarfar og heyskap,
þar til Þorvaldur spyr Odd, hvort hann
viti nokkuð um Svein sinn Sæmundsson.
— O-jú, segir Oddur og ræskir sig, —
hann er nýlega farinn utan til þess að
kynna sér hegningaraðferðir og æfa sig í
glæpaverkum.
*
Hannes er maður nefndur Ein-
arsson. Hefir hann lengi stundað sjó-
mennsku á botnvörpungum, víða farið og
kann frá mörgu að segja, enda telja kunn-
ugir menn, að honum verði sjaldan orð-
fátt. Margt er Hannesi vel gefið en hér
verður aðeins eitt talið, sem sé, að hann
er slyngur og áhugasamur spilamaður og
spilar einkum bridge. — Eitt sinn sagði
meðspilamaður hans hálfslemm, og þegar
Hannes hafði lagt spilin sín á borðið, gekk
hann yfir til meðspilarans og leit á spil
hans. Meðspilarinn athugaði spilin dálitla
stund og segir síðán:
— Þetta stendur akkúrat.
En Hannes háfði einnig reiknað út
möguleika spilsins og hrópar upp yfir sig
hinn æfasti:
— Akkúrat? Ertu vitlaus, maður. Það
r'
stendur miklu meira en akkúrat.
RAUÐAK VARIR. Pramh. af bls. 8.
um sér. — Hann lokar augunum og reynir
að fá samhengi í það, sem hefir skeð. Hon-
um finnst seinustu mínúturnar hafa verið
eins og heil, ömurleg eilífð. — Og allt í
einu læðist óvænt, nístandi hugsun í gegn-
um sál hans. — Guð hjálpi mér, stynur
hann og reikar eins og hann væri drukk-
Lárétt:
1. bókmenntastefna. — 13. gleði. — 14. nógur. —
15. algeng skammstöfun í ættartölum. — 17.
hrindi. — 19. kvenmannsnafn. — 20. upphafsstaf-
ir ísl. skálds. — 21. skera. — 23. kjassa. — 25.
ísmyndun. — 27. aga. — 28. hrina. — 30. fjár. —
31. lána. — 32. á skipi. — 33. skammst. — 35.
for. — 36. dásama. •— 37. þæfingur. — 38. rún.
-— 40. kyrrð. — 41. verkfæri. — 42. klaki. — 44.
skakktenntur. — 46. greinir. — 47. innræti (við-
skeyti). — 49. tveir samhljóðar. — 51. hálfmelt
fæða. — 54. söngflokkur. — 56. haf. — 57. fara.
— 59. nýgræðingur. — 60. hætta. — 61. leiði. -—
62. sarga. — 64. fiskur. — 67. hugur. — 68. japl.
— 70. fastastjama. — 71. ísl. skáld. — 72. ísl.
kaupstaður (skammst.). — 73. veiðarfæri. •—• 75.
viljugur. — 76. skammst. (úr homafræði). — 77.
borg í ftalíu. — 79. finnskur stjórnmálamaður. —
81. undirhyggjulegur.
inn að borðinu. Með skjálfandi hendi dreg-
ur hann út borðskúffuna og fálmar með
titrandi fingrum eftir skúffubotninum. —
Hann dregur upp lítið spegilbrot og lyftir
því hikandi að andlitinu.
Eitt augnablik horfist hann í augu við
sjálfan sig. — Svo er eins og allt líf fjari
út í augum hans. Höndin fellur máttlaus
niður með síðunni og spegilbrotið fer í ótal
. mola á gólfinu.------Annar vangi hans
er stimplaður greinilegu merki eftir rauðar
varir ...
Forsetakostningin.
Um mánaðamótin nóvember og desem-
ber stofnaði VIKAN til kosninga meðal
lesenda sinna um það, hvern íslending þeir
vildu kjósa til að vera forseta hins íslenzka
lýðveldis, er dagar þess rynnu upp, eins
og gert er ráð fyrir að verði með sam-
bandslagaslitunum við Dani 1943.
Blaðinu hefir þegar borizt mikill fjöldi
atkvæða, er nýlega voru talin hjá lög-
manni og voru þau úrslit birt í sýn-
Lóðrétt:
1. tætlur. -— 2. stefna. — 3. hafna. — 4. vera
nízkur. — 5. fæða. — 6. tveir eins. — 7. 50 lárétt.
— 8. viður. — 9. gælunafn (karlmanns). — 10.
blása. — 11. ónefndur. — 12. á fingrmm. — 16.
vindhviða. — 18. réttarhald. — 20. ódmkkinn. —•
22. fyrirlíta. — 23. mynt. — 24. viðureign. — 26.
nudda. — 28. sjór. — 28. kennd. — 32. 40 lárétt.
— 34. 59. lárétt. — 37. þyrping. — 39. embættis-
tákn. — 41. mannsnafn. — 43. skáþil. — 45. farðu
burt. — 48. konungur. — 50. ‘lygar. — 52. fæddi.
■— 53. stormur. — 54. sterkur. — 55. hræðast. —-
56. gætt. — 58. þræta. — 61. mannsnafn. — 63.
formerki. —■ 65. hæð. — 66. skammst. — 67.
kannski. — 69. — e = kvikmyndaleikari. — 71.
káka. — 74. tikk. — 75. kona. 77. skammst. —•
78. þegar. — 79. tveir saman í stafrófinu. — 80.
samtenging.
ingarglugga blaðsins, Austurstræti 12, og
í útvarpinu. En sú talning, sem þá fór fram
og þau úrslit, sem þá urðu kunn, er að-
eins undirbúningstalning, því að blaðið
hefir ákveðið að framlengja kosningar-
frestinn til 15. jan., og verða allir atkvæða-
seðlar þá að vera í vörzlum blaðsins fyrir
kl. 6 að kvöldi þess dags. Morguninn 16.
jan. fer svo lokatalning atkvæða fram hjá
lögmanni, og hin endanlegu úrslit birt
samdægurs. Meðfylgjandi kjörseðill er því
síðasta tækifærið til að taka þátt í þess-
ari kosningu.
AtkvæðaseðilL
Próf-forsetakosningin
Fyrir fyrsta forseta hins væntanlega, ís-
lenzka iýðveldis kýs ég:
Vikublaðið VIKAN, Austurstræti 12, Rvík.