Vikan - 08.08.1940, Side 2
2
VIKAN, nr. 32, 1940
Hér dugir
enginn mótþrói!
Vitið þér það?
1. Hvar nam Þórólfur Mostrarskegg
land?
2. Hver uppgötvaði „dynamitið11?
3. Hvar er Djúpavík?
4. I hvaða sænskri kvikmynd lék
Greta Garbo fyrsta sinni?
5. Hver er upphaflega merkingin í
orðinu ,,óarga“-(dýr) ?
6. Hvar búa Baskar?
7. Hvar eru frægustu menn Eng-
lands grafnir?
8. Hver er þingmaður Snæfellinga ?
9. Er bakborðs siglingaljósið í skip-
um rautt eða grænt?
10. Hvaða litir eru í færeyska fán-
anum?
Sjá svör á bls. 15.
Lausn á 49. krossgátu Vikunnar.
Lárétt: 2. Orrustuskip. — 12. Kaj. — 13. Tár.
— 14. Ina. — 15. U. D. — 17. Sá. — 18. N. N. —
19. Er. — 20. Ge. — 21. Klak. — 24. Bras. — 26.
N. N. — 27. Vita. — 29. Ungra. — 31. Inga. —
33. Élið. — 34. Mýrar. — 35. Gáið. — 36. Fit. —
38. Tal. — 39. Óli. — 40. Ari. — 41. Afl.-42.
Bað. — 43. Má. — 44. Gá. — 45. Me. — 46. A. B.
47. Don. — 49. Bil. — 51. Ing. — 54. Úra. — 55.
Ana. — 56. Tár. — 57. Unir. — 59. Augna. —
61. Kúld. — 63. Röm. — 64. Sliga. — 65. Vala.
— 66. S. S. — 67. Saka. — 69. Árbæ. — 71. L. L.
— 72. K. K. — 73. T. U. — 75. Em. — 76. La. —
77. Fum. — 78. Yls. — 80. Inn. — 82. Frum-
drættir.
Lóðrétt: 1. Flugvélamóðurskip. — 2. Ok. — 3.
Raskaði. — 4. Rjál. — 5. St. — 6. Tál. — 7. Ur.
— 8. Kína. — 9. Innsigla. •— 10. P. A. — 11.
Hemaðarbandalagi. — 16. Deil. — 19. Engi. —
22. Aum. — 23. Knýta. — 24. Brall. — 25. Rar.
— 28. Tifa. — 30. Grafningi. — 32. Náið. — 37.
Tigna. — 39. Óbeit. — 47. Dúir. — 48. Orrustur.
— 49. Baula. — 50. Langá. — 52. Nákvæmni. —
53. Grúa. — 58. Nösk. — 59. Ask. — 60. Aar.
— 62. L. L. L. L. — 68. Aumu. — 70. Beit. —
74. Alr. — 77. F. F. — 78. Y. D. — 79. Sæ. —
81. Nr.
Hver var að hlœja?
Nýkomin er á bókamarkaðinn sex arka
bók, sem heitir Hver var að hlæja? Er
hún í þrem köflum. Fyrst eru ýmsar sögur
um þekkta menn íslenzka og eru þær
margar smellnar. Síðan eru Skotasögur og
svo reka skrítlur lestina. Það er létt yfir
þessari litlu bók og þægilegt að stinga
henni í vasann og hafa hana með sér í
sumarfríið.
Munið
Matstolan
BRYTINN
Hafnarstrœti 17
Hvernig er það hægt?
Hvernig er hægt að búa til tölur úr átta
af tölustafnum 8, þannig, að summa þeirra
verði 1000? — (1).
Kaupmaður á að klippa niður klæða-
stranga, sem er 90 metrar á lengd, í 90
eins meters parta. Hann er hálfa mínútu
að klippa hvert stykki. Hve lengi er hann
að klippa allan strangann? — (2).
Mjó, aflöng eyja í gríska Arkipelag ligg-
ur frá austri til vesturs. Eyjan er notuð
til f járbeitar. Dag nokkurn, þegar smalinn
er staddur með hjörð sína á miðri eyjunni,
sér hann, að eldur er kominn upp í grasinu
og smárunnunum á vestur enda eyjarinn-
ar. Það er vestanvindur og eldurinn berst
yfir þvera eyjuna til austurs. Hvað á smal-
inn að gera? Þó að hann fari alveg út á
austurenda eyjarinnar, hlýtur eldurinn að
ná honum og hjörð hans og eini staðurinn,
þaðan sem undankomu er auðið af eyjunni,
er á vestur endanum, þar sem lítil höfn er,
en þangað kemst hann ekki fyrir eldinum.
En smalinn dó ekki ráðalaus, og nú spyr
ég yður: Hvað hefðuð þér gert í sporum
smalans? — (3).
Sjá svör á bls. 10.
Dugleg — og sýnilega einnig gætin —
kona í Oklahoma, ungfrú Jessey Arnet að
nafni, hefir stofnað „félag til að berjast
gegn því, að giftir menn hagi sér eins og
ógiftir.“ Félagið, sem að því er sagt er,
hefir þegar fengið marga meðlimi af báð-
um kynjum, hefir á stefnuskrá sinni, að
neyða alla gifta menn til að ganga með
hringana á fingrunum — en ekki í vestis-
vasanum!
[ Efni blaðsins, m. a.:
I Þeir smiða vopnin. i
[ v. Brauchitch yfirhershöfðingi Þjóð- í
| verja. |
I Æfintýrið mikla í undirbúningi, eftir i
| Irving Stone.
I Karl Schulmeister—konungur njósn- i
| aranna. \
I Sandurinn segir frá. |
| „Ég legg ekki trúnað á það.“
í Fyrirmyndin, smásaga eftir Carol i
Brown.
[ Framhaldssaga. — Heimilið. — Skák. i
Krossgáta. — Sigga litla. — ÖIi og f
Addi. — Skrítlusíða o. m. fl.
Til þess að „skrá í himininn" setningu,
sem er átta kílómetrar á lengd og hálfur
annar kílómeter á hæð, flýgur flugvéhn í
3000 metra hæð með 170 kílómetra hraða
og framleiðir um 9000 rúm-metra af reyk
á mínútu.
*
Heimsmet í að halda sér undir vatnsyfir-
borðinu án nokkurra hjálparmeðala á enn
þá Frakkinn Pouliquem, sem árið 1912
kafaði í Signu og hélt sér í 6 mínútur
og 29,8 sek í kafi.
Tungumál menningarþjóðanna eru venju-
lega einföld og auðlærð, en tungumál
sumra frumstæðra þjóða eru aftur á móti
oft svo flókin og margbrotin, að jafnvel
duglegir málfræðingar geta ekki skilið þau.
Vi k a n
HEIMILISBLAÐ
Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365.
Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 17.
Sími 5004. Pósthólf 166.
Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu.
Steindórsprent h.f.
trTGEFA NDI: VIKAN H.F., REYKJAVlK. — Ritstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. — Ábyrgðarmaður:
Steindór Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Engilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.