Vikan - 29.08.1940, Side 12
12
VIKAN, nr. 35, 1940
Rasputin
Framhald af forsíðu.
greiða Yusupov fursta-
frú 550 þúsund krón-
ur í skaðabætur, því
að hún taldi sig móðg-
aða og höfðaði mál
fyrir enskum dómstóli.
Hún hélt því fram, að
myndin sýndi það, að
hún hefði gefið sig á
vald munkinum Ras-
putin. Þessar skaða-
bætur eru meðal þeirra hæstu, sem ensk-
ur dómstóll hefir dæmt í slíku máli. Rétt-
arsalurinn var fullskipaður alla þá daga,
sem málið var á döfinni, og einkum þó,
er Yusupov fursti skýrði frá því, að hann
hefði drepið Rasputin, af því að hann
viðurkenndi, að hann stæði í þjónustu
Þýzkalands og ætlaði sér að setjast í há-
sæti Rússlands. — Ég áleit hann hættu-
legan þjóð minni, sagði furstinn fyrir rétt-
inum.
Það var ekki talinn neinn vafi, að Ras-
putin hafi verið hættulegur þjóð sinni.
Hann var sonur bónda í héraðinu Tobolsk
í Síberíu, naut engrar menntunar og lærði
ekki einu sinni sæmilega að skrifa. Árið
1895 kvæntist hann efnaðri stúlku og átti
með henni þrjú börn. En 1904 ákvað
Rasputin að breyta til í lífi sínu. Hann
Síðasti keisari Rúss-
lands, eins og hann
er sýndur í frönsku
kvikmyndinni.
Það var dularkraftur Rasputins og áhrif hans á heilsufar ríkiserfingjans, sem greiþdi honum
götu að hirðinni. Á myndinni sést hann með drottningunni og ríkiserfingjanum.
Áhrif Rasputins í stjórnmálum urðu svo mikil, að flestar ábyrgðarmestu stöðumar voru veittar að undirlagi hans og hinum furðulegustu mönn-
um fengnar þser í hendur. Er ólifnaður hans þótti keyra úr hófi fram, ákváðu nokkrir liðsforingjar að ráða hann af dögum.