Vikan - 29.08.1940, Blaðsíða 14
14
VIKAN, nr. 35, 1940
— heimkynni fellibylja
og sjórœningja miðaldanna.
Hertoginn af Windsor, áður Játvarður VIII. Bretakonungur.
Hertogafrúin af Windsor, áður frú Simpson
Bahamaeyjarnar, þar sem hertoginn af
Windsor var nýlega gerður að land-
stjóra, er nyrzti eyjaklasinn í Vest-
ur-Indíum. Saga eyjanna hefir verið næsta
viðburðarík frá þeim degi, að Columbus
steig fæti sínum þar á land fyrstur hvítra
manna árið 1492.
Indíánar bjuggu fyrir í eyjunum, en
Spánverjar hnepptu þá alla, 40 þúsund að
tölu, í þrældóm og fluttu þá til Haiti og
Cuba, til að láta þá þræla í gull- og silfur-
námum sínum. Eyja'rnar voru svo ábyggð-
ar, þangað til 1666, að Englendingar lögðu
þær undir sig. En nýlenduríki Spánverja
var þá enn í fullum blóma og hröktu þeir
Englendinga þaðan aftur. Spánverjum
tókst þó ekki að festa byggð þar, og í
meira en heila öld voru eyjarnar hæli fyrir
sjóræningja, sem oft veittu siglingaflota
Spánverja þungar búsifjar.
Ótal munnmælasögur hafa gengið um
fólgna fjársjóði sjóræningja þarna á eyj-
unum, sem enn í dag eru langflestar
óbyggðar, og hafa margir freistað gæf-
unnar í leit að þeim, en fæstir með nokkr-
um árangri. En það er víst, að sjóræningj-
ar áttu víða felustaði á eyjunum.
Seint á átjándu öld lögðu Englendingar
svo eyjarnar undir sig aftur og hófu rækt-
un þar, en vinnukraftinn fengu þeir með
þrælaskipum frá frumskógum Afríku. —
Megin þorri íbúa þeirra, sem nú byggja
eyjarnar, eru afkomendur þessara Afríku-
negra og leggja þeir mesta stund á aldin-
rækt og svampveiðar.
Hræðilegir fellibyljir geysa þar tíðum á
sumrin, en á veturna er veðráttan mild
og þurr og þá sækir þangað f jöldi Kanada-
og Bandaríkjamanna sér til skemmtunar.
Þótt íbúarnir vinni þannig fyrir lífinu
með því að yrkja jörðina og þjóna erlend-
um auðkýfingum, þá lifa hin heillandi ævin-
týri um fólgna fjársjóði sjóræningjanna
í hugu,m fólksins og lokka stundum auð-
trúa skýjaglópa af hinum dyggðuga vegi
daglegs strits, en eins og áður segir hefir
ábatinn oftast orðið heldur smár — aðeins
fyrirhöfnin og vonbrigðin.