Vikan


Vikan - 03.10.1940, Síða 5

Vikan - 03.10.1940, Síða 5
VIKAN, nr. 40, 1940 „ÚLFAHÚSIÐ" brennur og Jack London sér óskadraum lífs síns hrynja í rústir. Jack London sleit viðskiptum sínum við ,,Macmillan“-forlagið árið 1912 og gerði samning við „The Century Company". En hann var aldrei verulega ánægður með þau skipti, og nú þegar verið var að senda út „Bakkus konung“, sem virtist ætla að verða lang víðlesnasta og þekktasta bók hans um þriggja ár skeið, gerði hann margar tilraunir, bæði bréflega og símleiðis, til að losa sig við „Century“ og hverfa aftur til „Macmillan“. „Allir forleggjarar eru á einu máli um það, að yður sé hægðarleikur að láta „Bakkus konung“ ganga yfir til „Mac- millan“. Eina ástæðan til þess, að þér viljið ekki sleppa henni, er sú, að þér hafið von um að græða drjúgan skilding á henni. Þér mynduð sjálfsagt fúslega selja sjálf- an yður og hinn góða orðstír forlags yðar fyrir 30 silfurpeninga. Gleymið ekki, að ég er engin blóðsuga, og að þær milljónir manna, sem lesa „Bakkus konung“, munu seinna lesa um yður. Bergmálið af því mun fá yður til að biðja heiminn mörgum sinn- um um fyrirgefningu, og þegar þér eruð orðinn að dufti í gröf yðar, mun bergmáhð í hugum þeirra, sem enn eru ófæddir fá duft yðar til að skjálfa. Mér væri kært að sjá yður svara, að þér vilduð heldur vera karlmenni en blóðsuga .. .“ „Ég hefi brotist í gegnum óteljandi hel- víti, sem þér og yðar líkar hafið aldrei látið yður dreyma um, og ég er gæddur svo takmarkalausri þolinmæði, að það er langsamlega ofvaxið yðar skilningi. Mér stendur svo hjartanlega á sama um vel- ferð sjálfs mín og fjárhagslegan hagnað, að þið botnið ekkert í því. Ég get litið í spegil án þess að blygðast mín, og er það meira en hægt er að segja um yður og yðar líka ...“ „Ég lít upp í bókahilluna mína, þar sem þar sem hinar þrjátíu og f jórar bækur eftir mig standa. Af öllum þessum bókum er aðeins eitt lélegt bindi — „Hnefaleikarinn — sem þér hafið gefið út . . .“ „Ég bíð alltaf eftir svari við skeyti mínu frá 10. maí 1913. Þér hafið nú haft marga daga til að borða sunnudagsmiðdegisverði í ástúðlegu skauti heimilisins og mæta þar vináttu og sanngirni. Getið þér nú ekki líka verið vingjarnlegur og sanngjarn í minn garð og gefið mig lausan? Þér vitið, að það eina, sem ég á hjá forlagi yðar er „Bakkus konungur". Látið nú þessa fáu dollara sigla sinn sjó, og látið mig ekki fara frá yður algerlega rúinn inn að skinni.“ Þegar „Century" svarar ekki að heldur, sendir hann þeim í örvæntingu sinni síð- asta skeytið: „Ég get vel skilið, að fólk geti reiðst, en önuglyndi finnst mér svo óumræðilega frummanneskjulegt fyrirbrigði, minnir mig svo mjög á heimskt dráttardýr, að ég skil ekki slíkt geðslag hjá mönnum, sem álíta sig fylgjast með tímanum og vera sæmi- lega menntaða." En þegar „Century“ neitaði loks ein- dregið að leysa hann frá samningnum, skrifaði hann: „Ég hefi of oft fengið ráðn- ingu um dagana til þess að erfa það, þó að ég verði fyrir nokkrum vandarhögg- um,“ og upp frá því vann hann í fullri samvinnu við forlagið. En undir eins og „Bakkus konungur“ var kominn út, hvarf hann aftur til „Macmillan“ og hætti sér aldrei þaðan aftur. Hann viðurkenndi fyrir Brett, að hann hefði neytt nokkuð rót- tækra ráða til að losna við samninginn við „Century". 1 ágúst 1913 var hann búinn að nota 80,000 dollara í „Úlfahúsið“, sem nú var næstum fullgert. Blöðin fóru hlífðarlaus- um háðsorðum um jafnaðarmanninn, sem væri að byggja sér höll, skoðanabræður hans voru reiðir og fannst hann hafa svik- ið sig. Hann fullvissaði blaðamennina um það, að hversu stórt sem „Úlfahúsið“ yrði, þá væri hann ekki auðvaldssinni, því að hann byggði fyrir peninga, sem hann hefði sjálfur unnið sér inn. I hvert skipti, sem menn töluðu um „Úlfahúsið" sem höll, svaraði hann, að þessi glæsilegu, kanadisku rauðtré og þessir rauðu hleðslusteinar væru hans eign, og ef húsið yrði eitthvað líkt höllum Cæsars og Justinians, væri það aðeins skemmtileg tilviljun, sem hann fengi sem ókeypis uppbót. En þegar einn af vinum hans sagði við hann, að hann ætti fallegasta heimilið í Ameríku, vissi hann, að hann hafði ekki eytt til einskis öllum þeim miklu peningum og þeirri fyrirhöfn, sem „Úlfahúsið" hafði kostað hann. Loksins þann 18. ágúst rann upp sá dag- ur, þegar húsið var tilbúið til að flytja inn í það. Verkamennirnir gengu um og söfn- uðu saman rusli, sem þeir höfðu vætt í terpentínu og notað til þess að þurrka tré- þiljurnar með. Morguninn eftir átti hópur verkamanna að byrja á að flytja búslóð Jacks og Charmain inn í hið nýja heimili þeirra. Þetta kvöld unnu Jack og Forni byggingarmeistari við húsið til klukkan ellefu. Rétt fyrir tólf vaknaði Forni við það, að bóndi kom hlaupandi til hans og 5 il kaldra kola hrópaði: „Forni, það er kviknað í! Úlfa- húsið stendur í björtu báli!“ Þegar Fomi kom á vettvang, var húsið eitt eldhaf. Nokkrum mínútum síðar kom Jack hlaupandi með flagsandi hárið. Fyrir fram- an sig sá hann eldhafið bera við himinn; húsið brann allt til ösku. Ekkert vatn var % við hendina. Hann gat ekkert afhafst, stóð aðeins kyrr, en tárin runnu niður kinnar hans á meðan hann horfði á óskadraum lífs síns hrynja í rústir. Gluggakisturnar brunnu með óeðlilega bláum loga. Á bak við rauðtrjáastaflann, sem var allt í kring um húsið, voru háir viðarhlaðar, sem nota hafði átt í þann hluta hússins, sem ekki var fullgerður. Þessi hlaði brann líka, en rauðtrén, sem voru nýhöggin, brunnu ekki. AJlt benti á íkveikju. Margir voru ásakaðir um að hafa kveikt í því — meðal annars í mörgum nafnlausum bréfum til Jacks. Shepard mágur hans, sem var í skilnaðarmáli við Elizu, hafði lent í rifrildi við Jack þá um daginn; hann var sakaður um íkveikjuna. Verkamáður, sem Jack hafði rekið, af því að hann hafði barið konuna sína, var einnig grunaður. Ráðsmaðurinn var grunaður, Forni var grunaður, afbrýðisamir jafnað- armenn voru grunaðir og hinir og þessir flakkarar voru grunaðir. Forni heldur, að eldurinn hafi myndazt við sjálfsíkveikju; að kviknað hafi í ruslinu með terpentín- unni, sem notuð hafði verið til að þurrka þiljurnar með. En það var samt ekki næg skýring á því, að húsið skyldi brenna allt til kaldra kola. Jack var sannfærður um, að kveikt hefði verið í húsinu, ef ekki af mannahöndum, þá af forsjóninni, sem ekki vildi láta hann njóta ávaxtanna af vinnu sinni, og sem ekki áleit það rétt, að jafnaðarmaður byggi í höll. Aðeins tvisvar hrutu honum orð af vörum alla þessa löngu, þungbæru nótt. Þegar eldtungurnar teygðu sig hæst, tautaði hann: „Ég vil heldur vera maður- inn, sem á húsið, en sá, sem kveikti í því.“ í dögun, þegar ekkert stóð eftir nema steinveggirnir, sem átt höfðu að standa í aldaraðir, sagði hann rólega: „Forni, á morgun byrjum við á að byggja upp aft- ur.“ En „Úlfahúsið" reis aldrei upp að nýju. Það hafði eitthvað brunnið til ösku í hjarta hans þessa örlagaþungu nótt. 1 f jóra daga lá hann í rúminu úti á yfir- byggðum svölunum með útsýni yfir hinn frjósama garð og barðist við örvænting- una, sem sífellt nagaði í brjósti hans. Það var ekki aðeins eyðilegging hússins, sem lagðist svo þungt á hann; traust hans til mannanna hafði beðið alvarlegan hnekki. Augu hans höfðu allt í einu opnast fyrir ýmsu, sem honum hafði áður verið hulið, eða sem hann hafði talið til þýðingarlausra

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.