Vikan


Vikan - 17.07.1941, Blaðsíða 13

Vikan - 17.07.1941, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 29, 1941 13 Dularfullur atburdur Framhaldssaga eftir AQATHA CHRISTIE. Poirot er frœg' persóna í skáldsögum Agatha Christie. Hann er leynilögreglumaður — hliðstæður Sherlock Holmes í sögum Conan Doyle’s — sem sezt hefir að í London og getið sér mikinn orstír fyrir uppljóstranir. „Já, rétt er það. Þetta er skóflan, sem gröfin var grafin með,“ sagði Giraud. „En það hjálp- ar okkur ekkert. Henauld átti skófluna sjálfur, og maðurinn, sem notaði hana, var með hanzka. Þarna eru þeir.“ Hann benti á tvo óhreina hanzka, sem lágu á jörðinni. ,,Og þá átti Renauld líka, ■eða réttara sagt garðyrkjumaðurinn hans. Ég segi yður það satt, að mennirnir, sem frömdu þennan glæp, voru ekki að taka á sig neina áhættu. Maðurinn var rekinn í gegn með sínum eigin rýting og mundi hafa verið grafinn með sinni eigin skóflu. Þeir álíta sig ekki hafa skilið eftir nein ummerki! En ég skal samt ná í þá. Það er alltaf eitthvað að fara eftir! Og það ætla ■ég að finna." En nú virtist Poirot vera upptekinn af ein- hverju allt öðru. Stutt, blettótt blýrör lá við hliðina á skóflunni. Hann snerti það gætilega með fingrunum. „Átti sá myrti þetta lika?“ spurði hann, og mér fannst eins og vottaði fyrir hæðni í rödd- inni. Giraud yppti öxlum, eins og til þess að sýna að hann hvorki vissi það eða kærði sig um að vita það. „Það getur hafa legið hér vikum saman. Ég hefi að minnsta kosti engan áhuga fyrir því.“ „Mér finnst það aftur á móti mjög merkilegt," sagði Poirot blíðlega. Ég gat þess til, að hann væri bara að reyna að stríða leynilögreglumanninum, og hafi það verið ætlun hans, þá tókst honum það. Giraud snéri sér við með þjósti og sagði, að hann mætti engan tíma missa. Siðan fleygði hann sér aftur á hnén og hélt áfram að leita. Á meðan datt Poirot eitthvað í hug og hafði gengið inn í garðinn og tók i handfangið á skúr- hurðinni. „Hún er læst,“ kallaði Giraud og leit við. „En garðyrkjumaðurinn notar hann bara, til þess að geyma blómsturpotta og annað slíkt. Skóflan var úr geymsluskúmum uppi við húsið, þar sem líkið liggur, en ekki héðan." „Dásamlegt,” tautaði Bex ánægður. „Hann er bara búinn að vera hér i hálfa klukkustund, og samt veit hann um alla hluti! Hvílikur maður! Giraud er vafalaust bezti leynilögreglumaður samtíðar sinnar.” Enda þótt mér væri í raun og veru ekkert um þennan drembiláta leynilögreglumann, þá var ég þó innst inni hrifinn. Maðurinn virtist dugnaðar- legur að sjá. Ég gat ekki varist þeirri tilfinn- ■ingu, að hingað tii hefði Poirot ekki unnið neitt þrekvirki, og það gramdist mér. Athygli hans virtist öll vera við ómerkilega smámuni, sem ekki 'kæmu málinu hið minnsta við. Og nú spurði hann allt í einu: „Hr. Bex, viljið þér gjöra svo vel og segja niér, hvers vegna þessi kalkaða lína er í kring- um gröfina? Er það eithvað, sem lögreglan hefir fundið upp á?“ „Nei, herra Poirot, þetta tilheyrir golfvellin- um. Það er viðvíkjandi golfspilinu.” „Viðvíkjandi golfspilinu?" Poirot snéri sér að Jnér. „Þetta er ólöguleg hola, fyllt með sandi og •halli niður frá henni öðru megin. Er það ekki rétt?“ Ég kinkaði kolli. Forsaga: Hercule Poirot, leynilög- reglumaður, hefir hvatt félaga sinn til að skrifa niður frásögu af dularfullum atburði, sem gerðist í námunda við „Villa Geneviéve” í Frakklandi, en þeir bjuggu saman í London, er þetta átti sér stað. Frásögumaður byrjar á því, að hann hittir í járnbrautarlest einkennilega stúlku, sem Segist vera leikkona. Hún kallar sig „Öskubusku", þegar þau skilja. Nafn sitt vill hún ekki segja honum. Poirot fær bréf frá miljónamæringnum Renauld, sem biðst hjálpar, af því að hann er hræddur um líf sitt. Hann býr í „Villa Geneviéve” í Frakk- landi. Þegar þeir félagar koma þangað, er þeim sagt, að Renauld hafi verið myrtur. Poirot ákveður að taka þátti í rannsókn málsins með frönsku lögreglunni. Rann- sóknardómarinn yfirheyrir Francoise ráðs- konu. Hún segir frá konu, frú Daubreuil, sem Renauld hafi verið í þingum við og hafi heimsótt hann kvöldið áður. En Denise, þjónustustúlka segir, að það hafi verið önnur kona. Hótanabréf, undirritað „Dulcie“ finnst í frakkavasa Renaulds. Þeir skoða skrifstofu Renaulds og Poirot finnur hom af rifinni ávísun, sem á er ritað nafnið „Duveen“. Eftir það fara þeir að skoða lik- ið. Ráðskonan kemur og segir, að frú Ren- auld geti tekið á móti þeim. Þeir fara upp til hennar og hún segir þeim frá þvi, sem bar við um nóttina. Þeir finna úr, sem morðingjarnir hafa brotið á glerið. Sonur hennar er á ferðalagi til Buenos Aires og Santiago. Síðan fara þau í líkhúsið. Þar fellur frúin í yfirlið, er hún sér lík manns síns. Eftir líkskoðunina fara þeir að rann- saka morðstaðinn. Rétt fyrir utan húsið finna þeir spor í blómsturbeði, en halda að þau séu eftir garðyrkjumanninn. þeir hitta Giraud leynilögreglumann. „Leikið þér golf, hr. Poirot?“ spurði Bex. „Ég? Nei, aldrei! En sá leikur!” Hann varð mjög ákafur. „Hugsið þér yður; allar holumar eru mismunandi á lengd. Hindranirnar eru ekki stærðfræðilega útreiknaðar. Jafnvel grænu blett- irnir eru ójafnir! Það er aðeins eitt, sem er alveg rétt og það er þetta, sem kallað er þúfur! Þær eru þó að minnsta kosti reglubundnar.” Ég gat ekki stillt mig um að brosa að þessari einkennilegu skoðun Poirots á golfspilinu og litli vinurinn minn brosti til mín og nú vottaði ekki fyrir hæðni í svip hans. „En Renauld hefir án efa spilað golf?“ „Já, honum þótti mjög gaman að því. Það var aðallega honum að þakka, að þessi völlur var búinn til. Hann studdi það fjárhagslega. Hann tók sjálfur þátt í að gera uppdráttinn.“ Poirot kinkaði kolli og var hugsi. Síðan sagði hann; „Það var ekki mjög hentugur staður, sem glæpamennirnir völdu til að fela líkið á! Þegar verkamennimir byrjuðu að grafa, hlutu þeir að finna likið.“ „Einmitt,” sagði Giraud sigri hrósandi. „Og það sýnir, að þeir hafa verið ókunnugir hér um slóðir. Það er ágæt, óbein sönnun.“ ,,Já,“ sagði Poirot dálítið efablandinn. „Enginn, sem væri kunnugur myndi grafa lík hér, nema hann óskaði eftir, að það findist. Og það er mjög ósennilegt, eða er það ekki?“ Giraud var ekki að ómaka sig á að svara. „Já,“ sagði Poirot dálítið óánægður. „Jahá, það er mjög ósennilegt.“ VII. KAPlTULI. Hin dularfulta frú Daubreuil. Þegar við vorum á leið til hússins aftur, af- sakaði Bex sig og sagðist þurfa að láta rannsókn- ardómarann vita um komu Girauds. Giraud hafði virzt mjög glaður, þegar Poirot sagðist vera bú- inn að sjá allt, sem hann þyrfti að sjá. Það seinasta, er við sáum, þegar við yfirgáfum golf- völlinn, var Giraud, sem skreið á fjórum fótum og rannsakaði allt með mikilli nákvæmni. Ég gat ekki látið vera að dást að honum. Poirot las af svip mínum, það sem ég var að hugsa og undir eins og við vorum orðnir einir, sagði hann hæðnislega; „Að lokum hafið þér fundið þá tegund leyni- lögreglumanna, sem þér dáizt að — mann, sem er sporhundur. Er það ekki rétt?“ „Hann reynir þó að minnsta kosti að gera eitt- hvað," sagði ég kuldalega. ,,Ef eitthvað er að finna, þá finnur hann það áreiðanlega. En þér . ..“ „Jæja, ég hefi líka fundið ofurlítið! Það er blý- rör.“ „Vitleysa er þetta, Poirot. Þér vitið vel, að það kemur glæpnum ekkert við. Nei, ég átti við smá merki — spor, sem myndu leiða okkur rakleitt til morðingjans.” „Vinur minn; þráður, sem er meira en hálfur meter á lengd, hefir ekkert meiri þýðingu en þráður, sem er tveir millimetrar á lengd! En það er þessi ágæta hugmynd yðar, að öll um- merki séu meira virði, ef þau eru lit.il. Ef þér segið, að þetta blýrör komi glæpnum ekkert við, þá er það aðeins af því, að Giraud sagði yður það.“ Þegar ég ætlaði að skjóta einni spurningu inn í, sagði Poirot: „Nei, við skulum ekki tala meira um það. Lofið þér Giraud að leita og mér að hugsa. Þetta lítur út fyrir að vera mjög einfalt — og þó, vinur minn, er ég ekki ánægður! Og vitið þér af hverju? Vegna armbandsúrsins, sem flýtir sér um tvær klukkustundir á sólarhring. Þar að auki eru nokkur smáatriði, sem ekki virðast vera rétt. Ef til dæmis morðingjamir hafa ætlað að hefna sín, hvers vegna ráku þeir þá ekki rýting- inn í gegn um Renauld í rúminu og létu sér nægja það?“ „Þeir vildu ná í „leyndardóminn”, sagði ég. Poirot hristi kusk af erminni sinni og var óánægður á svipinn. „Já, en hvar í veröldinni er þessi „leyndar- dómur" ? Sennilega spölkorn héðan, fyrst þeir vildu láta Renauld klæða sig. Þó finnst hann myrtur rétt hjá húsinu. Og er það tilviljun, að vopn eins og þessi rýtingur skuli liggja svona á glámbekk ?“ Það komu hrukkur í ennið á honum og hann þagnaði. Eftir stundarkom sagði hann: „Hvers vegna heyrði þjónustufólkið ekkert? Var búið að gefa þvi svefnlyf? Er einhver með- sekur í húsinu, sem sá um, að dymar væm í hálfa gátt? Gæti skeð að ... ?“ Við námum allt í einu staðar. Við vorum komn- ir að veggnum, sem lá heim að húsinu. Allt í einu sneri Poirot sér að mér. „Vinur minn, nú ætla ég að koma yður að óvömm, ég ætla að gleðja yður! Ég hefi tekið

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.