Vikan


Vikan - 24.07.1941, Page 6

Vikan - 24.07.1941, Page 6
6 VTKAN, nr. 30, 1941 Hungur■ Lestin rann af stað frá brautarstöðinni. Tonie Tradnor, sem var með lestinni lét sig detta ofan í sætið. Hún byrjaði að tína innihaldið úr tösk- unni sinni og raðaði því í keltu sína. Hún tók umbúðir af súkkulaði, miða með heim- ilisfangi einhvers og farmiða frá Los Angeles til New York. Nánari rannsókn leiddi í ljós varalit, púðurdós, greiðu, hálf- tóman sígarettupakka og eldspýtustokk. Hún fann líka 79 cent í smáu, lyklakippu með þremur lyklum, hótelreikning ... „Þá hefir það verið,“ hugsaði hún, „þeg- ar ég stóð og var að tala við gjaldkerann.“ Hún snéri buddunni sinni við og hristi hana. Það var ekkert þar lengur. Hún vissi, að þar áttu að vera tveir nýir 50 dollara seðlar. Hár, ljóshærður, ungur maður kom inn í klefann og settist andspænis henni. Hann leit í keltu hennar og sagði: „Er þetta vorhreingerning?“ Tonie virti hann ekki viðlits. Litlu seinna kom eftirlitsmaðurinn og tók farmiðana. Tonie fékk honum miðann. Nokkrar stundir liðu og stöðugt fór lest- in fram hjá görðum með appelsínum og ýmsum gróðri. Þá kom þjónn og sagði, að hádegisverðurinn væri tilbúinn. Pólkið gekk eftir ganginum fyrir utan á leið til borðsalsins. Ljóshærði maðurinn stóð upp og Tonie fann, að hann horfði á hana. Hún einblíndi út um gluggann, og þá fór hann. Hún stóð upp og gekk út á pallinn fyrir utan og fékk sér eina sígarettu. Hún reykti til þess að fá eitthvað annað að hugsa um en hvað svöng hún væri. Henni dvaldist lengi og hún reykti aðra sígarettu. Áður en hún hafði lokið henni kom ungi maðurinn og settist í stólinn við hliðina á henni. „Ætlið þér að fara langt?" spurði hann. „Til New York,“ svaraði hún stuttlega. „Það var einkennilegt. Ég fer líka til New York.“ „Já, var það ekki! Það eru svo fáir, sem fara til New York!!!“ Maðurinn horfði dimmbláum, undrandi augum á hana. „Ég er að minnsta kosti að fara þangað. Ég vildi, að við fengjum ein- hverja betri ferðafélaga í Chicago. Ég hefði átt að fljúga beina leið. Ég verð að vera kominn til New York á föstudags- morguninn.“ „Einmitt það,“ sagði Tonie kurteislega. „Sannarlega! Ég ætla að halda brúðkaup á föstudagsmorguninn. Stórt kirkjubrúð- kaup um hádegið. Stærðar veizla á eftir. Það væri ekki gott að koma of seint.“ „Líklega ekki,“ sagði Tonie. Það var víst bezt að lofa honum að blaðra um giftingar og mat, ef það var honum nauðsynlegt. -og ást. „Hvað segið þér mér um að fá yður glas af víni?“ spurði hann. Hún hristi höfuðið. „Nei, þökk!“ Hann kveikti sér í sígarettu. „Ég ætla ekki að vera áleitinn við yður. En ég get fullyrt að við erum þau eihu, sem erum vNiiimmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmi<^ Smásaga eftir Faith Ellen Smith. undir sextugt af öllu ferðafólkinu. Hvað segið þér um að borða kvöldverð með mér í kvöld?“ „Nei, þökk.“ Málrómur hennar var ofur- lítið veikburða. Hún fann að maginn gerði uppreisn og stóð upp. „Ég held, að ég sé ekki alveg hraust,“ sagði hún aumingja- lega. Ljóshærði maðurinn fylgdi henni inn í vagninn, hringdi á þjóninn og bað hann að koma með kodda og vatnsglas. Síðan fór hann, líklega til að fá sjálfum sér eitt glas. Hún sá hann ekki aftur fyrr en seint um kvöldið. Reyndar sá hún hann ekki þá heldur, en heyrði hann flauta, þeg- ar hann var að hátta hinu megin við skil- rúmið. Henni heyrðist á honum, að hann hefði fengið nóg að borða og drekka og þætti vænt um allt og alla. Hún velti sér á grúfu og tókst að lokum að sofna. Morguninn eftir, þegar þau voru fyrir Banamaður í annað sinn. A. L. Tipton, sem er 16 ára, er hér í fangelsi í Texarkana, eftir að hann játaði fyrir lögreglunni, að hann hafi drepið John Dale Hilliard skólabróð- ur sinn, 15 ára gamlan. Hann drap hann með flösku, þegar þeir voru að slást. Fyrir einu ári var han látinn laus gegn drengskaparheiti, eftir að hafa verið tekinn fastur fyrir að skjóta mann, þegar hann var 12 ára. vestan Omaka, reyndi hún að slíta hugann frá kaffinu, rjómanum, ristaða brauðinu, gullnu smjörinu, fleskinu og eggjunum, sem verið var að bera fram í borðsalnum. Hún leit í spegil. Andlitið, sem mætti henni var ekkert óvanalegt. Stór dökk augu, dökkar augnabrýr og augnahár og hrokkið, dökkt hár. Henni fannst hún líta furðu lítið veiklu- lega út. „Uss,“ hugsaði hún. „Sumir lækn- ar segja, að það sé holt að svelta.“ Ungi maðurinn sat á móti henni og las blað frá Omaha. Hann leit á hana og sagði: „Góðan daginn. Þér ættuð að flýta yður, ef þér ætlið að fá morgunverð.“ Hún brosti og sagði: „Þér hafið verið snemma á ferli.“ „Ég sváf ekki vel. Ég hefi víst borðað of mikið í gærkvöldi. Ég hrúgaði í mig matn- um og borðaði þari að auki heilmikið af ávöxtum. Ég vona, að þér hafið haft meira vit fyrir yður.“ Tonie stundi einhverju upp. Henni fannst hún ekki vera beinlínis svöng lengur, en höfuðið virtist vera einkennilega létt. Ljóshærði maðurinn rétti henni dagblað- ið og fór út. Hún sá hann ekki aftur um morguninn. Hún varð því fegin, því að nú var hún farin að fá höfuðverk. Ungi maðurinn var ekki kominn aftur, þegar hringt var til hádegisverðar, en hún sá allt fólkið fara eftir ganginum inn í borðsalinn. Hún horfði fast út um gluggann, á með- an það var að fara framhjá. Hún mundi, að hún hafði lesið um fólk, sem rak á eyðieyjar eða villtist í skógum. Það hafði allt getað lifað, á meðan það hafði nóg vatn. Ef til vill hefði hún gott af vatns- sopa. Hún stóð upp og gekk fram að vatns- hananum og studdi sig við bökin á sæt- unum. Hún drakk vatn úr pappabolla. Áður en hún gat fyllt bollann í annað sinn, fann hún, að eitthvað mundi gerast. Hún leit til sætis síns. Það var marga metra frá henni. Hún leit inn í næsta klefa og sá, að einhver var að koma. Hún varð að líta tvisvar við, áður en hún þekkti, að það var ljóshærði maðurinn. Hann var þungbrýnn og virtist hata allan heiminn. Með seinustu kröftum sínum, hélt hún fast í vatnskranann, þángað til maðurinn var kominn inn í klefann. Þá sagði hún veik- um rómi en rólega: „Fyrirgefið þér, en nú er búið með mig.“ Síðan leið yfir hana, og hann rétt náði að grípa hana, áður en hún skylli í gólfíð. Ókunnug rödd sagði: „Ég er viss um, að það eina, sem að henni er, það er hungur.“ „Hungur?“ Þetta var rödd ljóshærða mannsins. „Ég gáði í töskuna hennar. Það er ekkert, sem getur gefið neinar upplýsing- ar um ættingja eða annað. Það er ekki einu sinni einn dollar þar, og þjónninn heldur, að hún hafi aldrei borðað í lest- inni.“ „Drottinn minn dýri!“ sagði ungi mað- urinn.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.