Vikan


Vikan - 30.08.1945, Side 2

Vikan - 30.08.1945, Side 2
2 VIKAN, nr. 35, 1945 Pósturinn Kæra Vika! Ekki vildir þú gjöra svo vel og svara mér eftirfarandi spurningum: 1) Hvert á maður að snúa sér til að sækja um skólavist á Húsmæðra- skólann í Reykjavík. 2) Hvað kostar að vera á skólanum. 3) Er þar kennt bóklegt nám. 4) Hvað má maður vera gamall til að komast á skólann. 5) Er skólinn yfir allan veturinn. 6) Hafa stúlkumar húsnæði á skólanum. Gætur þið sent mér svar í næsta blaði. Mikið þakka ég svo ykkur vel fyrir ef þið gætuð frætt mig á þessu. Virðingarfyllst, Erla. Svar: Sendu umsókn um inntöku i skólann til forstöðukonunnar. — Húsmæðraskóli Reykjavíkur mun starfa í þrem deildum: Heiniavist, sem stendur í 9 mán. Dagcleild, eru það 4% mán. námskeið. Er kennt þar frá kl. 8 f. h. til 4% e. h. Kvölddeild, eru það námskeið sem standa yfir i 5 vikur hvert. Er þar kennt fjögur kvöld í viku frá kl. 6% e. h. til 11 e. h. -— Inntökuskilyrði í skólann em, að nemandinn sé fullra 18 ára, hafi lokið fullnaðarprófi eftir núgildandi fræðslulögum og sé heilsuhraustur. Skólagjald greiða nemendur í heimavist kr. 40,00 yfir skólatímann, en fæðisgjald í heimavistinni var síðastliðið ár kr. 1400,00 yfir tímann eða rúmlega 150,00 kr. á mánuði. Nemendur dag- og kvöldskólans greiða ekkert skólagjald, aðeins fæð- isgjald. Var fæðisgjald á dagskólan- um siðastliðið skólaár kr. 700,00 en á kvöldskólanum kr. 150,00 yfir námstimann. Nemendur þurfa að sjá sér fyrir húsnæði, nema þeir, sem komast að í heimavist og stunda nám í 9 mán. Kæra Vika! Ég undirrituð óska eftir bréfavið- skiptum við strák eða stelpu á aldr- inum 15—16 ára. Með virðingu Sigurbjörg Björnsdóttir, Grimstungu, Vatnsdal, A.-Hún. Kæra Vika! Viltu birta þessa tilkynningu fyrir mig. Undirrituð óskar eftir bréfasam- bandi við pilt eða stúlku, einhvers staðar á landinu, á aldrinum 15—18 ára. Ráðhildur Guðmundsdóttir, Vestur- húsi, Höfnum, Gullbringusýslu. Kæra Vika! Viltu gjöra svo vel að koma mér í bréfasamband við frímerkjasafnara, einhvers staðar á landinu. Með fyrir- fram þökk. Gunnlaugur P. Kristinsson, Ham- arstíg 6, Akureyri. Dráttarvextir. Dráttarvextir falla á tekju- og eigna- skatt og tekjuskattsviðauka ársins 1945, svo og veltuskatt fyrir árshelm- ing 1945 hafi gjöld þessi ekki verið greidd að fuliu í síðasta lagi föstudag- inn 7. september næstkomandi. Á það, sem þá verður ógreitt, reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, sem var 15. júní síðastliðinn, að því er snertir tekju- og eignaskatt ásamt viðauka, en 1. ágúst að því er snertir veltuskatt. Reykjavík, 22. ágúst 1945. TOLLST J ÓRASKRIFSTOF AN, Hafnarstræti 5. P RENTVERK Björnssonar AKUREYRI Stofnsett 1901 'r Símar 45 og 370 Pósthólf 45 ✓ Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.