Vikan


Vikan - 30.08.1945, Side 13

Vikan - 30.08.1945, Side 13
VIKAN, nr. 35, 1945 13 Í gœr varst þú barn —! (Framhald af bls. 4). • berg af stað í gönguferð með ísabellu. Hún var tvo tíma í burtu. Þegar hún kom heim, voru Elín og Fredlund einnig kom- in. Þau sátu á sólskýliströppunum og kysstust af miklum f jálgleik. Frú Lungberg stanzaði, óráðin í hvað gera skyldi. „Jæja, er það nú ástand!“ tautaði hún. „Ástin mín, elskan mín!“ hvíslaði Kurt. Síðan kyssti hann Elínu, sem leit helzt út fyrir að vera í óviti, enn áfergjulegar en áður. I sama bili sáu þau frú Lungberg, og stóðu upp. Elín hljóp niður garðstíginn, og Kurt á eftir henni. Hún tók um háls móð- ur sinnar og þrýsti sér að henni. „Ó, mamma — hvað lífið er dásamlegt!" „Finnst þér það?“ sagði frú Lungberg óróleg. „Hann elskar mig, mamma, og ég er svo hamingjusöm, að ég gæti dáið af því! Komdu, við skulum fara og spyrja pabba __ií „Spyrja — um hvað? hrópaði frú Lung- berg óstyrk. „Hvort við getum látið gefa okkur sam- an á föstudaginn fyrir hádegi,“ svaraði Elín. Frú Lungberg hlammaði sér niður á bekk, sem stóð rétt hjá henni. „Ertu lasin, mamma,“ spurði Elín í meðaumkunarrómi. „Á ég að sækja eitt- hvað handa þér?“ „Elín, góða barn,“ sagði frú Lungberg, eins og hún væri með kökk í hálsinum. „Þú þekkir þennan mann ekkert — þú veizt aðeins hvað hann heitir. Þú ert allt- of ung til að geta gert þér grein fyrir hvort þér er alvara.“ „Jæja, ég fer þá bara með honum og bý einhversstaðar í nágrenni —.“ Það getur verið, að hann verði sendur eitthvað langt í burtu — hvað þá?“ „Þá vona ég, að ég megi koma hingað,“ svaraði Elín. Neðri vör hennar titraði ofurlítið. — Nei —annars — ég ætla þá að vera kyrr og hugsa um búið á meðan.“ „Hvaða þekkingu hefir þú á landbúnaði, góða mín?“ „Ekki mikla, en það hlýtur að vera hægt að læra það, ég er ekki heimskari en svo, að ég ætti að geta lært að stjórna búi.“ Lungberg verkfræðingur kom að í þess- um svifum. Hann var fljótur að átta sig á hvað var á seiði. „Þetta er móðursýki og brjálæði," hróp- aði hann. Ég skil ekki, hvernig þið farið að því að láta ykkur detta þetta í hug! Fólk, sem ekki þekkist nokkurn skapaðan hlut!“ * Kurt hafði staðið þögull og hlustað á. Nú greip hann fram í. „Hvað vitið þér um það, hve mikið eða lítið við Elín þekkjumst? Viðræðurnar stóðu skamma stund eftir þetta. Lungberg batt endahnútinn á þær. Elín mændi hryggum augum á eftir Kurt þegar hann fór. Morguninn eftir vaknaði Lungberg við það, að frúin þreif í handlegg hans. „Hún er horfin — Elín er horfin!“ „Hvað áttu við? — Hvernig — hvert? „Þau fóru snemma i morgun. Vinnu- konan segir, að Kurt Fredlund hafi komið um svipað leyti og mjólkurpósturinn. Elín fyllti stóra körfu af niðursoðnum mat; hún hefir líka tekið sykur, smjör, og ég veit ekki hvað fleira —. Stúlkan segir, að það hafi helzt litið út fyrir að þau væru að leggja af stað í margra daga ferðalag. „Fari það nú allt í-----.“ Lungberg bölvaði í sand og ösku, en frúin varð rólegri við að sjá reiði hans. „Þau hafa ef til vill farið til búgarðs- ins,“ sagði hún hugsandi. „Þá verðum við —,“ byrjaði Lungberg, en frú Lungberg greip fram í: „Þá verð ég að fara á eftir þeim,“ sagði hún ákveðin. „Ætli ég sé ekki bezt fallin til þess að kippa þessu í lag.“ Þegar hún beygði inn í húsagarðinn, sá hún tveggja manna bíl Kurts í skuggan- um. ísabella lá hjá brunndælunni og sleikti sólskinið. „Mamma," sagði Elín rólega, án þess að sýna nokkur merki um undrun. „Þú kemur svei mér á heppilegum tíma. Nú 1 ExLcIjCl, öd/ciOieyAL SlMI 334. PÓSTHÓLF 42. 51 * Allar fáanlegar íslenzkar bækur, blöð og tímarit. • Erlendar bækur og tímarit. • Vestur-íslenzku blöðin Heimskringla og Lögberg og Tímarit Þjóðræknisfélags- ins. • Allskonar ritföng og pappírsvörur. • Bókbandsefni. Höfum umboð fyrir hina heimsfrægu „SIIEAFEK’S“ lindarpenna og blýanta. v> v> \ í i t SIMI 158 er númerið, sem þér eigið að biðja um, ef yður vanhagar um eitthvað, sem viðkemur rafmagni. VERÐBE) ER HÆFILEGT. UKVALIÐ MIKIÐ. VIÐSKIPTIN GREBE). — Utanáskrift skeyta: ELECTROCO. — & x R AFTÆK J A VERZLIJ NIN AKUREYRI. i I

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.