Vikan


Vikan - 10.10.1946, Qupperneq 6

Vikan - 10.10.1946, Qupperneq 6
6 VIKAN, nr. 41, 1946 höfum viö rætt um jassmúsik — og önnur efni, sem ég er álíka illa heima í.“ Sherry settist, en ekki við hhð húsbóndans, heldur hjá Wöndu. „Jæja, fröken Khys,“ sagði hann, „ég vona að þér séuð ekki of þreyttar eftir gleðskap og svall næturinnar." „Nei, alls ekki! Ég var komin á fætur klukkan sjö og út á svalir.“ Wanda var feimin — og sagði það, sem henni datt fyrst í hug, en fannst það heimskulegt og barnalegt um leið og hún var búin að sleppa því út úr sér. En Sherry lét á engu bera, hvort sem honum hafði líkað svarið eða ekki, og hélt áfram vingjarnlega. „Þið hafið skemmtilegar svalir og dásamlegt útsýni frá þeim.“ „Já, og fallegast þykir mér á morgnana eða á kvöldin, þegar búið er að kveikja á ljósunum í allri borginni. „Hafið þér skoðað yður um i Kairo?" spurði hann. Hann var kurteis í samræðum og var ekki laust við að Wanda yrði fyrir vonbrigðum. Sherry í dag var svo ólíkur hinum ónærgætna, heillandi manni kvöldið áður. Að hann skyldi hafa sagt við hana, að hún væri fallegt barn, fannst henni núna næsta ótrúlegt. Sennilega myndi hann ekki eftir þessu stutta samtali þeirra. Og þótt hann gerði það, minnt- ist hann ekki 6 það, svo að hún skildi að hann ætlaðist að minnsta kosti til þess að hún gleymdi því. „Pabbi fór með okkur út i morgun, til að sýna okkur Kairo. Við ókum um alla borgina, skoðuð- um kastalann og borðuðum í Shepheards." „Þið hafíð naumast komist yfir að sjá meira á hálfum degi,“ sagði hann og leit á Sir John. Wanda skildi óðara augnaráð hans. „Já, þetta líkist ekki pabba, en hann skemmti sér samt prýðilega. Það var Rachel að þakka,“ bættí hún við. „Ungfrú Thompson ?" „Já, hún er svo gáfuð og hefir áhuga á öllu.“ „Höfðuð þér þá ekkert gaman af þessu?" „Jú, jú! En Rachel spyr svo gáfulega. Hún viU vita sem mest um Austurlönd, stjómmál og annað slikt.*' „Það er þó óvenjulegt. Flestar imgar stúlkur með hennar útliti myndu láta sér nægja að vera til skrauts." „Já, það veit ég, en Rachel er yndisleg stúlka." „Hún hefir verið heppin i vinkonuvali sínu," sagði Sherry. Wanda roðnaði — hún varð vandræðaleg við þessa óvæntu gullhamra. Féll honum hún vel í geð? Hafði — hafði honum verið alvara, þegar hann sagði þetta í gær? „Það er einmitt ég, sem hefi verið heppin," flýtti hún sér að segja og hélt áfram til að það yrði ekki þögn: „Þekkið þér frú Conyers?" „Já." „Hún heimsótti okkur í dag og bauð okkur með sér í klúbbinn á morgun." „Það var óhjákvæmilegt," sagði Sherry. „Þykir yður klúbburinn leiðinlegur ?“ „Já, það verð ég að segja." „Þá komið þér auðvitað aldrei þangað?" „Jú, einmitt! Ég kem þangað í hvert skipti, sem ég fer úr einveru minni til Kairo." „Hvers vegna, þegar yður þykir leiðinlegt þar?“ spurði hún. „Ég hugsa að það sé af félagsþörf," sagði hann brosandi. „Ef til vill til áð halda sönsum. Það er ekki hollt fyrir mann að búa einn sins liðs." „Eruð þér þá einn þarna?" „Já, að undanskyldu þjónustufólkinu." „Er fallegt á High Heaven?" „Ég ætla að láta yður sjálfa dæma um það,- fröken Rhys.“ „Eigið þér við —“ augu hennar urðu stór af eftirvæntingu. „Ég vona, að þér komið til High Heaven bráð- lega. Sir John hefir oft komið til mín og vona ég að þér gerið mér einnig þann heiður." „Eg hefði gaman af því og Rachel einnig." „Ég held samt að þér yrðuð hrifnari af High Heaven en ungfrú Thompson," sagði Sherry. „Það er villtur og siðmenningarlaus staður." „Þá yrði Rachel ííka hrifin af honum. Hún viU endilega fara í lestarferð út I eyðimörkina, eíns og pabbi þarf stundum að fara." „Ég er hræddur um að það geti ekki orðið nein lestarferð á úlföldum, þótt þið kæmuð að heim- sækja mig á High Heaven. Hið eina, sem ég gæti boðið ykkur væri ferð í vélbát, þegar þið stigið úr lestinni. High Heaven stendur á öðrum fljótsbakkanum og þar er í raun og veru ekkert þorp — aðeins nokkrir leirkofar." „Þá væri gaman að sjá.“ Rachel og Bill komu í sömu svifum yfir svalirn- ar og slitnuðu því samræður Wöndu og MacMah- on. Henni þótti leiðinlegt að fá ekki að tala lengur við hann, þótt þetta samtal hefði orðið henni að nokkru leyti vonbrigði. Hún sá hann fara til Sir John og voru þeir þegar niðursokknir í samræð- ur. Sherry hafði gert skyldu sína við ungu hús- móðurina og gat nú gert það, sem honum líkaði. „Honum finnst ég sennilega ekki annað en barn,“ hugsaði Wanda. „Hann hlýtur sjálfur að vera þrjátíu og þriggja ára. En hann var kurteis við mig og bauð mér heim til sín, en sem vinur pabba gat hann ekki gert annað." Hún horfði á hann í laumi — hann var hár og vel vaxinn og gekk beinn. Andlit hans var þung- lyndislegt, en brosið og röddin fóru svo undar- lega saman við það. Hún fann til sömu áhrifa og þegar hún sá hann fyrst í Mena House. Skömmu seinna stóð hann upp og rétti Wöndu höndina í kveðjuskyni. Hann sagði ekki annað en „góða nótt," en Wöndu fannst fara straumur um sig við snertingu brúnnar og harðar handar hans. Þegar hann 'var farinn, varð allt grátt og öm- urlegt í augum Wöndu. Klukkan fjögur daginn eftir kom frú Conyers til að sækja ungu stúlkumar og fór með þær í klúbbinn, Klúbburinn var skemmtilegui' staður með blómstrandi runnum og stórum íþróttavöllum. Frú Conyers fór með skjólstæðinga sína að borði, þar sem tíu konur sátu og kynnti þær fyr- ir þeim. Wanda heyrði ekki nöfn þeirra. Henni fannst þær vera flestar laglegar og vel klæddar, en kuldalegar, svo hún varð feimin í návist þeirra. En Rachel lét kulda þeirra ekkert á sig fá og talaði mikið og frjálslega, eins og hennar var vandi. Blessað harnið! Teikning eftir George McManus. ÍT’ ~ Mamman: Elskan mín, ætlarðu ekki að fara í vinnuna — það er ekki helgidagur í dag. Pabbinn: Ég ætia að taka mér frí og leika við Lilla. Pabbinn: Pabbi ætlar að vera heima hjá Lilla sínum og fara með honum út í garðinn. Lilli: Go! Copr 1946, Kinj> Tcaturc-s Syndicatc, Inc., World i'-lifs reserved. Pabbinn: Nú ertu alveg tilbúinn, en ég á eftir að Pabbinn: Ég hlakka til að fara út með Pabbinn: Ha? fara í — vertu rólegur, vinurinn! litla vininum! Mamman: Hann er sofnaður, þú mátt ekki vekja Lilli: Go-go! hann — ég ætla að leggja hann í rúmið!

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.