Vikan - 29.07.1948, Side 2
2
VIKN, nr. 31, 1948
PÓSTURINN •
Svar til „Lóló“: Um þetta efni, sem
þér talið um, verður birt grein í
Vikunni fyrir haustið.
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð að gefa mér dá-
litlar upplýsingar um Verzlunarskól-
ann:
1. Hvað eru margir bekkir í hon-
um?
2. í hvaða bekk komast nemendur
með gagnfræðaprófi?
3. Hvaða námsgreinar eru kennd-
ar þar?
4. Með hvað miklum fyrirvara
þarf að sækja tun inntöku í skól-
ann?
Með fyrirfram þökk.
Krummi.
Svar: Verzlunarskólinn skiptist í
tvær deildir: Verzlunardeild, sem er
fjögra ára skóli og í framhaldi af
henni lærdómsdeild, sem er tveggja
ára skóli og lýkur með stúdentsprófi.
Auk þess starfar undirbúningsdeild,
sem býr nemendur undir próf inn í
skólann. Inntökuskilyrði í 1. bekk
eru þessi: Nemandi gangi undir próf
í íslenzku, reikningi, dönsku og ensku
og sýni sæmilegar einkunnir úr fulln-
aðarprófi bamafræðslu i sögu, landa-
fræði og náttúrufræði. -— Skrifleg
umsókn um inntöku skal senda fyrir
febrúarlok næst á undan prófi, og
skai greina aldur umsækjanda, for-
eldri og fyrra nám og einkunnir.
Svar til „tveggja vinstúlkna": Við
höfum ekki getað útvegað það, sem
þið báðuð um.
Svar til „Fitubollu": Við höfum
ekki tölur yfir yngri en 16 ára og
og auk þess vantaði hæðina.
Svar til „vestra“: Þökkum bréfið
og tillöguna, sem er alls ekki ómerki-
leg, en eins og sakir standa höfum
við ekki tíma til að færast þetta
i fang.
Svar til „Siggu í Holti“: Höfum
ekki þetta kvæði.
Svar til „Sidda og Birgis": Vikan
hóf göngu sína 17. nóvember 1938.
Við höfum hana ekki frá byrjun og
vantar mikið til þess að hægt sé að
láta hana í heilu lagi. — Hinni bóninni
ykkar getum við heldur ekki sinnt.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Örlygur Sigurðsson (við stúlku 16—
19 ára, æskilegt að mynd fylgi),
Stykkishólmi.
Richard Sigurbaldursson (13—15
ára), Fjarðarstræti 38, Isafirði.
Ann Jennette Stewart (við pilt eða
stúlku 17—18 ára), 7, Marine Ave
Sandycove, Co. Dublin, Eire.
Elsie Jane Hill, 247, Glenn Avenue,
Garey, Ohio, U. S. A.
Sverrir Sigurðsson (við stúlku 18—
20 ára, mynd fylgi), Efsta-Dal,
Laugardal, Árnessýslu.
Cesselja Ó. Guðmundsdóttir (15—19
ára), Arkarlæk, Akranesi, Borgar-
firði.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir (við pilta
22—28 ára), Þvottá, Álftafirði, pr.
Djúpavogi.
Kristinn Guðmundsson (18—24 ára,
æskilegt að mynd fylgi), Þvottá,
Álftafirði, S. Múlasýslu.
Snorri Guðlaugsson (17—24 ára,
æskilegt að mynd fylgi),
Ásta Guðlaugsdóttir (19—23 ára,
mynd fylgi bréfi),
Gunnar Guðlaugsson (18—21 árs,
mynd fylgi bréfi),
öll til heimilis á Starmýri, Álfta-
firði, Suður-Múlasýslu.
Aðalfundur
Aðalfundur Loftleiða h.f. verður haldinn í
Tjarnarcafé, uppi, mánudaginn 16. ágúst kl. 4 e.h.
Fundarefni :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hluthafar vitji aðgöngumiða að fundinum í
skrifstofu félagsins, Lækjargötu 2.
Sigriður Jónsdóttir (15—17 ára),
Anna Jónsdóttir (11—13 ára, við
stúlkur), báðar Skarðshlíð, Aust-
ur-Eyjafjöllum, Rángarvallasýslu.
Guðberg Þorláksson,
Sigurvin Sæmundsson,
Jóhannes Joensen,
Norðkvist Sigurlaugsson,
Kiddi Jónsson, (við stúlkur 16—30,
æskilegt að mynd fylgi), allir á
Djúpavik, Strandasýslu.
Steinunn Jónatansdóttir (við pilt 17—
19 ára),
Salbjörg Þorbergsdóttir (við pilt 16
-—18 ára),
Sigríður Auðunsdóttir (við pilt 16—
18 ára),
Sigríður Benjamínsdóttir (við pilt
18—20 ára), allar til heimilis
Súðavík, Álftafirði.
BLAÐAMANNABDKIN I94B
Bókfellsútgáfan heldur áfram
útgáfu Blaðamannabókarinnar
og er þetta þriðja bindið. Rit-
stjóri þeirra allra er Vilhjálmur
S. Vilhjálmsson. Efni þessa
bindis er: Blaðamannafélagið,
eftir Vilhj. Þ. Gíslason; Skrikkj-
ótt ferðalag, eftir Sig. Júl.
Jóhannesson; Þjóðólfur á æsku-
aldri, eftir Einar Ásmundsson;
Úr Reykjavíkurlífinu — Kvöld
hjá „Hernum“, eftir Jakob Jóh.
ur, sem ekki dættist, eftir Þor-
finn Kristjánsson; Brot úr
ferðasögu, eftir Magnús Magn-
ússon; íslenzkt sjónarspil, eftir
Hauk Snorrason; Hver verða
örlög íslenzku stökunnar? eftir
Sigurð Björgólfsson; Á ferð
meðal franskra, eftir Helga S.
Jónsson; Á fornum slysaslóðum,
eftir Gísla Guðmundsson; Minni
frumherjanna (kvæði), eftir Sig.
Júl. Jóhannesson. — Síðan er
„ . . . Þegar rökkva tekur er mikil ljósadýrð í miðbænum, meiri en ég
sá í nokkurri annarri borg. Neonljós spilavítanna eru jafnvel enn stærri
og iburðarmeiri en ljósin, sem maður sér á Times Square í New York.
Þegar gengið er eftir aðalgötunni þar, eru mest megnis spilavíti og
næturklúbbar á báða bóga, aðeins fáar verzlanir á stangli. Á hverju
kvöldi er þama mikið um dýrðir, mikið yfirborðsskraut. — 1 Las Vegas
dettur engum í hug að sýna ferðamanninum bóka- og listasöfn, kirkjur
eða bjálkakofa, sem hafa sögulegt gildi. Honum er sýnd hæsta stífla
heimsins, Boulder Dam, sem er 24 milur suð-austur af Las Vegas og
726 fet á hæð. Ennfremur stærsta stöðuvatn í heimi gert af manna-
höndum, Lake Mead, sem er skammt frá stiflunni. En fyrst og fremst
eru honum sýnd spilavítin og næturklúbbamir, og þá vitanlega sér i
lagi stærsta spilavíti heims, að sögn Las Vegas búa, „The Golden
Nugget." (Ur grein Margrétar Indriðadóttur: „Heimsókn i spilaviti“).
Smára; Þættir úr æfisögu ís-
lendings, eftir Ara Arndals;
Reykjavíkurstúlkan, eftir Sig-
ríði Ingimarsdóttur; Fyrir 40
árum — fyrir 30 árum, eftir
Guðm. G. Hagalín; Málsmetandi
menn, — og blaðamenn, eftir
Loft Guðmundsson; Sigling á
hættusvæði, eftir Pál M. Jóns-
son; Á að leggja landbúnaðinn
íslenzka í rústir eða reisa hann
við? eftir Gunnar Sigurðsson;
Á hverfanda hveli, eftir Helga
Valtýsson; Blaðamennirnir og
þjóðin, eftir Halldór Kristjáns-
son; Heimsókn í spilavíti, eftir
Margréti Indriðadóttur; Draum-
myndir af höfundunum og æfi-
atriði þeirra.
Flestar greinanna eru fróð-
legar eða skemmtilegar eða
hvorttveggja, en mest hafði ég
gaman af að lesa Skrykkjótt
ferðalag, Á ferð meðal franskra,
Reykjavíkurstúlkunni og köfl-
um úr greinum Lofts, Margrét-
ar, Gunnars og Hagalíns. Nokkr-
ar myndir eru í bókinni, en þær
eru sumar ekki eins góðar og
skyldi í svona ,,forlátabók“.
Prentvillupúkinn loðir óþarflega
mikið við útgáfu þessara blaða-
mannabóka.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavik. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.