Vikan - 21.10.1948, Page 9
VIKAN, nr. 43, 1948
9
FRÉTTAMYNDIR
Þessi mynd er af úrslitum í 100 metra hlaupi kvenna. Fyrst varð
F. E. Blankers-Koen frá Hollandi (lengst til hægri), önnur D. G.
Manley frá Englandi (691) og þriðja S. B. Strickland frá Ástralíu
(i miðju).
Hér sjást keppendur í 200 metra bringusimdi karla steypa sér til
sunds á Ólympíuleikunum.
Ætla mætti, að þessi mynd væri tekin af hermannabragga norður á Grænlandi. Sannleikurinn er
hinsvegar sá, að hún er tekin í Bronx, sem er eitt úthverfi New Yorkborgar, síðastliðinn vetur, þegar
mikil snjóþyngsli voru í New York. Ibúar braggans sjást á myndinni, og er húsbóndinn að aka syni
sínum á sieða heim að dyrunum.
Þrátt fyrir mikla baráttu á móti
síöu tízkunni, þá virðist hún nú alls-
staðar vera að ryðja sér til rúms. Hér
er ein klædd samkvæmt.nýjustu tízku.
Þetta er mynd af Vittorio Emmanuele
Orlando, sem var forsætisráðherra Italíu í
fyrri heimsstyrjöld. Hann er nú 88 ára
gamall og sá eini, sem er eftirlifandi af
hinum fjóru stéru, er stóðu að Versala-
samningunum. Hann er hér að halda ræðu
i tilefni af hiirni nýju stjórnarskrá Italíu.
Erkibislcup Péturskirkjunnar í Róm, Tedeschini kardínáli, lyftir hendinni til að blessa nýreist líkn-
eski (til vinstri), af fyrsta ameríska dýrðlingnum móður Frances Cabrini. Líkneskið er fjórir og
hálfur metri á hæð og vegur 18 smálestir. Gefandi þess var lengi vel ókunnur, en við vigsluna upp-
lýstist, að það voru hjón frá Chicago, Thomas Leroy Warner og kona hans. Hin heilaga Cabrini starf-
aði meðal fátæklinga í Chicago.