Vikan - 21.10.1948, Page 10
10
VTKAN, nr. 43, 1948
- HEIMILIÐ *
Kennið börnunum að hlýða
Eftir dr. G. C Myers.
Matseðillinn
Enskt buff.
1 kg. kjöt (læri), laukur, 125
gr. smjör, 2 dl. soð, pipar, salt.
Kjötið er skorið í sneiðar og barið
ofurlitið. Pannan er hituð vel og 25
gr. af smjöri er brúnað. Buffsneið-
arnar eru strax lagðar á hana; hrist-
ið pönnuna stöðugt, svo að kjötið
liggi aldrei kyrrt. Buffið er lagt á
heitt fat, köldu vatni hellt á pönn-
una, hrært vel í, ofurlítið smjör látið
út í og suðan látin koma upp á því
og síðan hellt yfir buffið á fatinu.
Laukurinn er hreinsaður og skorinn
þvert yfir í þunna hringi. Það sem
eftir er af smjörinu er brúnað, lauk-
urinn látinn út í og hrært í, þangað
til hann er orðinn ljósbrúnn. Dálitlu
sjóðandi vatni er bætt út í smátt og
smátt. Ofurlítið af brúnaða lauknum
er látið ofan á hvert buffstykki.
Kakaósúpa.
2 1. nýmjólk, 40 gr. kartöflumjöl,
40 gr. kakaó.
Takið % hluta af mjólkinni og
látið hana sjóða. Kakaóinu, sykri og
kartöfluméli er hrært saman við það
sem eftir er af mjólkinni, en síðan
hellt út í sjóðandi mjólkina. Látið
sjóða vel saman og sykri bætt í eftir
smekk. Borið fram með tvíbökum.
H Ú S RÁÐ
Geymdu rjómann og þeytarann í
isskápnum þar til á síðustu stundu.
í>ú ert ekki andartak að þeyta rjóm-
ann þegar hann og þeytarinn er is-
kaldur.
#
í>að er hollt að rifa hráa gulrót
og setja saman við hafragrautinn á
morgnana.
#
Þegar skautar eru geymdir ó-
notaðir í lengri tima á að bera á
þá parafinolíu eða vaselín' og vefja
þá inn í dagblöð. Það verður að
vera þurrt þar sem þeir eru geymdir.
#
Ljósar leðurtöskur og ljósa skinh-
skó á að hreinsa með strokleðri og
það áður en óhreinindin ná að
festast. Strokleðrið á að núa hreint
á hvítum pappír öðru hverju, svo að
óhreinindin dreifist bara ekki út um
skóna.
TÍZKUMYND
Svona undirkjólar eru notaðir við
víðu og síðu pilsin.
1 hinum mörgu greinum og bókum,
sem skráðar hafa verið um barna-
uppeldi, verður þess varla vart, að
foreldrum sé bent á, hvaða aðferð-
um þeir geti beitt til að fá börn
sín til að hlýða sér og hvernig þeir
eigi að veita börnum sinum aðhald,
banna þeim og kenna þeim að skilja
merkingu orðsins NEI. Þvert á móti
hafa foreldrar verið varaðir við þvi
að leggja hömlur á börn sin. Líkam-
legur sársauki til að hræða með hefur
verið bannaður. „Gefið bömunum
meira frelsi“ hefur verið slagorð.
Síðan ég gaf út fyrstu bók mína
1925, hefi ég stöðugt lagt samvizku-
samlega áherzlu á nauðsyn þess, að
kenna börnunum I hollu andrúms-
lofti innan fjölskyldunnar þar sem
félagslyndi, skilningur og ástriki
ríkir að skilja þýðingu bannsins,
kenna því að gæta öryggis, bæta
skapgerð þess, efla sálarlegan þroska
þess og þegnskapartilfinningu. Ég
hygg að barninu lærist bezt hlýðni,
ef byrjað er að brýna hana fyrir
því mjög snemma, að bezta aðferðin
í þá átt sé ekki að beita ofsa,
skömmum og sífelldu jagi, heldur
líkamlegum sársauka, jafnvel gamal-
dags flengingu.
Meðal ástæðnanna fyrir þessari
staðhæfingu eru:
1. Að halda við lífi barnsins og
heilsu — öryggi. öll þau ósköp, sem
rituð hafa verið um öryggi barnsins,
hafa eingöngu að geyma hvatningu
um að auka árvekni hinna fullorðnu
í þá átt að vernda barnið frá hættum
og að tala um fyrir því. Ég tel,
að þetta sé ekki það hálfa nóg. Við
getum sjálfsagt tvöfaldað öryggi
barnanna, sérstaklega þeirra, sem
eru að byrja að ganga, ef við
kennum þeim að varast hætturnar
með hæfilegum refsingum, ef ekki
annað dugar og það löngu áður en
þau gera sér grein fyrir því, hvers
vegna þeim beri að gera það. Ég
hygg að takist manni að þroska
öryggistilfinningu barnsins, muni það
njóta góðs af því allt sitt líf.
2. Að stuðla að ánægjulegu sam-
bandi einstakílinga fjölskyldunnar.
Óagað barn fer fljótt í taugarnar á
foreldrum sínum.
3. Að ala á virðingu barnsins
fyrir rétti annarra og yfirvöldunum,
en það er undirstöðuatriði þess, að
upp vaxi góður þjóðfélagsþegn. Bam,
sem virðir ekki vald foreldra sinna,
virðir e. t. v. ekki vald kennara,
yfirvalda og annarra.
4. Ennfremur hamingja og andleg
velferð barnsins. Vel uppalið barn
er hamingjusamt.
5. Að undirbúa það undir gott
fjölskyldulíf. Óneitanlega hefur aga-
leysi innan heimila stuðlað að hjú-
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnsson h.f.
Skúlatún 6 Sími 5753
Vélaviðgerðir. — Vélsmíði.
Uppsetningar á vélum og verksmiðjum.
FRAMKVÆMIR:
Hvers konar viðgerðir á Dieselmótorum
og Benzínmótorum.
SMÍÐUM:
Tannhjól og hvers konar vélahluti.
Bobbinga úr járni fyrir mótorbáta.
Rafgufukatla.
Síldarflökunarvélar o. m. fl.
Höfum fullkomnustu vélar og tæki.
Vélaverkstæði
Sig. Sveinbjörnsson h.f.
skapar-óhamingju og hjónaskiln-
uðum.
6. Að kenna barninu að nota sér
alla skapandi möguleika til andlegs
þroska. Vanstillt barn á illt með 'að
njóta leiks með félögum sínum, að
hafa hollustu af skóladvöl, þátttöku
í ýmiss konar félagsstarfsemi, svo
sem skátafélaga o. s. frv.
Þessa grein ættu foreldrar að hafa
í huga, þegar þeir lesa aðrar greinar
í þessum flokki.
Fegurðardrottning
Þessi unga stúlka var kjörin
fegurðardrottning á baðstað í
Frakklandi.