Vikan - 22.08.2000, Side 63
Mamman
Spá Vikunnar
*
Hrúturínn
21. mars - 20. apríl
Sjálfsstjórn þín er með ólíkindum þessa dag-
ana og alls konar kúrar, námskeið og vinnu-
áætlanir ganga frábærlega vel. Þú ert mjög
viðkvæm(ur) núna og gætir misskilið einhvern sem þér
þykir vænt um og verið óréttlát(ur) óviljandi ef þú gætir þín
ekki.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Það er mun bústnari buddan þín en verið hef-
ur undanfarið og þig er farið að langa til að
gera eitthvað sniðugt sem kostar þeninga.
Ekki rasa um ráð fram því fljótlega mun verða þörf fyrir þá
í eitthvert visst verkefni. Amor er á eftir þér með boga og
ör!
&
Tuíöurinn
22. maí - 21. júní
Ekki láta æsa þig uþþ! Allra síst í umferðinni.
Þú átt mikla möguleika á að láta einhvern
gamlan draum rætast á næstunni. Hugsaðu
þig um - hvað er það sem þig langar mest að gera?
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Enn eru fjármálin að plaga þig og þú ert
fremur niðurdregin(n) og pirruð(aður) þessa
dagana. Farðu að sinna uppáhaldsáhuga-
máli þínu aftur, þú hefur trassað það lengi.
Ljónið
24. júlí - 23. ágúst
Hér gætu barneignamál verið í brennidepli
og einhverjir Ijónsungar verið á leiðinni! Það
er mikill kraftur í þér upp á síðkastið og þú ert
að fara inn í skeið þar sem þú afkastar miklu.
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Álagið á þér er enn mikið og þú skalt ekki bú-
ast við mikilli hvíld þessa vikuna. Þær meyjur
sem eiga gæludýr ættu að sinna þeim vel á
næstunni og gæta að heilsu þeirra.
X. mc.
áb
*r
24. september - 23. október
Þig vantar tilbreytingu og þú ættir að láta eftir
þér að fara út að skemmta þér og að hitta ann-
að fólk. Láttu ekki fjármálin hefta þig, leiðinn
er verri en blankheitin.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Það er ævintýraþrá í þér þessa dagana og þú
lætur þér detta ýmislegt skrýtið í hug og
framkvæmir margt sem þér dytti ekki í hug
venjulega. Farðu varlega, þá ættir þú ekki að
skaðast af uppátækjum þínum.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Samband þitt við þinn heittelskaða (elskuðu)
er að taka breytingum til batnaðar. Vertu
opin(n) og heiðarleg(ur) og njóttu þess að
sinna elskunni þinni af alúð.
Steingeitin
22. desember - 20. janúar
Nú er rétti tíminn til að dusta rykið af bókhald-
inu og taka til í fjármálunum sem hafa setið á
hakanum um nokkurt skeið. Lundin er að létt-
ast.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Vinnan og fjármálin ganga vel og núna er
líka að verða breyting til batnaðar í sálarlífinu.
Vonbrigði, sem þú varðst fyrir nýlega, ganga
til baka en þú gætir komist í uppnám í þess-
ari viku vegna orða annarra.
20. febrúar - 20. mars
Þú ert að verða heimilislegri í þér með hverjum
deginum sem líður og nú snýst öll þín hugsun
um að fegra í kringum þig og hlúa að fjöl-
skyldunni. Þessi tilhneiging á eftir að halda
sér lengi svo þú skalt ekki skorast undan.
Vogin
Eru kennararnir
leiðinlegir?
© Bulls
Ertu skotinn í stelpu sem
vill þig ekki í skólanum?
Ég skil ekki þennan
skólaleiða í honum
£ . Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 289