Vikan


Vikan - 17.10.1957, Blaðsíða 6

Vikan - 17.10.1957, Blaðsíða 6
Daghóh Önnif SVIÐIÐ sýnir verzlunarhús í Amsterdam, tvær efstu hæðirnar, sem staðið hafa auðar síðan þær voru notaðar sem felustaður. Gamall, slitinn, raunalegur maður kemur inn. Hann virðir þreytulega fyrir sér óreið- una og rykið. Á upplituðum veggjunum sér hann gulnaðar blaðamyndir af .kvikmynda- stjörnum og listaverkum, festar upp með títuprjónum. Á snaga hangir marglitur klút- ur úr garnafgöngum. Einasti hluturinn sem eftir er. Fyrir einu ári síðan hafði Anna prjónað hann handa honum. Maðurinn tekur hann og starir á hann, niðursokkinn í endur- minningar sínar. Dóttir hans Anna, sem hann hafði haft svo mikið dálæti á, 15 ára, skynsöm, hrífandi og gáfuð. Dáin! Hvers vegna lifir hann enn? Konan, sem hefur fylgt honum hingað, fær honum stílabók, sem hefur verið hirt úr papp- írsdrasli á gólfinu. Það er dagbókin, sem Anna Frank hélt í þau tvö ár sem hún bjó í þessum afkima. Maðurinn opnar hana og byrjar að lesa. . . Þetta er fyrsta atriðið í leikritinu. Sönn saga Nei, annars, þetta er ekki leikrit, það er sönn saga. Anna hefur verið til. Það var litla stúlkan, sem var svo glöð yfir að fá dagbók- ina á 13 ára afmælisdaginn sinn 12. júní 1942. Bókin er bezta afmælisgjöfin hennar. Og hún ákveður að segja henni á hverjum degi frá öllu því sem gerist í kringum hana í þessu hertekna landi, frá öllu sem gerist innra með henni, unglingnum sem smátt og smátt er að verða sér meðvitandi um vandamál sín. Hún er Gyðingur og ber stjörnuna með hornunum sex, sem Hitler vildi svívirða Gyð- inga með. Og þess vegna hefur fjölskylda hennar orðið að flýja föðurland sitt, Þýzka- land, árið 1933, undan fyrstu ofsóknum nazist- anna. Anna vex upp í Hollandi eins og hol- lenzk telpa, skrifar málið prýðilega og skarar fram úr í skólanum. Árið 1944: innrásin i Niðurlönd. Hún hefur í för með sér sífellt grimmilegri kynþáttalöggjöf, S. S. menn og Gestapolögreglu. önnu er ekki leyfður að- gangur að leikhúsum og kvikmyndahúsum. En hún safnar myndum af uppáhaldsleikurun- um sínum. Hún hefur ekki rétt til að leika tennis, en aldrei hefur hún verið meira fyrir ping-pong. Enginn sími. Gyðingum er bannað Litla Gyðingastúlkan, Anna Frank, var 18 ára, þegar hún fór í felur. að koma inn í verzlunarhúsin og umgangast kristið fólk. Umferðabann eftir klukkan 8. Anna tekur öll þessi bönn ekki mjög nærri sér, því hún er vernduð af samheldinni og efnaðri fjölskyldu. Þetta er grannvaxin, dökkhærð telpa, mas- gefin (alltof masgefin, segir kennarinn henn- ar), hrekkjótt (reglulegur prakkari) og dug- leg við námið (nema stærðfræðina). 1 Gyð- ingaskólanum er hún alltaf umkringd vinum og aðdáendum, skólakrökkum á sínum aldri. Nokkrum dögum eftir afmælið breytist þetta allt. Faðir hennar fær að vita að hand- taka vofir yfir þeim. Það einasta sem getur bjargað þeim er að hverfa. Hann flytur fjöl- skylduna í bakhúsið, bak við verzlunarhúsið sitt, sem áður hafði verið notað sem byrgða- geymsla. Félagar hans, kristnir Hollendingar, sem hafa haldið áfram fyrirtækinu síðan hann missti réttindin til að reka það sjálfur, flytja þangað húsgögn, dýnur, sængurfatnað, bækur og vistir. Hurðin er falin bak við skjala- skáp. Ottó Frank hefur komið þeim orðrómi af stað meðal nágranna sinna, að hann sé að fara til Sviss, og nú undirbýr hann flótta fjölskyldu sinnar. Einn kæfandi heitan sum- ardag yfirgefa þau svo þægilegu íbúðina sína. Anna er varla komin inn í bakhúsið, þegar hún bregður sér úr millipilsinu, og þegar móðir hennar hneykslast á þessu, svarar hún: ,,Þú veizt ofur vel að ég er í þremur öðrum millipilsum, tveimur skyrtum, kjól, pilsi, kápu og þrennum sokkum, hverju utan yfir öðru." Allt fólkið er klætt eins og það ætli til norðurpólsins, því það er hættulegt að bera með sér farangur. Lífið í bakiiúsiiiii. 1 fyrstu er það bara eins og að fara i skemmtilega útilegu, að koma sér þarna fyrir og búa þannig um sig, að sem minnst óþæg- indi verði af þvi að þurfa að búa þarna sjö saman. Til fjölskyldu Önnu telst hún sjálf og Margot systir hennar, elskuleg og hjálp- fús 15 ára stúlka -— gerólík Önnu, sem er full af lífsfjöri og hefur sínar eigin skoðanir á hlutunum. Auk þeirra eru faðir þeirra, sem er nánast guð í augum önnu, og 35 ára göm- ul móðir þeirra, sem Önnu finnst vera ráð- rík og lítt orðvör, enda er samkomulagið ekki upp á það bezta. Telpan lítur á sig sem munaðarleysingja, sem aldrei hafi notið móð- urástar, og það angrar hana. Þessu þægindasnauða húsnæðí deila þau með Van Daan fjölskyldunni. Húsbóndinn sjálfur er værukær, konan hégómleg og létt- úðug. Pétur sonur þeirra, sem er tæpra 15 ára, kemur fram við önnu eins og eitthvert Susan Strasberg var sú fyrsta sem lék önnu. Hún lék hana i hálft annað ár á Broadway. Franh stelpufífl. Félagar hans eru vanir að gera gys að stelpum í sinn hóp. Önnu finnst hann ósköp lxtið skemmtilegur og alltof fingerður. Dagbók eini trúnaðarvinurinn Hún á því ekki lengur neina félaga, hún sem alltaf hefur verið svo vinsæl. Hún hefur engan lengur til að tala við, og verður að hafa hægt um sig. Á daginn er harðbannað að hafa hátt, svo að ekki vakni grunur hjá starfsfólkinu niðri. Fólkið verður að lifa lif- inu bak við niðurdregin gluggatjöld og ganga á inniskóm. Það er ekki óhætt að hleypa nið- ur á klósettinu fyrr en á kvöldin. Kröfurnar eru strangar og það er ríkt gengið eftir þeim. Dagbókin verður trúnaðarvinur önnu. Á hverjum degi skrifar hún i hana bréf til „Kittýar," ímyndaðrar vinkonu sinnar — einustu vinkonunnar. Það gerist margt í þessum afkima, sem lokaður er frá umheiminum. Sem betur fer fá þau heimsóknir að utan. Næstum daglega laumast tryggu og elskulegu hollénzku skrif- stofustúlkurnar tvær, þær Miep og Elli, inn til þeirra með matvæli, þennan lítilfjörlega matarskammt, sem svo erfitt er að ná í, þi’átt fyrir falska skömmtunarseðla og svarta- markaðsvörur. Það er mikill matvælaskortur í landinu. Stúlkurnar annast hverskonar er- indisrekstur, þær útvega bækur og koma með gjafir á hátíðum. Gjafirnar eru lítill blóm- vöndur, ostkrukka eða kaka, sem sykur- skammturinn hefur verið sparaður í. Það er fylgzt samvizkusamlega með öllum afmælum. Á jólum kristinna manna og ný- ársdag Gyðinga er sungið af hjartans list. Þau verða að reyna að gleyma hversdagsleik- anum og sambýlinu, sem tekur á taugarnar. Alltof oft á flóttafólkið í deilum. önnu til mestu furðu kemst hún nú að raun um að fullorðna fólkið rífst eins og börn. Til að bæta gráu ofan á svart ákveður faðir Önnu nokkrum mánuðum síðar að veita ein- um hætt stöddum Gyðingi enn húsaskjól, eins og ekki sé nægilega þröngt fyrir. Það er tannlæknir að nafni Dussel. Hann fær rúm Önnu. Hún er yngst, svo hún vei'ður að vikja. Eftir það sefur hún á sófa, sem lengdur er með tveimur stólum. Það er nú það minnsta. Henni reynist miklu erfiðara að ætla Dussel tíma til að klæða sig og þvo sér, og að láta honum eftir vinnuborðið. Hann heldur öllum venjum piparsveinsins og er bæði smámuna- samur og eigingjarn. Anna hefur miklar mætur á skrifborðinu sínu. Þar skrifar hún í dagbókina sína, og þar les hún lexíurnar sínar. Pabbi hennar vill að hún, Margot og Pétur haldi áfram námi. Anna þýðir ,,La Belle Nivernaise" eftir Daudet úr frönsku. Pétur stríðir við óreglu- legu sagnirnar og faðir önnu gefur þeim gott fordæmi, með því að lesa sögur Dickens með hjálp orðabókar. öll hlusta þau svo á brezka útvarpið. Haustið 1942 kemur með fréttir af land- göngunni í Norður-Afríku. Þau hafa öll upp fyrir sér orð Churchills. „Þetta er byrjunin á endimum." önnu tekur það sárt að heyra að úti fyrir ríki mesta hörmungarástand og að búið sé að handtaka flesta skólafélaga henn- Kristbjörg Kjeld mun leika Önnu í Beykja- vík. Hún hefur aðeins tvisvar leikið áður, í Sápukúlur og Horft af brúnni. G

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.