Vikan


Vikan - 17.10.1957, Blaðsíða 7

Vikan - 17.10.1957, Blaðsíða 7
j vetur mun Þjóðleikhúsið setja á svið harmleikinn um Önnu Frank, sem að undanförnu hefur verið sýndur um allan heim við fádæma undirtektir. ar og senda i fangabúGir. Löng vetrarkvöld verða þau að búa við rafmagnsleysi. Anna stækkar, en fötin vaxa ekki með henni. Hún er komin á erfiða aldurinn. Móðir hennar heldur áfram að meðhöndla hana sem barn. Sjálfri finnst henni hún vera orðin full- orðin og hún grætur í rúminu sínu á kvöld- in. Árið 1943 leggjast á þau enn nýjar hömlur. Það er erfitt að vera innilokaður, þegar maður er 14 ára gamall. „Hvað það er góð lykt af þér! Þú ilmar af frjálsu lofti,“ segir Anna við Miep, þegar hún kemur að utan, og tekur höndunum um vanga hennar til að anda að sér „frjálsa loftinu." Það er nóg hægt að gera sér til dundurs, sem ekki veldur hávaða. Anna klippir út úr leikarablöðum og fylgist með kvikmyndunum. „Hvaða stjörnu líkist þú nú í dag?“ spyr Van Daan, þegar hún leggur sér til nýja hárgreiðslu einn daginn. Og hún eyðileggur nýju hárgreiðsluna með einu handtaki i gremju sinni. Siðan sökkvir hún sér niður í griska og rómverska goðafræði og gerir sér lista yfir guðina. Því næst fyllist hún áhuga fyrir öðru álíka saklausu viðfangsefni, ríkj- andi konungsfjölskyldum, og liggur í mann- kynsögubókunum sinum, til að rekja ættir þeirra. Hún hengir upp myndir af litlu brezku prinsessunum (Margaret er einum mánuði yngri en hún) og mynd af „okkar dáðu drottn- ingu, Vilhelmínu," eins og hún, sem tryggur þegn, orðar það. Hið örlagaríka ár 1944. Anna er orðin falleg, ung stúlka. Er ég falleg ? spyr hún spegilinn í einlægni. Já, svipmikla andlitið, stóru augun og mjúka hárið gera hana fallega. Hún er falleg og ástfangin. Þetta vor hefur að geyma meiri töfra en nokkurt annað vor. Úr þakglugganum á her- bergiskitrunni uppi undir þaki, sem ekki er hæf til íbúðar, er himininn djúpblár og þrung- inn loforðum. Pétur fer oft upp á loftið, til að tína úr skemmdar kartöflur. Þar njóta þau þess að hittast. Bæði hafa breyzt mikið siðan þau komu í felustaðinn. önnu hefur dreymt um að eignast vinkonu, en hún er engu síður ánægð með að eignast trúnaðarvin. Þau hvísla hvort að öðru skoðunum slnum á líf- inu og fyrstu kynnum sínum af þeim sjálfum. Þau eiga við sömu vandamálin að striða, þau komast að sömu niðurstöðu, þau elska hvort annað. Fyrsti kossinn. Anna leggur fyrir sig spurningu. Hún er fyrst og fremst hreinskilin gagnvart sjálfri sér. Elskar hún hann af því hann er þarna við hendina, eða mundi hún velja hann úr hópi annarra pilta? Hún má ekki gefa sig á vald þessarri miklu þörf fyrir ást, sem ásækir hana. Og hún skýrir hinni hlutlausu „Kittý“ frá öllum málavöxtum. Ekkert er til hreinna og tærara en geðhrif hennar eftir fyrstu sak- lausu ástaratlot piltsins hennar og fyrsta koss- inn þeirra. En ef hún er nú alveg hreinskilin, er þá ekki mikiu eðlilegra að Pétur elski Margot systur hennar, sem er á hans aldri? Á hún að láta systur sinni hann eftir? En Margot róar hana og fullvissar hana um að hún sé ekkert afbrýðisöm. Hvílíkt vor! Fréttirnar í brezka útvarpinu geta vaila betri verið. öll veröldin bíður. Innrásin er yfirvofandi. Og eins og hvarvetna annars staðar í heiminum, stendur i bakhús- inu svartsýnismaður, Van Daan, andspænis óforbetranlegum bjartsýnismanni — föður önnu. En 6. júni nær vonin tökum á þeim öllum. Hvenær skyldu þau géta farið út? Bara að ég geti nú haldið áfram í mennta- skólanum, þegar ég kem aftur, segir Anna. Eftir stríðið vil ég sjá mig um í heiminum, segir Pétur. Þau byggja sér æsandi loft- kastala. En ástandið í Hollandi er verra en nokkru sinni og neyðin meiri. Ræningjar vaða hvar- vetna uppi. Kina nóttina reyna þjófar að brjótast inn i bakhúsið, sem þeir vafalaust álíta mannlaust, eins og allir aðrir. Þegar þeir heyra hávaða, leggja þeir á flótta. Sennilega hafa það verið þessir innbrotsþjóf- ar sem komu upp um þau við Gestapo nokkr- um vikum seinna, þegar þeir voru hand- teknir. Endalokin. 4. ágúst 1944 gerði lögreglan húsrannsókn í bakhúsinu. Allir Ibúar þess voru handteknir, ásamt hinum hollenzku vinum sínum, og sendir sinn í hverjar fangabúðirnar. Hollendingunum var seinna bjargað. En af Gyðingunum átta, kom aðeins einn til baka. Otto Frank hafði verið sendur til Auschwitz í Póllandi. Veturinn 1944—45 frelsaði rúss- neski herinn hann. Hann fylgdist með bjarg- vættum sínum gegnum Þýzkaland og leitaði frétta hjá hverjum fanga sem hann hitti. Gæti nokkur fært honum fréttir af fjölskyldu hans? Enginn vissi neitt. Dag nokkurn var honum loks sagt að Anna væri í Bergen- Belsen. 1 maímánuði 1945 tóku bandamenn þær fangabúðir. Bretarnir sem fyrstir ruddust þar inn, hörfuðu með hryllingi, þegar þeir sáu þessar lifandi beinagrindur, fangana sem höfðu sloppið við taugaveikina. Ógrafin lik lágu þarna í þúsundatali. Vafalaust var líkið af Önnu, sem hafði dáið í marzmánuði, þar á meðal. » Föður hennar var sagt, að hún hefði oft, einkum í fyrstu, verið sæl á svipinn yfir að mega anda að sér hreinu lofti og horfa á skýin svífa frjáls um loftið. Ef til vill hefur henni auðnast að halda áfram að vera kát og masgefin ... 1 aprílmánuði í sumar héldu þýzkii' mennta- skólapiltar og stúlkur á aldrinum 14—16 ára i pílagrímsför til Bergen-Belsen. Þar lögðu þau blóm á f jöldagröf óþekktu píslarvottanna. 1 augum heillar kynslóðar Þjóðverja er Anna nú nokkurs konar hetjutákn. Það er búið að þýða dagbpkina hennar á 18 tungumál. Þessi litla bók hefur vakið gíf- urlega athygli. Eleanor Roosevelt ritaði for- mála í bandarísku útgáfuna. Þeir sem vilja sögulegar staðreyndir, finna í henni frásögn af erfiðu tímabili. Þeir sem leita fyrst og fremst að mannlegum frásögn- um, verða með samúð vitni að því hvernig litli, ljóti andarunginn i bókinni verður að hrífandi svani og frá því er sagt í fullri ein- lægni. Þarna er litla telpan hún Anna. Hún er hrædd við loftárásirnar og þegar brezku flugvélarnar koma inn yfir Amsterdam á nótt- unni og varpa niður sprengjum sínum, þá flýr hún upp í til pabba sins. Og hún þrozkast. Hún skilur og ber fram afsakanir fyrir frú Van Daan og jafnvel móð- ur sina, sem hún er þó svo lengi búin að álasa. Á eina af síðustu blaðsiðunum í dag- bókinni, hefur hún skrifað 15. júií 1944: „Ég held áfram að trúa á meðfædda gæzku mannanna ..." Leikritið. Það vai' djarft að taka sér fyrir hendur að breyta dagbókinni, þessu látlausa langa ein- tali og innilega trúnaðarrabbi í leikrit. Banda- ríkjamönnunum tveim, þeim Frances Good- rich og Albert Hackett, hefur tekizt það. Leikritið var leikið á Broadway í hálft ann- að ár við frábærar vinsældir. Höfundarnir voru svo heppnir að fá leikkomma Susan Strasberg í hlutverk önnu. Hún var alveg á réttum aldri, útlit hennar hæfði hlutverkinu og leikur hennar var áhrifaríkur. 1 sumar tók önnur leikkona við af henni. Á öðrum leik- sviðum um allan heim er nú verið að leika Dagbókina hennar önnu Frank. — 1 Zúrich, í Vinarborg, i París og í borgum Vestur- og Austur-Þýzkalands eru 36 leikflokkar búnir að setja leikritið á svið. Alls staðar sitja áhorfendur sem lamaðir, þegar tjaldið fellur. Síðan fikra þeir sig hægt út. Þeir eru sér þess tæplega meðvitandi að þeir eru I leikhúsi. Einlægni önnu litlu geng- ur þeim til hjarta og þeir gleyma að þetta er leikkona. 1 Hollandi var leikurinn aðeins sýndur nokkrum sinnum. Þar var leiksýning- in óþolandi — hún var alltof sönn. Auðvitað lætur Hollywood slíkt ekki fram hjá sér fara. Það á eftir að koma á daginn hvort hvílík einlægni nýtur sín á kvikmynda- tjaldinu. Audrey Hepburn leikur hlutverk Önnu Frank. Hún virðist vera orðin sjálf- kjörin í hlutverk frægra unglingsstúlkna. Audrey þurfti líka sjálf að búa við hernám Þjóðverja í Hollandi á striðsárunum. G. Stev- ens mun stjórna kvikmyndatökunni í Amster- dam. Það stendur til að gera upp húsið þai' sem Frank-fjölskyldan bjó í felinn, en það er orð- ið æði hrörlegt. Höfundalaunin af bókinni Framhald á bls. 14. Perúvíska söngkonan Yma Sumac, sem við heynim oft í í útvarpinu, hefur að undanförnu sunglð í Paris, og hefur þar með sér skauta- balletflokk. Á myndinni sést hún með glóðar- auga, sem luin fékk eftir að henni og eigin- manni hennar lenti saman, en þá höfðu þau verið skllin að borði og sæng um skeið. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.