Framtíðin - 20.05.1923, Blaðsíða 6
F R A M T í Ð I N
arameistari og Steinþór Hallgrímsson veit-
ingamaður.
» A N N A H O c kom hingað þriðju-
dagsmorgun. Með skipinu komu : H. And-
ersen og stud. real. Hafliði Helgason og
Hafliði Halldórsson.
• GOÐAFOSS« korn á fimtudag.
Með honum komu : G. T. Hallgrímsson,
Axel Schiöth og Helgi Kjartansson.
HÁKARLASKIPIN »Stathav« og
»Æskan« ern nýkomin inn. Stathav með
124 tunnur og Æskan með 128.
JARÐARFÖR Hjörtínar sál. Krist-
jánsdóttur fór fram á miðvikudaginn.
Alþingi.
Pingsályktunartillögur.
Innlend baðlyfjagerð.
Landbúnaðarnefnd ieggur til, að
Alþingi skori á stjórnina að halda
áfram ransóknum á innlendri bað-
lyfjagerð og leggja fyrir næsta þing
frumv. um framkvæmd á henni,
Ríkisveðbanki íslands.
Jón Baldvinssori flutti tillögu til
þingsályktunar tim að skora á
stjórnina að gera þegar ráðstafanir
til þess, að Ríkisveðbanki íslands
taki til starfa á þessu ári.
Uppdráttur landsins.
Magnús Jónsson flutti tillögu til
þingsályktunar um að skora á
stjórnina að hefja samninga um
framhald á mælingu og uppdrátt-
um landsins og tryggja með því,
að haldið verði áfram óslitið og
byrjað ekki síðar en sumarið 1924
og lokið eigi st'ður en 1935, og
séu uppdrættirnir þa gefnir út með
mælikvöðrunum 1 : 100000 og
1 : 50000 og seldir svo vægu verði
sem frekast er unt.
Umsjónarmaður banka og
sparisjóða.
Frumv. er framkömið um að
skipa einn eftirlitsmann með bönk-
um og sparisjóðum á Iandinu.
Hann á að hafa 10,000 krónnr í
árslaun og dyrtíðaruppbót af allri
upphæðinni, og ennfr. ferðakostn-
að eftir reikningi. Laun, uppbót
og ferðakostnað á að greiða úr
ríkissjóði, en peningastofnanirnar
eiga að endurgreiða ríkissjóði kostn-
aðinn í hlutfalli við það fjármagn
er þær hafa í veltu um hver ára-
mót.
Forsætisráðherra talaði með frum-
varpinu og taldi mesta natiðsyn
sérstakan og sérfróðan bankamann
til að hafa stöðugt eftirlit með öll-
um sparisjóðuin og bönkum lands-
ins.
Eiríkur Einarsson flutti breytingar-
tillögu, vildi hann engan eftirlits-
mann liafa, en skylda alla sparisjóði
og banka til að gefa ríkisstjórninni
allar þær upplýsingar er hún kann
að heimta.
Frumvarpið var þó samþykt
óbreitt.
/ Verslunarsamningur við
Rússa. x
Jón Baldvinson flutti svohljóðandi
þingsályktunartillögu í sameinuðu
þingi: Alþingi skorar á ríkisstjórn-
ina að gera ráðstafanir til þess að
koma á verslunarsamningi milli
íslands og Rússlands.
Ransókn á ísiandsbanka.
Einar Árnason, Guðm. Guðfinns-
son, Guðm. Ólafsson, Jónas jóns-
son og Sigurður Jónsson flytja
svohljöðandi tillögu um íslands-
banka: Efri deild Alþingis skipi 3.
manna nefnd sarhkv. 35. gr. stjórnar-
skrárinnar til að kynna sér fjárhags-
stöður íslandsbanka gaðnvart ríkinu
og þá sérstaklega trygginnar þær,
er hann hefur sett ríkissjóði fyrir
þeim hluta enska lánsins, er hann
fékk, og leggi nefndin álit sitt fyrir
einkafund sameinaðs Alþingis fyrir
þinglok, en bundin sé hún þagnar-
skildu um hag bankans meðan
hún starfar. 9 þingmenn í neðri
deild flytja þar samhljóða tillögu
um skipun 5 manna nefndar.
Landsspitalinn.
Frk. Ingibjörg H. Bjarnason flyt-
ur svohljóðandi tillögu urn bygg-
ing landsspítala: Efri deild Al-
þingis ályktar að skora á lands-
stjórnina að láta byggja landsspít-
aia svo fljótt sem verða má og
¥
Nýkomið:
Qúnnmístígvéí
Skóhlífar
Herrastígvél
Dömuskór
Manchetskyrtur
Flibbar
Axlabönd
o. fl. í verslun
Sig. Kristjánssonar.
Suðu- og Átsúkkulaði,
mest úrval, iægst verð í verslun
Stefáns B. Kristjánssonar.
Ársrit fræðafélagsins
fá áskrifendur afhent hjá undir-
rituðum.
Sig. Kristjánsson.
Landsöl, Citronsódavatn,
Margarine (lítið eitt súrt)
á aðeitis 1 kr. kg. í versl.
St. B. Kristjánssonar.
Barnavagn
til sölu, eða leigu í sumar.
Ferd. Jóhannsson.
Tryggið líf yðar í
„Danmark “.
Umboðsm. á Sigluf. og grend er
Stefán B. Kristjánsson.
sitja íyrir öllum öðrum meiriháttar
framkvæmdum ríkisins.
U úsmæðraskóli.
Jónas Jónsson og Sigurður Jóns-
son fluttu svohlj. tillögu um stofn-
un húsmæðraskóla á Staðafeili:
Þegar á þessu ári séu gerðar ráð-
stafanir til, að stofnaður verði setn
allra fyrst húsmæðraskóli fyrir Vest-
urland að Staðafeili.